Flokkur

Leiðari

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Við þurfum að velja hvernig sam­fé­lag við viljum vera

„Hér á landi tíðkast það ekki að spill­ing birt­ist í því að sterkir sér­hags­muna­að­ilar nái tang­ar­haldi á stjórn­völdum og hafi áhrif á þau með við­brögðum sínum við ein­stökum ákvörð­unum.“ Þetta sögðu Samtök atvinnu­lífs­ins í umsögn um frum­varp sem fjall­aði meðal ann­ars um skrán­ingu hags­muna­gæslu­að­ila þegar það lá frammi í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Þessi fram­setn­ing sam­tak­anna er svo fjar­stæðu­kennd í ljósi opin­ber­ana...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Íslenska kerfið sem bjó til skipu­lagða glæp­a­starf­semi

Ísland er í dag einna þekkt­ast í útlöndum fyrir spill­ingu. Það er ein­fald­lega stað­reynd. Fyrir að hafa leyft banka­manna­stóði að fyrst blása upp og svo tæma banka­kerfi að innan með blekk­ingum og lög­brotum með gríð­ar­legum afleið­ingum fyrir almenn­ing í land­inu. Fyrir að vera heims­meist­arar í aflands­fé­laga­eign í skatta­skjólum – sem er ein­vörð­ungu til þess að fela pen­inga frá rétt­mætum eig­endum...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Og hvað svo?

Nýlega var kynnt nýsköp­un­ar­stefna fyrir Ísland. Guð­mundur Haf­steins­son, frum­kvöð­ull, leiddi vinnu stýri­hóps Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ráð­herra nýsköp­un­ar­mála, sem skil­aði af sér skýrslu um mál­efnin. Ólíkt mörgum öðrum skýrslum á vegum hins opin­bera þá finnst mér þessi skýrsla vera afar aðgengi­leg og rammar vel inn hlut­verk nýsköp­unar í sam­fé­lag­inu. Hún boðar ekki sér­tækar lausnir en teiknar upp áskor­an­irnar sem Ísland...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Seðla­bank­inn sem villt­ist af leið

Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Íslands, skrifar grein sem birt var á Kjarn­anum síð­degis í gær. Þar gerir hann athuga­semdir við það orða­lag að svokölluð fjár­fest­inga­leið, sem Seðla­banki Íslands bauð upp á milli 2012 til 2015, hefði verið opin­ber pen­inga­þvætt­is­leið. Már vísar sér­stak­lega í leið­ara sem birt­ist hér á þessum vett­vangi 21. októ­ber 2019 vegna orða fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Það er ekki ósmekk­legt að segja satt

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að það sé ósmekk­legt að kalla fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands opin­bera pen­inga­þvætt­is­leið, eins og und­ir­rit­aður hefur gert. Ráð­herr­ann segir, í sam­tali við mbl.is, að það sé „ósmekk­legt að segja að þetta hafi verið op­in­ber pen­inga­þvætt­is­leið, eins og sér­stak­lega hafi verið hvatt til þess, en ég tek öll­um ábend­ing­um af al­vöru ef að ekki hef­ur verið...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Þögnin hættu­legri

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri og Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði sem sæti á í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, komu á dög­unum fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis. Á fund­inum ákvað Gylfi Zoega að tjá sig um vanda­málin hjá ferða­þjón­ust­unni og Icelandair, sem eru mikil og alvar­leg þessi miss­erin. Um vanda Icelandair sagði hann meðal ann­ars: „Hvenær verður eigið fé þar komið á hættu­legt...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Ríkið sem vildi ekki sjá pen­inga­þvættið heima hjá sér

Svo virð­ist sem að íslenskur stjórn­mála- og fjár­mála­heimur sé að vakna skyndi­lega upp við þann vonda draum að á morgun verði Ísland mögu­lega komið á lista með ríkjum sem við viljum aldrei kenna okkur við. Ástæðan er sú að árum saman brást Ísland ekki við kröfum Financial Action Task Force (FATF) um hvernig vörnum gegn pen­inga­þvætti skyldi háttað. Raunar gerðum...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Ofur­stéttin sem er að eign­ast Ísland

Ein mik­il­væg­asta stoðin undir íslensku efna­hags­lífi er sjáv­ar­út­vegur. Hann hefur átt for­dæma­laust góð­ær­is­skeið síð­ast­lið­inn ára­tug. Í lok síð­asta árs áttu íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eigið fé upp á 276 millj­arða króna. Frá hruni hefur eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna batnað um 355 millj­arða króna. [links]Alls greiddu fyr­ir­tækin sér arð upp á 12,3 millj­arða króna í fyrra. Frá árinu 2010 hafa þau greitt 92,5 millj­arða króna...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Tolla­stríð versti óvin­ur­inn

Tolla­stríð Banda­ríkj­anna og Kínverja - og síðan einnig Evrópu - eru mikið áhyggju­efni fyrir Ísland. Ástæðan er ekki aðeins að allir tapi á tolla­stríðum að lokum, vegna nei­kvæðra áhrifa á hag­vöxt og lífs­kjör, heldur einnig af því að það getur verið erfitt að spila rétt úr varn­ar­leiknum. Hvernig birt­ist tolla­stríðið á Íslandi? Í fyrsta lagi er endu­nýj­aður áhugi Banda­ríkj­anna á...

Mest lesið undanfarið ár