Flokkur

Leiðari

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Ísland best í heimi? Seinni hluti

„Ég held að við höfum sofið fljót­andi að feigðar­ósi í þessum mála­flokki,“ sagði Guð­laugur Þór Þórð­ars­son þing­maður á Alþingi í vik­unni þegar fram fóru sér­stakar umræður um ungt fólk og fyrstu íbúð­ar­kaup þess. Þótt því beri að fagna að stjórn­mála­menn séu hættir að ein­beita sér að því að greiða hluta þjóð­ar­innar 80 millj­arða króna skaða­bætur fyrir verð­bólgu­skot úr rík­is­sjóði, og...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Þegar steypa er mótuð sem stað­reynd

Víglundur Þor­steins­son steig nýverið fram í þriðja sinn á rúmum þremur árum og sagði fyr­ir­tæki og heim­ili lands­ins hafa verið rænd um 300-400 millj­arða króna þegar samið var við kröfu­hafa Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans um end­ur­reisn íslenska banka­kerf­is­ins. Í þetta sinn voru settar fram ásak­anir um stór­felld brot á hegn­ing­ar­lögum og stjórn­ar­skrá, án þess að ásak­an­irnar væru reyndar studdar neinu...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Snúin staða á vinnu­mark­aði - Grafið undan við­ræð­unum?

Staðan á vinnu­mark­aði er snúin. Starfs­greina­sam­bandið (SGS) hefur þegar komið fram með kröfur sínar, meðal ann­ars um að lægstu laun hækki úr 214 þús­und í 300 þús­und, auk marg­svís­legra ann­arra atriða. Samtök atvinnu­lífs­ins telja þessar kröfur algjör­lega óraun­hæfar, og vilja ekki hefja samn­inga­við­ræður nema að slegið verði af kröfum. Þau ótt­ast óða­verð­bólgu og að hag­kerfið geti ekki staðið undir svo...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Ljótum póli­tískum leik Hönnu Birnu loks lokið

Í dag komst umboðs­maður Alþingis að þeirri nið­ur­stöðu að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrrum inn­an­rík­is­ráð­herra, hafi farið langt út fyrir vald­svið sitt þegar hún ákvað að reyna að hafa áhrif á lög­reglu­rann­sókn sem snéri að henni og aðstoð­ar­mönnum hennar. Lög­reglu­stjór­inn hafði áður lýst því fyrir umboðs­manni að Hanna Birna hafði ham­ast á honum, með sím­tölum, fund­ar­boðum og hót­unum. Erfitt er að...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Framsókn daðrar ekki lengur við ras­ista, heldur skipar þá í nefndir

Í gær skip­aði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn yfir­lýstan and­stæð­ing Islam og sam­kyn­hneigðra í Mann­réttinda­ráð Reykja­vík­ur­borgar. Maðurinn, Gústaf Níelsson, sagði í sam­tali við RÚV fyrr í dag að honum þætti sér­kenni­legt að Mann­réttinda­ráðið væri til. Það væri „ein­hvers­konar gervi­þörf sem vinstri­menn á Íslandi búa til“. Gústaf styður sam­tökin PEGIDA á Íslandi og spyr hvort það sé vondur félags­skapur. PEGIDA sam­tökin eru sam­tök fólks gegn...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Stjórn­mála­menn að sýsla með gögn bak við luktar dyr - Hvað hræð­ast þeir?

