Flokkur

Leiðari

Leiðari

Jónas Atli Gunnarsson

Dellu­kenn­ingar og hús­næð­is­verð

Í síð­ustu viku birti Við­skipta­blaðið nafn­lausan pist­ill undir dul­nefn­inu „Óðinn“, þar sem því var enn og aftur haldið fram að skortur á bygg­ing­ar­lóðum í Reykja­vík væri meg­in­skýr­ingin á hækk­andi fast­eigna­verði . Enn fremur voru ummæli Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra um að hækk­an­irnar hafi fyrst og fremst verið vegna lágra vaxta afskrifuð sem „dellu­kenn­ing“, þar sem verð haldi áfram að hækka...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hin tak­mark­aða þjóð sem skilur ekki stóru stráka leik­ina

Í Morg­un­blað­inu í fyrra­dag birti Andrés Magn­ús­son, rit­stjórn­ar­full­trúi blaðs­ins sem hefur starfað fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í mörgum af síð­ustu kosn­inga­bar­áttum hans, svo­kallað Baksvið þar sem hann fjallar um póli­tísk áhrif sölu á 22,5 pró­sent rík­is­ins í Íslands­banka. Þar sagði meðal ann­ars að „innan Vinstri grænna og Fram­sóknar hafa sumir rætt um það, að reyn­ist nið­ur­staða rík­is­end­ur­skoð­anda fjár­mála­ráð­herra óhag­stæð, sé núver­andi sam­starfi...
Leiðari

Bára Huld Beck

Halló, 112. Hann er í bak­arí­inu!

Fordómar hafa ýmsar birt­ing­ar­myndir. Þeir geta lýst sér í ágengri hegðun gagn­vart fólki, þeir geta lýst sér í úti­lokun ein­stak­lings­ins sem um ræðir og þeir geta komið fram í svoköll­uðu öráreiti. Flestir skilja þegar talað er um aug­ljósa for­dóma; þá sem engum dylst að eigi sér stað – að mann­eskja með dökka húð eða „öðru­vísi“ útlit verði fyrir aðkasti og...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Skjólið í hand­ar­krika arms­lengdar

Fyrir tæpum mán­uði var seldur hlutur rík­is­ins í Íslands­banka með hætti sem allt bendir til að stand­ist ekki frek­ari skoðun. Um var að ræða lokað útboð með svo­kall­aðri til­boðs­leið þar sem 207 fjár­festar fengu að kaupa 22,5 pró­sent hlut með 2,25 millj­arða króna afslætti af mark­aðsvirði. Hópurinn sem fékk að kaupa inni­hélt meðal ann­ars starfs­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa, litla fjár­festa...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að leggja sjálf­stætt mat á það sem almenn­ingur má fá að vita

Á árunum 2002 og 2003 voru seldir kjöl­festu­hlutar í rík­is­bönkum með hætti sem hefur ekki stað­ist frek­ari skoðun, svo vægt sé til orða tekið. Fjöl­miðlar reyndu mjög að nálg­ast upp­lýs­ingar um það einka­væð­ing­ar­ferli, svo sem fund­ar­gerðir einka­væð­ing­ar­nefndar og önnur gögn úr sölu­ferl­inu. Blaða­manni á Frétta­blað­inu var synjað um slíkan aðgang árið 2005. Sú nið­ur­staða var kærð til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Fávit­arnir og þeir sem græða pen­ing­inn

Það er öllum ljóst að staðan á stjórn­ar­heim­il­inu er þung. Hún hefur aldrei verið þyngri. Rík­is­stjórn sem hvílir að mestu á góðu vinnu­sam­bandi og trausti milli Katrínar Jak­obs­dóttur og Bjarna Bene­dikts­sonar glímir nú við mikil inn­an­mein og ósætti. Hingað til hefur að mestu tek­ist að halda því ósætti inn­an­húss. Svo er ekki lengur. Banka­salan, sem allir nema for­stjóri Banka­sýsl­unnar, þeir...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Tilraun til að tak­marka tján­ing­ar­frelsi blaða­manna

