Flokkur

Leiðari

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Lýð­heilsu­leg hræsni

Nefnd um bætt rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla skil­aði af sér skýrslu í lok jan­úar síð­ast­lið­inn. Ein til­laga hennar var sú að áfeng­is- og tóbaks­aug­lýs­ingar verði heim­il­að­ar í íslenskum fjöl­miðlum. Til við­bótar mætti bæta að eðli­legt væri að leyfa aug­lýs­ingar frá veð­mála­fyr­ir­tækj­um. Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sagði í vik­unni að til­lagan væri til skoð­unar í ráðu­neyti hennar. Það þurfi þó...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Ísland er dýrt en fullt af tæki­færum

Und­an­farna tvo daga hafa almenn­ingi birst yfir­grips­miklar upp­lýs­ingar um stöðu efna­hags­mála. Fyrst í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur, fyrir árin 2019 til 2023, og síðan í ræðum Þórunnar Guð­munds­dóttur, for­manns banka­ráðs Seðla­banka Íslands, Más Guð­munds­sonar, seðla­banka­stjóra, og Katrínar Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra, á 56. aðal­fundi bank­ans í dag. Hag­vöxtur hefur verið kraft­mik­ill und­an­farin ár (3,7 pró­sent í fyrra), hækkun hús­næð­is­verðs nær for­dæma­laus hvert...
Leiðari

Fanney Birna Jónsdóttir

Trúum á heilaga bíla

Það sem af er ári hefur svifryk í Reykja­vík farið ítrekað yfir sól­ar­hrings­heilsu­m­örk. Við­var­anir hafa verið sendar út af hálfu borg­ar­yf­ir­valda til barna og fólks með önd­un­ar­færa­sjúk­dóma að halda sig inni við, eða í það minnsta fjarri umferð­ar­æðum. Í fyrra voru það sautján dagar sem meng­unin fór yfir mörkin. Þessi litla borg, sem nýtir end­ur­nýj­an­lega orku til að hita upp...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Hvað með Coventry? Eða Vest­manna­eyjar?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur náð að losa sig við nær alla gagn­rýna umræðu um gjald­miðla­mál. Þetta varð ljóst á vel heppn­uðum 43. lands­fundi flokks­ins um liðna helgi, þar sem for­ysta flokks­ins, með Bjarna Bene­dikts­son í broddi fylk­ingar, fékk afar skýrt umboð flokks­manna til að leiða flokk­inn áfram. Það eru líka nokkur tíð­indi, að meira en 93 pró­sent flokks­ins fylki sér að baki...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Frjáls­lyndi án inni­stæðu

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, starf­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þing­maður, skrif­aði grein í Morg­un­blaðið í gær sem er fyrst og síð­ast ætlað að vera skot á Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, fyrr­ver­andi vara­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi for­mann Við­reisnar. Það sem truflar Áslaugu Örnu, og raunar ansi marga Sjálf­stæð­is­menn, er sú til­hneig­ing klofn­ings­flokks­ins að slá um sig með yfir­lýs­ingum um frjáls­lyndi, vilja til kerf­is­breyt­inga og...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Sam­vinnu­hug­sjónin í takt við nútím­ann

Flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins er nýaf­staðið og það gefur til­efni til að velta því fyrir sér hvort greina megi gamlar rætur flokks­ins - sam­vinnu- og sjálf­bærni­hug­sjón­ina - í stefnu flokks­ins, og hvernig hún birt­ist okkur í nútím­anum. Forysta flokks­ins, með ráð­herrana Sigurð Inga Jóhanns­son sem for­mann og Lilju Dögg Alfreðs­dóttur sem vara­for­mann, finnst mér vera sterkt póli­tískt teymi, þó alltaf megi deila...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Rík­is­stjórn Sigríðar Á. Andersen

Það kom fáum á óvart að van­traust­s­til­laga á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hafi verið felld í atkvæða­greiðslu í þing­inu í lið­inni viku. Enda var það lík­ast til ekki til­gangur þeirra sem lögðu fram til­lög­una. Hann var mun frekar sá að láta Vinstri græn enn og aftur, og hvern þing­mann flokks­ins fyrir sig, stíga fram að verja ráð­herra sem framið hafði...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Opið og frjálst, ekki lokað og heft

Frjáls við­skipti milli landa og alþjóða­væddur heimur við­skipta er grund­völlur fyrir lífs­kjara­bæt­ingu um allan heim síð­ustu ára­tugi. Það er svo til óum­deilt, en þrátt fyrir böl­móð - ekki síst hjá okkur fjöl­miðla­fólki í umfjöll­unum frá degi til dags - þá lifum við á spenn­andi tímum og aldrei hefur verið meiri frið­sæld í heim­inum, heilt á litið. Skelf­ing­ar­stríðin hluti af til­ver­unni...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Sjálf­taka stuðlar að stétta­stríði

Því fylgir mikil ábyrgð og vald að vera treyst fyrir opin­beru fé. Þá ábyrgð á að taka alvar­lega. Ýmislegt sem opin­berað hefur verið síð­ustu vikur sýnir að því miður er mjög mis­farið með það vald. Kjarninn hefur und­an­farna daga greint frá því að stjórnir fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins hafi hækkað laun æðstu stjórn­enda sinna um tugi pró­senta á seinni hluta...
Leiðari

Fanney Birna Jónsdóttir

Til hvers eru Píratar?

Stefna Pírata hefur verið gagn­rýnd frá upp­hafi, eða öllu heldur meint stefnu­leysi þeirra. Það er enda stundum erfitt að skil­greina flokk­inn hvort heldur sem er til hægri eða vinstri. Oft og tíðum virð­ast mál þing­manna þeirra jaðra við að vera hrein­ræktuð frjáls­hyggju­mál en ekki sjaldnar má í mál­flutn­ingi þeirra greina mjög sterk sós­íal­ísk gildi. Hún er líka rugl­ings­leg saga flokks­ins...

Mest lesið undanfarið ár