Árið 2006 stóð ég í stappi við Reykja­vík­ur­borg vegna gagna sem borgin bjó yfir um verð­mæti Lands­virkj­unar. Akur­eyr­ar­bær og Reykjvík­ur­borg voru þá að selja frá sér 45 pró­sent hlut í Lands­virkjun til rík­is­ins. Samhliða þeirri vinnu voru unnin verð­möt á fyr­ir­tæk­inu, þar sem grund­vall­ar­at­riði í verð­mat­inu voru raf­orku­sölu­samn­ingar Lands­virkj­unar við við­skipta­vini. Borgin neit­aði að afhenda gögnin, nema með því að...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Við erum öll Charlie...þegar það hentar

Atburð­irnir hræði­legu í París, sem hófust á því að ráð­ist var á höf­uð­stöðvar skop­mynda­blaðs­ins Charlie Hebdo á mið­viku­dag, hafa fyllt heims­byggð­ina óhug. Í þeim féllu alls 17 manns auk þess sem skot­markið var valið vegna efn­istaka þess. Því var árásin líka bein aðför að því mál- og tján­ing­ar­frelsi sem við teljum sjálf­sögð mann­rétt­indi. Að minnsta kosti þegar okkur hentar. Eftir...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Fífldjörf lán Deutsche Bank til Íslands draga dilk á eftir sér

Spólum rúman ára­tug aftur í tím­ann. Árið er 2004. Íslensk fyr­ir­tæki eru búin að mynda brú inn á alþjóð­lega fjár­mála­mark­aði sam­hliða til­tölu­lega nýhaf­inni útþenslu íslenska banka­kerf­is­ins með skulda­bréfa­út­gáfu erlendis. Alþjóð­legir fjár­mála­mark­aðir fljóta í ódýru fjár­magni eftir árás­irnar á tví­bura­t­urn­anna 11. sept­em­ber 2001 og aðgerðir seðla­banka heims­ins í kjöl­farið, og auð­velt er fyrir banka að útvega sér ódýrt lánsfé. Í þessum...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hent­ug­leika­blinda gagn­vart hinu aug­ljósa

Formaður og vara­for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis kvört­uðu sár­lega undan því í vik­unni að það gangi ekk­ert að skera niður. Hags­muna­öfl sem haldi utan um ein­staka hags­muni stofn­ana verji þær með kjafti og klóm og noti vilj­uga fjöl­miðla til þess. Vara­for­mað­ur­inn, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, kall­aði eftir banda­mönnum til að taka almenni­lega á málum svo hægt verði að ná niður vaxta­greiðslum rík­is­sjóðs, taka...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Tvær ósam­mála þjóðir saman í sam­fé­lagi

Íslend­ingar ríf­ast. Það er mjög íslenskt. Fólk hefur enda mis­mun­andi skoð­anir á því hvernig sam­fé­lag manna á að vera og í svona miklu návígi og fámenni eins og er hér­lendis þá er kannski eðli­legt að meira beri á þessu enda­lausa karpi en í stærri sam­fé­lögum. En hin skörpu skil sem virð­ast vera á milli þeirra með and­stæðar skoð­anir á sam­fé­lags­gerð­inni...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Svona felur þú eign­ar­hald á fjöl­miðli

Þegar Katrín Jak­obs­dóttir, þáver­andi mennta- og menn­inga­mála­ráð­herra, lagði fram frum­varp um lög um fjöl­miðla árið 2011 var skýrt hvert eitt meg­in­stefið í þeirri laga­setn­ingu átti að vera. Gagnsæi ætti að ríkja um eign­ar­hald á fjöl­miðlum. Þetta átti að nást fram með því að öllum fjöl­miðlum væri gert skylt að senda fjöl­miðla­nefnd, rík­is­stofnun sem sett var á fót til að fram­fylgja...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Svona er staðan þegar froðan er þrifin af

Í nóv­em­ber var haldin flug­elda­sýn­ing í Hörpu þar sem sýnt var á nokkrum glærum hversu frá­bær hug­mynd milli­færsla á 80 millj­örðum króna úr vasa allra í vasa sumra væri. Í kjöl­farið var nán­ast sama greinin um gæði þess­arra aðgerða skrifuð í blöðin og tveir til þrír þing­menn Fram­sóknar látnir kvitta undir í hvert sinn. Sjálf­stæð­is­menn hafa mest megnis bara skamm­ast...

Mest lesið undanfarið ár