Flokkur

Launamál

Úttekt

Stjórn­mála­menn hækka laun sín langt umfram almenn­ing

Á sama tíma og þing­menn hafa hækkað langt umfram almenn­ing í launum fara þeir fram á að almenn­ingur stilli kröfum sínum um kjara­bætur í hóf. Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra sagði að laun þing­manna hefðu verið „leið­rétt“ með gríð­ar­legri hækkun þeirra, en þeir hafa hækkað um 26,7 pró­sentu­stigum meira en almenn­ingur á tíu árum. Sátt á vinnu­mark­aði er eitt af fjórum megin hag­stjórn­ar­mark­miðum rík­is­stjórn­ar­innar.
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Ótti og grátur eftir störf á far­fugla­heim­ili á Selfossi

Sumarið 2014 voru tvær pólskar konur ráðnar í starf á Far­fugla­heim­il­inu á Selfossi. Himinn og haf var á milli þess hvernig starfið var aug­lýst og hvernig það var í raun. Vinnu­tími var mun lengri, frí var mun minna, matur var ekki inni­fal­inn og laun ekki greidd. Með hjálp stétt­ar­fé­lags­ins Bárunnar tókst þeim að flýja og sækja þau laun sem þau áttu inni. Eigandi far­fugla­heim­il­is­ins segir málið vera upp­spuna og vísar í reglur sem ekki eru til.

10 mín. lestur

RannsóknRéttindabrot á vinnumarkaði

Skugga­hlið ferða­mennsk­unnar: Draum­ur­inn á Íslandi breyt­ist í martröð

„Mér fannst eins og það væri komið fram við mig sem þræl úr þriðja heims landi,“ segir kona frá Póllandi um reynslu sína af því að starfa í ferða­þjón­ustu á Íslandi. Með örum vexti ferða­manna­iðn­aðar á Íslandi hafa skap­ast kjörnar aðstæður fyrir brot þar sem vinnu­veit­endur nýta sér van­þekk­ingu erlendra starfs­manna.

23 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár