Flokkur

Leiðari

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Barist í ást­lausu hjóna­bandi

Stundum er ill­skilj­an­legt að átta sig á því hvað dregur aðila í sam­band. Sér­stak­lega þegar þeir eru nán­ast full­komnar and­stæður, eiga enga aug­ljósa sam­leið og virð­ast í raun ekk­ert kunna neitt sér­stak­lega vel við hvorn annan. Þannig horfir sam­band þeirra flokka sem sitja saman í rík­is­stjórn Íslands við mörgum. Annar þeirra gefur sig út fyrir að vera frjáls­lyndur á meðan...
Leiðari

Ægir Þór Eysteinsson

Ekki veðja á breyt­ingar

Banda­ríska versl­ana­keðjan Costco ku hafa raun­veru­legan áhuga á að hasla sér völl á Íslandi. Fréttir af áhuga smá­söluris­ans fóru sem eldur um sinu í fjöl­miðlum lands­ins þegar af honum frétt­ist, enda renna margir hýru auga til auk­innar sam­keppni á smá­sölu­mark­aðnum hér á landi og meira frelsis í við­skiptum. Costco vill nefni­lega ekki bara selja okkur grill­aða kjúklinga, barbecue-sósur í tveggja...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Písl­ar­vottur á nýjum víg­velli?

Orku­bú­skapur heims­ins gengur nú í gegnum mestu breyt­ingar sem hann hefur staðið frammi fyrir frá iðn­bylt­ingu, sam­kvæmt skrifum sér­fræði­rita og orðum þeirra sem best þekkja til hér á landi. Breyt­ing­arnar fel­ast í nokkrum þáttum sem eru óað­skilj­an­legir. Í fyrsta lagi eru það sam­þykktir alþjóða­stofn­ana og rík­is­stjórna um að auka hlut­deild end­ur­nýj­an­legrar orku á kostnað ann­arra orku­gjafa, í öðru lagi þörf...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Litla Ísland

Hinn 9. febr­úar 2007 flutti Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, ræðu á mál­þingi í Danmörku sem var skipu­lagt af Dansk Industri. Tilefnið var, eins og svo oft á þessum tíma, að útskýra og lofa íslenska efna­hagsund­rið og útrás íslenskra yfir­burða­manna á sviði við­skipta. Á meðal ann­arra frum­mæl­anda voru Hannes Smárason, þá for­stjóri FL Group, og Sigurður Ein­ars­son, þá stjórnar­for­maður Kaup­þings...
Leiðari

Þórunn Elísabet Bogadóttir

Svarið við mis­rétti

Samkvæmt alþjóð­legum stöðlum eru Íslend­ingar bestir í jafn­rétti kynja. Við höfum staðið okkur best allra þegar saman er lagður árangur kvenna í stjórn­málum, þátt­taka í atvinnu­líf­inu, menntun, heil­brigð­is­þjón­usta og efna­hags­legur jöfn­uður. Alþjóða­efna­hags­ráðið segir að Ísland, Finnland, Noregur og Svíþjóð, sem skipa næstu sæti þessa jafn­rétt­is­lista, hafi náð að brúa rúm­lega 80 pró­sent af kynja­bil­inu. Þessi ríki hafa líka tekið frum­kvæði...
Leiðari

Ægir Þór Eysteinsson

Smellu­dólgs­læti og almenn leið­indi

Á Íslandi þrífst um margt ein­kenni­legt fjöl­miðla­lands­lag. Landslag sem ein­kenn­ist einna helst af kappi án for­sjár sem virkar oft og tíðum for­heimsk­andi og bein­línis skað­legt lýð­ræð­is­legri umræðu. Hér á landi er stærsta dag­blað­inu troðið ókeypis inn um bréfalúg­una hjá flestum heim­ilum lands­ins, og svo mik­ill er yfir­gang­ur­inn að hver sá sem ekki vill fá blaðið inn í for­stof­una sína þarf...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hvað á Ísland að verða þegar það er orðið stórt?

Það fel­ast mýmörg tæki­færi í því þegar heilt ríki skellur á botn­inum. Þaðan er besta við­spyrnan og mögu­legt verður að end­ur­hugsa allt planið upp á nýtt. Því miður hefur okkur Íslend­ingum ekki tek­ist nægj­an­lega vel að nýta þetta tæki­færi. Í stað þess að leggja upp með lang­tíma­á­ætlun um hvernig við getum orðið besti stað­ur­inn til að búa á fyrir sem...
Leiðari

Þórunn Elísabet Bogadóttir

For­gangs­röðun

Tæp vika er nú liðin frá því að vetr­inum lauk á Alþingi. Það má lík­lega slá því föstu að þessa fyrsta þingárs undir for­sæti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar verði í fram­tíð­inni fyrst og fremst minnst fyrir skulda­nið­ur­fell­ingar. Fá önnur mál verið sett í for­gang hjá stjórn­völdum á þessu fyrsta ári, nema kannski lækkun veiði­gjalda og mis­heppnuð til­raun til að draga til...
Leiðari

Ægir Þór Eysteinsson

Boðberi réttra við­horfa

Skeggj­aður maður í kjól rústaði Eurovision um síð­ustu helgi. Hann rústaði auð­vitað ekki keppn­inni bók­staf­lega, eða gjör­vallri Evrópu eins og hat­urs­menn hans full­yrða að sé í aðsigi, heldur vann hann söngvakeppn­ina með fádæma yfir­burðum. Hann var glæsi­legur, einkar vel til hafður, og söng sig­ur­lagið af stakri prýði, sem mér fannst reyndar ekki skemmti­legt lag. En það skiptir auð­vitað engu máli,...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Fórnir fyrir kom­andi kyn­slóðir

Eitt af því sem kalla mætti galla á því lýð­ræð­is­fyr­ir­komu­lagi sem við höfum komið okkur upp er inn­byggð skamm­sýni. Stjórn­mála­menn sækja sér umboð frá kjós­endum til fjög­urra ára í senn en það er ekki nóg til þess að gera var­an­legar og vel ígrund­aðar breyt­ingar. Mario Draghi, for­seti banka­ráðs Seðla­banka Evrópu, er stundum kall­aður mik­il­væg­asti stjórn­mála­maður Evrópu í erlendum fjöl­miðlum af...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Allt í steik

Þing á að klár­ast eftir rúmar tvær vikur. Í byrjun þess­arar viku biðu 110 laga­frum­vörp og 90 þings­á­lykt­un­ar­til­lögur afgreiðslu þings­ins. Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, stefnir ekki á að halda sum­ar­þing. Þingmenn þurfa nokk­urra mán­aða sum­ar­frí eftir páska­fríið sem þeir voru að koma úr. Á meðal þeirra mála sem enn á eftir að afgreiða eru lög um leið­rétt­ingu verð­tryggðra fast­eigna­veð­lána,...

Mest lesið undanfarið ár