Aðili

Læknastöðin

Greinar

ÚttektEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu: Einn fimmti hluti greiðslna frá rík­inu tek­inn út sem arður

Einka­rekin mynd­grein­ing­ar­fyr­ir­tæki á sviði lækn­is­fræði eru meðal arð­bær­ustu fyr­ir­tækj­anna í heibrigð­is­geir­anum. Tvö þeirra skila drjúgum hagn­aði og geta greitt út tug­millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna á hverju ári. Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra vill ekki hrófla við mögu­leikum þess­ara fyr­ir­tækja til að greiða út arð til hlut­hafa en hann ætlar hins vegar að banna arð­greiðslur út úr einka­reknum heilsu­gæslu­stöðvum. Ekkert eft­ir­lit er með arð­greiðslum út úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum á Íslandi.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Heil­brigð­is­ráð­herra gerir ekki athuga­semdir við 300 millj­óna hagnað einka­rek­ins lækn­inga­fyr­ir­tækis

Heil­brigð­is­ráð­herra svarar spurn­ingum um arð­greiðslur til einka­rek­inna heil­brigð­is­fyr­ir­tækja Lækna­stöð­inni á árunum 2008 og 2013. Hann segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands sé þjón­ustan sem veitt er góð. Rað­herr­ann segir gæði heil­brigð­is­þjón­ust­unnar skipta máli en ekki rekstr­ar­form hennar.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki hefur greitt út 265 millj­óna arð

Lækna­stöðin í Orku­hús­inu er einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki í eigu 17 lækna. Fyr­ir­tækið hefur verið starf­andi síðan árið 1997 og fram­kvæmir bækl­un­ar­skurð­að­gerðir sem ekki eru fram­kvæmdar lengur inni á Land­spít­al­anum. Fram­kvæmda­stjóri Lækna­stöðv­ar­innar segir Land­spít­al­ann ekki geta tekið við aðgerð­unum.

Mest lesið undanfarið ár