Flokkur

Leiðari

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hvernig verður Ísland 2.0?

„Ég segi bara, reynum að koma út úr þessu öllu saman með Ísland í upp­færslu 2.0.“ Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í apríl síð­ast­liðnum. Þar var hann að tala um þær efna­hags­legu aðgerðir sem grípa þurfi til vegna áhrifa kór­ónu­veirunnar hér­lendis. Þegar hann var spurður um það, í við­tali við Kjarnann í maí, hvernig þessi upp­færsla gæti verið...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Ofsóknir ger­enda sem telja sig fórn­ar­lömb

Frá 11. ágúst hefur staðið yfir ekk­ert sér­stak­lega fynd­inn farsi. Sá sem staðið hefur fyrir honum er alþjóð­legt stór­fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi, Samherji. Félag sem veltir tugum millj­arða króna á ári og er í eigu valda­mestu manna á Íslandi. Manna sem halda á, beint eða óbeint, um 17,1 pró­sent af úthlut­uðum afla á Íslandi, ráða stærsta skipa­fé­lagi lands­ins, eiga fast­eigna­fé­lag sem...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Áhrifa­vald­hafar og upp­lýs­inga­óreiða

Þann 30. júlí síð­ast­lið­inn til­kynnti Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi að á hádegi dag­inn eftir, 31. júlí, myndu hertar aðgerðir til að takast á við útbreiðslu kór­ónu­veiru taka gildi inn­an­lands og á landa­mærum. Til­kynn­ingin var mörgum Íslend­ingum, ef ekki flestum, þung­bær. Bæði vegna þess að hún var kynnt vegna aukn­ingar í greindum smitum en líka vegna þess að þjóðin hafði...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Stríðs­rekstur fyr­ir­tækis gegn nafn­greindu fólki og gagn­rýnum fjöl­miðlum

Til er hug­tak sem á ensku kall­ast corporate ter­r­orism. Á íslensku mætti það útleggj­ast sem hryðju­verka­starf­semi fyr­ir­tækja. Í henni fel­ast meðal ann­ars að fyr­ir­tæki brjóti lög til að hagn­ast, dreifi mis­vísandi áróðri og hræðslu­á­róðri, beiti stjórn­mála­menn þrýst­ingi eða greiði þeim mútur til að fá sínu fram. Til er annað hug­tak sem á ensku kall­ast corporate warfare, stríðs­rekstur fyr­ir­tækis. Í honum...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Það er komið að póli­tík­inni

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir sendi út skýr skila­boð um stöðu mála í íslensku sam­fé­lagi í við­tali í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 á þriðju­dag. „Ég hef stungið upp á því við stjórn­völd að settur verði á lagg­irnar sam­starfs­vett­vangur um hvernig við ætlum að hafa þetta næstu mán­uði og ár. Núna er þetta meira en bara sótt­varna­mál. Það eru fleiri sem þurfa að...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Rík­is­stjórn boðar aðför að fjöl­breyttri frjálsri fjöl­miðlun

Tilkynnt var um að nefnd sem ætti að skoða leiðir til að styrkja íslenskt fjöl­miðlaum­hverfi yrði skipuð í lok árs 2016. Und­ir­liggj­andi var að tryggja að gagn­rýnin umræða, aðhald, fjöl­breyttar skoð­anir og sjón­ar­mið, menn­ing­ar­leg fjöl­breytni og rann­sókn­ar­blaða­mennska – grund­völlur hvers lýð­ræð­is­rík­is – myndi eiga sér til­veru­grund­völl. Nefndin setti fram sjö til­lögur um umbætur sem gætu bætt rekstr­­ar­skil­yrði fjöl­miðla. Þær snéru...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Kerf­is­lægur ras­ismi sem drepur

Í jan­úar síð­ast­liðnum var aug­lýst til sölu stórt hús á rót­grónum stað mið­svæðis í Reykja­vík, Bræðra­borg­ar­stíg 1. Eigandi þess vildi fá 195 millj­ónir króna fyrir húsið, sem var byggt 1906 og er alls um 452 fer­metrar. Í aug­lýs­ingu sem birt­ist á fast­eigna­vef eins stærsta vef­mið­ils lands­ins sagði að um íbúðar- og atvinnu­hús­næði sé að ræða. Það skipt­ist í eitt atvinnu­rými,...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að hafa ranga skoðun á Íslandi

Fyrir rúmri viku birti Kjarninn frétt um að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefði gert fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu að afhenda tölvu­pósta um ein­stak­ling sem sótt­ist eftir því að verða rit­stjóri nor­ræns fræða­tíma­rits, og sagð­ist hafa fengið tölvu­póst sem stað­festi það. Ráðn­ingin var svo dregin til baka að kröfu íslenskra stjórn­valda. Ein­stak­ling­ur­inn taldi tölvu­póstana frá ráðu­neyt­inu hafa spillt fyrir sér, en ráðu­neytið sagði...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Gjörið svo vel, fáið ykkur þjóð­ar­eign

Árið 2018 var Samherja skipt upp í tvö félög: Samherja hf. og Samherja Holding. Skipt­ingin var nán­ast til helm­inga. Engin sér­stök skýr­ing var gefin á þess­ari aðgerð en innan íslenska stjórn­kerf­is­ins hafa verið uppi grun­semdir um að ástæð­una megi finna í því að Samherji vildi kom­ast hjá víð­tækri upp­lýs­inga­gjöf sem fylgir svo­kall­aðri ríki-fyrir-ríki skýrslu til rík­is­skatt­stjóra. Slíkri skýrslu þurfa fyr­ir­tæki...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Það sem við eigum ekki að fá að vita

Helsta lang­tíma­vanda­mál Íslands er skortur á trausti milli almenn­ings og helstu stofn­ana sam­fé­lags­ins, sem leiðir af sér skort á sam­heldni. Því miður sýna kann­anir það ár eftir ár að lítið hefur gengið að end­ur­heimta þetta traust eftir að það hvarf að mestu við síð­asta efna­hags­á­fall, síðla árs 2008. Sitjandi rík­is­stjórn ein­setti sér það að gera það að for­gangs­máli að end­ur­heimta...

Mest lesið undanfarið ár