Flokkur

Fóstureyðingar

Viðtal

Stórt skref að tala um árás en ekki slys

„Ertu tryggð?“ var eitt það fyrsta sem bandaríski bráða­liðinn spurði Silju Báru Ómars­dóttur þar sem hún lá alblóðug á heimili sínu í Los Angeles eftir alvarlega árás. Örlög bráða­liðans, sem valdi sér það starf að bjarga manns­lífum, eru þau að hann verður að spyrja þessarar spurningar áður en ákveðið er hvert skuli fara með sjúkling. Bandarískt heilbrigðis­kerfi gerir það að verkum að hann fer ekki með fólk á besta mögulega stað, heldur á þann stað sem fjárráð sjúklings leyfa. Silju Báru tókst með naumindum að hvísla nafn háskóla síns, USC, og bráða­liðinn tók því sem stað­festingu á því að hún væri með tryggingar frá skólanum. Sem betur fer.

18 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár