Flokkur

Leiðari

Leiðari

Magnús Halldórsson

Fjár­mála­þjón­usta við almenn­ing í nýjum og gömlum far­vegi

Á örskömmum tíma hefur fjár­mála­geir­inn á Íslandi breyst, og lent svo til allur í fang­inu á íslenska rík­inu. Upp­gjörið við slita­búin, á grunni samn­ings­stöð­unnar sem neyð­ar­lögin og fjár­magns­höftin sköp­uðu, er stærsta ástæðan. Ríkið á nú rúm­lega 98 pró­sent hlut í Lands­bank­anum, stærsta banka Íslands, allt hlutafé Íslands­banka, Íbúða­lána­sjóð, Byggða­stofnun, LÍN, 13 pró­sent hlut í Arion banka og auk þess smærri...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Engar áhyggjur af speki­lek­anum?

Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hafa tæp­lega átta þús­und fleiri Íslend­ingar flutt úr landi en til þess frá árinu 2009. Þetta eru slá­andi tölur, sé mið tekið af því að aðeins 334 þús­und manns búa á Íslandi. Þrátt fyrir að hag­töl­urnar sýni mik­inn efna­hags­legan upp­gang, og almennt ágæta stöðu, þá ættu þessar upp­lýs­ingar að vekja umtal um nokkur atriði. 1. Hvers...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Varð­staða um kerf­is­breyt­ingar

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, varð um helg­ina fyrstur stjórn­mála­leið­toga til að opin­bera áherslur síns flokks í kosn­ing­unum sem fyr­ir­hug­aðar eru í októ­ber. Í þætt­inum Sprengisandi sagði hann að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi í fyrsta lagi beita sér fyrir áfram­hald­andi stöð­ug­leika í land­inu og að ríkið yrði rekið með ábyrgum hætti. Það yrði einnig passað upp á að kerfum yrði ekki koll­varpað og...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að halda sig lausn­ina en vera vanda­málið

Ólafur Ragnar Grímsson er engum líkur. Þótt hann sé slyngur stjórn­mála­maður af gamla skól­anum þá fækkar þeim alltaf sem falla fyrir leik­þáttum hans, sem snú­ast oftar en ekki um að blása upp mik­il­vægi sinnar per­sónu fyrir land og þjóð í skrúð­mælg­is­flóði þar sem for­set­inn talar um sjálfan sig í þriðju per­sónu. Með greini. Nú er Ólafur Ragnar þó í vanda....
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Þess vegna er þetta mik­il­vægt

Nú er mikið rætt um hin svoköll­uðu Panama­skjöl. Fréttir úr þeim valda miklum titr­ingi og við­brögð við birt­ingu gagn­anna hafa sum hver verið gríð­ar­leg. Þau sterk­ustu voru fjöl­menn­ustu mót­mæli Íslands­sög­unnar sem fram fóru 4. apríl síð­ast­lið­inn, þegar á þriðja tug þús­und Íslend­inga söfn­uð­ust saman í kringum Alþing­is­húsið. Ástæðan var opin­berun á aflands­fé­laga­eign æðstu ráða­manna þjóð­ar­innar í sér­stökum Kast­ljós­þætti deg­inum áður....
Leiðari

Magnús Halldórsson

Hin fína lína

Framundan eru tveir kosn­inga­slagir. Fyrst um emb­ætti for­seta Íslands í júní og síðan í haust, á tíma sem ekki hefur verið ákveð­inn ennþá, verður kosið til Alþingis. Per­sónu­legur örygg­is­vent­ill Spenn­andi tímar í lífi þjóð­ar­innar og lýð­ræðið í sinni tær­ustu mynd. Ólafur Ragnar gerði fram­bjóð­endum lífið leitt með því að hætta við að hætta sem for­seti, og sæk­ist eftir end­ur­kjöri. Þetta...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Þess vegna er traustið horfið

Það virð­ast margir spyrja sig að því hvað það var nákvæm­lega sem gerði það að verkum að á þriðja tug þús­und manns mættu og mót­mæltu á Aust­ur­velli mánu­dag­inn 4. apríl. Mótmæli sem gáfu atburða­rás kraft sem leiddi til þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hrökkl­að­ist úr stóli for­sæt­is­ráð­herra og nokk­urs konar ný rík­is­stjórn var mynduð á gömlum merg. Margar ástæður eru...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Stjórn­mála­menn nið­ur­lægja Ísland

Rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar ætti að hafa aðeins eitt verk­efni, eftir að upp komst um trún­að­ar­brot Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar gagn­vart þingi og þjóð. Hann hélt leyndri til­vist félags­ins Wintris Inc., á Tortóla, sem lýsti um 500 millj­óna króna kröfu í bú föllnu bank­anna þegar hann átti helm­ing í félag­inu fram að ára­mótum 2009, og lýsti kröfum í bú bank­anna fyrir...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Ég, Sig­mundur

Það er ótrú­leg staða uppi á Íslandi. For­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar hóf dag­inn á því að lýsa því yfir að til­vera rík­is­stjórn­ar­innar héngi ekki á blá­þræði. Nokkrum klukku­tímum síðar reyndi hann að sækja sér umboð til að rjúfa þing án þess að ræða við eigin þing­flokk. Án þess að ræða við sam­starfs­flokk sinn í rík­is­stjórn. Eða svo segir for­seti þjóð­ar­innar að minnsta...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Ótrú­legur óheið­ar­leiki

Í þriðja sinn á sjö og hálfu ári er Ísland fyrsta frétt í heims­press­unni. Fyrst var það alls­herj­ar­banka­hrun. Síðan var það gosið í Eyja­fjalla­jökli sem lam­aði flug­sam­göngur í Evrópu. Og nú eru það fréttir af aflands­fé­laga­eign Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Í flestum stærstu fjöl­miðlum heims er verið að greina frá, eða sýna mynd­bönd af, því þegar for­sæt­is­ráð­herra Íslands lýgur um...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Salt í sárin

Eftir að rann­sókn­ar­blaða­menn frá ICIJ og Reykja­vík Media ehf., þar sem Jóhannes Kr. Krist­jáns­son er í for­svari, köll­uðu fram opin­berun á því að eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra geymdi sparnað upp á rúm­lega millj­arð króna í félagi á Bresku jóm­frú­areyj­unum, sem er þekkt skatta­skjól, þá hefur teikn­ast upp ný staða í íslenskum stjórn­málum. For­sæt­is­ráð­herra­hjónin skýrðu frá mál­inu eftir að blaða­menn­irnir voru komnir með...

Mest lesið undanfarið ár