Flokkur

Leiðari

Leiðari

Magnús Halldórsson

Ennþá of stórir til að falla

Stjórn­völd eru nú komin með það á stefnu­skrána að selja banka. Töluvert er síðan það gerð­ist, því þegar grannt er skoðað, þá hafa rík­is­stjórnir talað fyrir því að minnka umfang rík­is­ins á fjár­mála­mark­aði alveg frá því Ísland var komið út úr verstu vand­ræð­unum, í kjöl­far hruns­ins. Ríkið á Íslands­banka, Lands­bank­ann að nær öllu leyti (rúm­lega 98 pró­sent), Byggða­stofnun, LÍN og...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Gott orð­spor

Eitt af síð­ustu verkum Alþingis fyrir jóla­frí var að afgreiða frum­varp um breyt­ingar á lögum vegna afnáms ákvæða um upp­reist æru. Ástæðan fyrir því að ráð­ist var í þessar breyt­ingar ætti að vera öllum aug­ljós: Uppreist æru fyr­ir­komu­lagið, með sitt hulda fyr­ir­greiðslu­form þar sem áhrifa­menn í sam­fé­lag­inu kvitt­uðu upp á synda­af­lausnir fyrir dæmda glæpa­menn, var aug­ljós­lega ekki boð­legt í nútíma­sam­fé­lagi....
Leiðari

Magnús Halldórsson

Aðkoman

Mikið er rætt um það þessi miss­erin að aðkoma stjórn­valda að samn­ingum milli atvinnu­rek­enda og stétt­ar­fé­laga starfs­manna sé nauð­syn­leg til að tryggja far­sæla nið­ur­stöðu. Fyrir liggur að him­inn og haf eru á milli krafna stétt­ar­fé­lag­anna og for­ystu ASÍ, og síðan mats Samtaka atvinnu­lífs­ins á svig­rúmi til launa­hækk­ana. Að mati þeirra sem aðild eiga að SA þá er matið, sam­kvæmt könn­unum...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Ísland í ein­stakri stöðu

Nú þegar nýtt ár, 2019, er að hefj­ast er gott að minna á það að Ísland er í ein­stakri efna­hags­legri stöðu meðal þró­aðra ríkja í heim­inum. Rúmlega ára­tug eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, beit­ingu neyð­ar­laga og setn­ingu fjár­magns­hafta, stendur rík­is­sjóður traustum fótum, og stoðir hag­kerf­is­ins hafa aldrei verið sterk­ari í sögu lands­ins. Skulda­staðan við útlönd hefur aldrei verið betri. Samkvæmt bráða­birgða­yf­ir­liti sem...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Jóla­gjöfin í ár er betri inn­viðir

Það var gleði­legt að sjá það, að Vaðla­heið­ar­göngin hafa verið opnuð fyrir umferð. Þau umbylta sam­göngum á efna­hags­lega mik­il­vægu svæði fyrir landið allt. Göngin snú­ast ekki um að stytta ferða­tíma um mín­útur til eða frá, heldur gætir áhrifa þeirra með mun djúp­stæð­ari hætti. Þetta sýnir saga sam­göngu­bóta í land­inu. Norður- og Aust­ur­land hafa á und­an­förnum árum gengið í gegnum miklar...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Sjálf­sögð íbúa­kosn­ing

Arion banki á félagið Stakks­berg ehf. sem heldur á eft­i­stöðvum kísi­verk­smiðj­unnar í Helguvík, eftir að United Silicon fór á haus­inn. Aðstand­endur kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík undir merkjum United Silicon reynd­ust ekki trausts­ins verðir, og höfðu hvorki reynslu, þekk­ingu eða nægi­lega fjár­muni til að ráð­ast í verk­efnið. Þetta kom í ljós þegar raun­veru­leik­inn skall á, nokkrum mán­uðum eftir að verk­smiðjan átti að...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Sig­mundur Davíð mun aldrei hætta

Panama­skjölin eru stærsti póli­tíski skandall Íslands­sög­unnar. Í kjöl­far þeirra neydd­ist for­sæt­is­ráð­herr­ann Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sem hafði verið opin­ber­aður í skjöl­unum sem kröfu­hafi í bú föllnu bank­anna og aflands­fé­laga­eig­andi, til að segja af sér. Í könnun sem MMR gerði í kjöl­far þeirra sögð­ust 81 pró­sent lands­manna ekki treysta Sigmundi Davíð. Í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar sem gerð var á þeim tíma sem leið...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Einu skrefi framar

Það voru raðir á öllum sjúkra­húsum. Fólk safn­að­ist saman þar. Það var hrætt. Fáir voru á ferli, aðrir en fjöl­mennt lið varð­sveita Washington ríkis. Það gekk skipu­lega eftir göt­unum með hvítar grímur fyrir munni og nefi. Dr. J. S. McBride, yfir­maður heil­brigð­is­þjón­ustu í Washington ríki, var eins og hers­höfð­ingi í þessum aðstæðum, ásamt Dr. J. R. Gil­len­dal, yfir­manni heil­brigð­is­mála í...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Þetta er ekki spill­ing, þetta er menn­ing

Í gær birti for­sætis­nefnd Alþingis þá nið­ur­stöðu sína að ekk­ert sé athuga­vert við það þegar þing­menn fái end­ur­greiðslu úr sam­eig­in­legum sjóðum vegna keyrslu sem þeir ráð­ast í þegar þeir sinna próf­kjörs­bar­áttu. Það er líka nið­ur­staða for­sætis­nefndar að þeir megi rukka Alþingi fyrir kostnað vegna keyrslu í kosn­inga­bar­áttu. Svo ekki sé minnst á það ef þeir þurfi að sækja afmæli eða...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Tölum um Noreg

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms- og mennta­mála­ráð­herra og áhrifa­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum í ára­tugi, hefur á und­an­förnum vikum og mán­uðum tjáð sig afdrátt­ar­laust um þriðja orku­pakk­ann svo­nefnda. Í stuttu máli segir hann marga efa­semda­menn vera að mis­skilja málið og að ekki þurfi að ótt­ast það að Ísland fram­selji full­veldi eða eign­ar­hald yfir orku­auð­lindum lands­ins, með því að taka 3. orku­pakk­ann upp í...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Konur að taka sér pláss

Fyrir rúmu ári síðan, nánar til­tekið 28. októ­ber 2017, fóru fram Alþing­is­kosn­ingar. Það má segja að sig­ur­veg­arar þeirra kosn­inga hafi verið karlar. Sér­stak­lega mið­aldra karlar. Þegar kosið var í lok októ­ber 2016, ein­ungis einu ári áður, náðu 30 konur kjöri til Alþingis og hlut­fall kvenna á meðal þing­manna varð 47,6 pró­sent. Það hafði aldrei verið hærra. [links]Í októ­ber 2017 fækk­aði...

Mest lesið undanfarið ár