Flokkur

Pæling dagsins

Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Eru Rússar í net­stríði við Banda­ríkin?

Mikil spenna er nú á hinu póli­tíska sviði í Banda­ríkj­unum þar sem Donald J. Trump og Hillary Clinton berj­ast um for­seta­emb­ættið, en kosið verður í nóv­em­ber. Hillary mælist með tölu­vert meira fylgi þessa dag­ana, en margt getur breyst á skömmum tíma í stjórn­málum, eins og oft hefur sann­ast. Eitt af því sem gerir bar­átt­una nú merki­lega, eru ásak­anir um að...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Inn­flytj­endur skipta Ísland miklu máli og leggja mikið af mörkum

Erlendir rík­is­borg­arar eru nú yfir tíu pró­sent þeirra sem greiða skatta á Íslandi. Rúm­lega annar hver nýr skatt­greið­andi hér­lendis á síð­ustu árum hefur komið erlendis frá og á árinu 2015 einu saman voru 74,4 pró­sent allra nýrra skatt­greið­enda erlendir rík­is­borg­ar­ar. Það þýðir að þrír af hverjum fjórum sem bætt­ist við skatt­grunn­skrá lands­ins í fyrra voru erlendir rík­is­borg­arar en einn af...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hvað gerir pen­inga­stefnu­nefndin núna?

Fróðlegt verður að sjá hvernig pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákveður vexti næst, á vaxta­á­kvörð­un­ar­degi, 24. ágúst næst­kom­andi. Raun­vextir eru nú tæp­lega fimm pró­sent. Meg­in­vextir eru 5,75 pró­sent en verð­bólga mælist 1,1 pró­sent. Raun­vextir eru hvergi svo háir í heim­inum, um þessar mundir. Oft hefur umræðan verið um það, hversu mikil verð­bólgan sé, og þar af leið­andi stýri­vextir. En það dugar ekki...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ræða þarf smá­at­riðin sem eru líka stór atriði

Greini­legt er að stjórn­ar­flokk­arnir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, vilja reyna að ná betur til ungs fólks með því að ein­blína á fyrstu íbúð­ar­kaup­endur í sér­stökum aðgerðum sem kynntar voru í gær. Þær byggja á því að veita fólki heim­ild til að nýta sér­eigna­sparnað, gegn skatta­af­slætti, til að greiða inn á fast­eign. Þetta er ekki nýtt af nál­inni, og felur ekki í...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Lítil eft­ir­spurn eftir sæti hjá Sjálf­stæð­is­flokknum

Það vakti athygli í síð­ustu viku að ein­ungis 16 manns sótt­ust eftir sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur fyrir næstu kosn­ingar, en frestur til að skila inn fram­boði rann út síð­degis á föstu­dag. Fyrir kosn­ing­arnar 2013 sótt­ust 19 eftir því að kom­ast á list­ann. Ástæða þess að þetta vakti athygli er að miðað við stöðu skoð­ana­kann­ana þá getur flokk­ur­inn...
Pistillkosningar2016

Ritstjórn Kjarnans

Burt með „hags­muna­gæsl­una“

„Kvóta­kerfið var eitt af stóru mál­un­um sem varð til þess að ég yf­ir­gaf Sjálf­stæðis­flokk­inn. Það er gróf­asta dæmið um það hvernig sér­hags­mun­ir fárra manna ráða stefnu flokks­ins. Það er gleði­legt að sjá hjá Viðreisn að þar er talað mjög ákveðið um að þess­um gæðum verði út­hlutað gegn gjaldi á upp­boðum og ég tel það lyk­il­atriði í þróun kvóta­kerf­is­ins með hags­muni...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Af hverju ættu líf­eyr­is­sjóð­irnir að kaupa íslenskan banka?

Frétta­skýr­ing Kjarnans um að útlán líf­eyr­is­sjóða til heim­ila hafi marg­fald­ast á fyrri hluta árs­ins 2016 vakti athygli um helg­ina, en þeir hafa mark­visst sótt inn á íbúða­lána­mark­að­inn und­an­farið ár. Sjóð­irnir lán­uðu rúm­lega 38 millj­arða króna til íslenskra heim­ila á tíma­bil­inu, en lán­uðu tæp­lega fimm millj­arða króna til þeirra á sama tíma í fyrra. Útlánin hafa því tæp­lega átt­fald­ast. Ástæðan er...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Lands­bank­inn val­inn til að selja hluti rík­is­ins

Íslenska ríkið, í gegnum félagið Lind­ar­hvol, hefur valið Lands­bank­ann, í eigu íslenska rík­is­ins, til þess að veita ráð­gjöf við sölu á hluta­bréfa­eignum rík­is­ins. Um er að ræða eignir rík­is­ins í stórum fyr­ir­tækjum sem eru skráð á markað, Eimskip, Símanum, Reitum og Sjóvá. Ríkið eign­að­ist hluti í fjölda­mörgum fyr­ir­tækjum í gegnum stöð­ug­leika­fram­lög frá slita­búum fall­inna banka. Þetta verður stór einka­væð­ing og...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Sig­mundur í kosn­inga­ham

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var í athygl­is­verðu við­tali í Bítinu á Bylgj­unni í gær­morgun. Þar kom glögg­lega fram að hann er kom­inn í kosn­inga­ham. Hann gerði það m.a. enn frekar ljóst að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hyggst keyra á verð­trygg­ing­ar­mál­unum í næstu kosn­ingum, með tali um að allt hafi nán­ast verið til­búið í þeim málum áður en hann hafi tíma­bundið þurft að draga sig...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hinn eilífi ágrein­ings­rammi

Skýrsla Orku­stofn­unar um gagn­rýni á vinnu verk­efn­is­stjórnar þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar er um margt athygl­is­verð. Orku­stofnun segir aðferðir verk­efn­is­stjórn­ar­innar óvand­aðar og á köflum séu þær ekki í sam­ræmi við lög. Grein­ing­ar­vinna sé ófull­nægj­andi og utan skyn­sem­is­marka, mat sé byggt á of þröngu sjón­ar­horni, skortur sé á sam­ræmi í ein­kunna­gjöf og flokkun handa­hófs­kennd og órök­studd. Um er að ræða umsögn Orku­stofn­unar vegna...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Sterk skila­boð nýs for­seta

Það vakti athygli í gær þegar greint var frá því að meðal fyrstu emb­ætt­is­verka Guðna Th. Jóhann­es­sonar sem for­seti Íslands verður að flytja hátíð­ar­á­varp á Hinsegin dögum, eða Reykja­vík Pride. Hann ætlar að fljúga frá Dalvík, þar sem hann tekur þátt í Fiskideg­inum mikla, til þess að geta verið þátt­tak­andi í hátíð­inni. Frétt­irnar vöktu kannski ekki síður athygli vegna þess...

Mest lesið undanfarið ár