Flokkur

Fréttir

Fréttir

Veiði­gjöld lækka um 1,8 millj­arða króna á næsta ári

Veiði­gjöld munu lækka um 1,8 millj­arða króna á næsta ári. Þá er áætlað að þau verði um átta millj­arðar króna en þau skil­uðu um 9,8 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann á þessu ári. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2015 sem kynnt var í gær­morgun. Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks réðst í breyt­ingar á veiði­leyfagjöldum sum­arið 2013 með það fyrir sjónum að...
Fréttir

Gert ráð fyrir 4,1 millj­arða afgangi á næsta ári

Í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2015, sem Bjarni Bene­dikts­son ráð­herra efna­hags- og fjár­mála lagði fram á Alþingi í dag, er gert ráð fyr­ir 4,1 millj­arðs af­gangi. Heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs eru áætl­aðar 644,6 millj­arðar króna en heild­ar­út­gjöld 640,5 millj­arðar. Hækka á neðra þrep virðis­auka­skatts úr 7% í 12%, meðal ann­ars á mat­vörur, og lækka á efra þrep virðis­auka­skatts úr 25,2% í 24%. Af­nema...
Fréttir

MP banki og Virðing hefja form­lega sam­ein­ing­ar­við­ræður

Stjórnir MP banka hf. og Virð­ingar hf. hafa ákveðið að taka upp form­legar við­ræður um sam­ein­ingu félag­anna. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri frétta­til­kynn­ingu frá félög­unum. „Með sam­ein­ingu MP banka og Virð­ingar yrði til öfl­ugt fjár­mála­fyr­ir­tæki sem væri leið­andi á fjár­fest­inga­banka­mark­aði og einn stærsti aðili í eigna­stýr­ingu á Íslandi. Ekki er hægt að segja til um hve langan tíma við­ræður munu...
Fréttir

Al-Thani málið á dag­skrá Hæsta­réttar seint í jan­úar

Al-Thani málið svo­kall­aða verður tekið fyrir í Hæsta­rétti seint í jan­úar á næsta ári, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Hæsta­rétti. Nákvæm dag­setn­ing liggur þó ekki fyrir enn að sögn Þor­steins Jóns­sonar, skrif­stofu­stjóra Hæsta­réttar. Dómur féll í mál­inu 12. des­em­ber í fyrra og voru Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og...
Fréttir

Ingi­björg Dögg aðstoð­ar­rit­stjóri DV hætt störfum

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, aðstoð­ar­rit­stjóri DV, er hætt störfum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Hún er þar með fimmti starfs­maður DV sem hverfur frá störfum síð­ustu daga eftir að ný stjórn tók yfir útgáfu­fé­lag mið­ils­ins. Auk þess hefur Reynir Trausta­son,rit­stjóri og einn aðal­eig­andi DV, verið settur í tíma­bundið leyfi út þennan mánuð. Fastlega er búist við því að hann snúi ekki aftur til...
Fréttir

Metro-maður aftur ákærður fyrir skatt­svik

Jón Garðar Ögmunds­son, kenndur við Metro-borg­ara, og Ásgerður Guð­munds­dóttir hafa verið ákærð af emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara öðru sinni fyrir að meiri háttar skatt­svik í gegnum fyrrum móð­ur­fé­lag Metro-keðj­unnar. Fólkið stóð ekki skil á greiðslu opin­berra gjalda sem það hafði haldið aftur af launum starfs­manna sinna á árunum 2011 og 2012. Í ákærunni, sem gefin var út 17. júlí, segir að...
Fréttir