Þann 14. febr­úar síð­ast­lið­inn fengu fjórir blaða­menn til­kynn­ingu um að þeir hefðu stöðu sak­born­ings við rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra. Tveir þeirra, höf­undur þess­arar greinar og sam­starfs­maður hans, eru á meðal þeirra. [links]Á þeim rúmu sjö vikum sem liðnar eru frá þess­ari til­kynn­ingu hefur málið skýrst umtals­vert, sér­stak­lega þar sem einn hinna meintu sak­born­inga lét reyna á rétt lög­reglu til...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hvað eiga rasísk ummæli, póli­tísk hrossa­kaup og afsláttur á rík­is­eign sam­eig­in­legt?

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, er í vand­ræðum. Hann við­hafði rasísk ummæli við Vigdísi Häsler, fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna á fimmtu­dag þegar hann vís­aði til hennar sem „þeirrar svörtu“. Fregnir herma líka að hann hafi kallað Vígdísi „stelpu“, en Vigdís er fer­tug. Sigurður Ingi hefur reyndar ekki viljað end­ur­taka hvað hann sagði nákvæm­lega og ekki útskýrt af hverju aðstoð­ar­maður hans...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Af hverju mega stærstu eig­endur banka ekki fá að vita hverjir fengu að kaupa með afslætti?

Fyrir skemmstu var eign almenn­ings í Íslands­banka seld. Um var að ræða afar afdrifa­ríka aðgerð. Ríkið var að selja svo stóran hlut að það er ekki lengur meiri­hluta­eig­andi í bank­anum. Það þýðir að aðrir hlut­hafar geta tekið sig saman og stýrt bank­anum þangað sem þeir vilja, án þess að ríkið geti rönd við reist, svo lengi sem ákvarð­an­irnar eru í...
Leiðari

Bára Huld Beck

Að tala með rass­inum

Íslenskt sam­fé­lag stendur frammi fyrir mik­il­vægum og stórum ákvörð­unum varð­andi orku­skipti og lofts­lags- og umhverf­is­mál. Í slíkum aðstæðum er nauð­syn­legt að djúp umræða eigi sér stað – ekki síst með heild­ar­hags­mun­ina í huga. Þess vegna er áhuga­vert að fylgj­ast með máls­met­andi fólki tjá sig um mál­efnið, sem og almenn­ingi í ræðu og riti, hvort sem það er á sam­fé­lags­miðlum eða...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Þetta er Ísland rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur

Árið 2014 var tekin póli­tísk ákvörðun um að breyta stuðn­ings­kerfi þeirra heim­ila sem voru með hús­næð­is­lán á Íslandi. Í hröðum en öruggum skrefum myndi vaxta­bóta­kerfið, sem miðl­aði fjár­munum úr rík­is­sjóði til tekju­lágra og þeirra sem voru að koma undir sig fót­unum, hverfa og nýtt kerfi skatt­afsláttar taka við. [links]Það fól í sér að allir tekju­hópar sem söfn­uðu í sér­eign­ar­sparnað gátu...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Stjórn­mála­menn sem eru log­andi hræddir við „ósmekk­legan“ þjóð­ar­vilja

Fyrir viku var á það bent á þessum vett­vangi að svo­kall­aður póli­tískur ómögu­leiki gagn­vart frek­ari þátt­töku Íslands í alþjóða­sam­starfi með aðild að Evr­ópu­sam­band­inu væri dauður. Ástæða skrif­anna var ný könnun Gallup sem sýndi fram á stór­aukin stuðn­ing þjóð­ar­innar við slíkt skref. Alls 47 pró­sent lands­manna styðja nú aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu en ein­ungis 33 pró­sent eru henni mót­falln­ir. Þetta er...

Mest lesið undanfarið ár