Fót­bolta­menn sem fjár­mála­af­urðir

Það hefur vart farið fram­hjá knatt­spyrnu­áhan­gendum og áhuga­mönnum um fjár­mál íþrótta- og afþrey­ing­ar­iðn­að­ar­ins að enska úrvals­deildin setti met í leik­manna­kaupa­eyðslu í félaga­skipta­glugg­anum sem lokað var í byrjun þess­arar viku. Alls eyddu liðin 20 sem í deild­inni spila 835 millj­ónum punda, um 162 millj­örðum króna, í að manna leik­manna­hópana sína þetta sum­arið, sam­kvæmt sam­an­tekt end­ur­skoð­unar­fyr­ir­tæk­is­ins Deloitte. Gamla metið var slegið með...
Fréttir

Millj­arða­mær­ingar frá Hong Kong gefa Harvard 40 millj­arða

Tilkynnt var um það í dag að fjár­fest­arnir og bræð­urnir Ronnie og Gerald Chan, frá Hong Kong, ætl­uðu sér að gefa Harvard háskóla 350 millj­ónir dala, eða sem nemur tæp­lega 40 millj­örðum króna, í gegnum sjóð þeirra sem gefur til sam­fé­lags­mála. Þetta er stærsta pen­inga­gjöf í sögu Harvard og gjör­breytir fjár­hags­stöðu skól­ans. Skólinn hyggst nefna skóla­stofnun Harvard á sviði lýð­heilsu...
Fréttir

Nýtt fast­eigna­mat veldur titr­ingi

Útreikn­ingar Þjóð­skrár á fast­eigna­mati atvinnu­hús­næðis fyrir árið 2015 náðu ein­ungis til 56 pró­senta atvinnu­hús­næðis. Það er versl­unar-, skrif­stofu-, hótel- og iðn­að­ar­hús­næði. Þar nemur hækk­unin átján pró­sentum á milli ára. Restin, 44 pró­sent atvinnu­hús­næðis, svo sem spít­alar, skólar, heima­vist, leik­skólar og íþrótta­hús, var tekin út fyrir sviga. Þar nemur hækkun fast­eigna­mats á milli ára ein­ungis fjórum pró­sentum. Þessi flokkun atvinnu­hús­næðis hefur...
Fréttir

Tveir fyrrum starfs­menn DV ráðnir til 365 miðla

Tveir starfs­menn DV, sem sögðu upp störfum hjá miðl­inum fyrir helgi, hafa ráðið sig til 365 miðla, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Um er að ræða Viktoríu Her­manns­dóttur, sem mun starfa á inn­blaði Frétta­blaðs­ins, og Aðal­stein Kjart­ans­son, sem mun starfa á vefnum Vísi.is. Heim­ildir Kjarnans herma að mögu­lega séu fleiri starfs­menn DV á leið­inni yfir til 365 miðla. Miklar hrær­ingar hafa verið...
Fréttir

Hall­grímur Thor­steins­son rit­stýrir DV - Reynir rek­inn

Hall­grímur Thor­steins­son, fjöl­miðla­maður til margra ára og umsjón­ar­maður þátt­ar­ins Vikuloka á RÚV, hefur verið ráð­inn rit­stjóri DV. Reynir Trausta­son hefur verið leystur undan starfs­skyldum sem rit­stjóri. „Við ætlum okkur að efla og styrkja félagið. DV er fjöl­mið­ill sem er mik­il­vægur fyrir íslenskt sam­fé­lag. Blaðið hefur lagt stund á rann­sókn­ar­blaða­mennsku og er það ætlun nýrrar stjórnar að halda áfram á þeirri...
Fréttir

Merkel valda­mesta kona heims - For­stjóri GM valda­mesti for­stjór­inn

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, trónir á toppi upp­færðs lista við­skipta­tíma­rits­ins Forbes yfir valda­mestu konur heims. Merkel, sem er 59 ára að aldri, hefur algjöra yfir­burði í þýskum stjórn­málum og er jafn­framt virt­asti stjórn­mála­leið­togi í Evrópu. Í öðru sæti á list­anum er Janet Yellen, seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna. Hún var skipuð seðla­bank­stjóri 14. jan­úar á þessu ári. Yellen er 67 ára gömul. Hún...

Mest lesið undanfarið ár