Svæði

Bresku Jómfrúareyjar

Fréttir

Vafasamt leyndarmál að baki miklum hagnaði Borgunar

Peninga­slóð hins mikla gróða Borgunar, sem hefur meðal annars skapað gríðar­legan hagnað fyrir útgerða­menn, Engeyinga og hóp huldu­manna, liggur að klámi, fjár­hættuspilum og vændi. Heildar­þjónustu­tekjur Borgunar, líkt og Valitor, hafa vaxið hratt á örskömmum tíma en nær helmingur þessa tekna frá báðum fyrir­tækjum koma erlendis frá. Samkvæmt heimildum Stundarinnar eru þetta viðskipti sem önnur færslu­hirðinga­fyrirtæki vilja ekki koma nálægt.

17 mín. lestur

FréttirWintris-málið

Leyndarmál Sigmundar Davíðs

Anna Sigurlaug Páls­dóttir stefndi pabba sínum Páli Samúels­syni í desember 2006. Sumarið 2007 samdist um málið utan dómstóla og hún fékk rúman milljarð króna sem endaði í Wintris Inc. í skatta­skjólinu Tortólu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra hefur þagað um peningana á Tortólu síðan sem og uppkaup Wintris Inc. á kröfum í bú föllnu bankanna. Einn þekktasti skatta­skjóls­sérfræðingur Evrópu, Torsten Fensby, segir að mál Sigmundar Davíðs sé einsdæmi í sögu Evrópu en bendir jafnframt að engar sannanir um lögbrot hafi komið fram þó spyrja mega spurninga um siðferði íslenska forsætis­ráðherrans.

20 mín. lestur

FréttirWintris-málið

Félag Gunnlaugs fjár­magnað með rúmlega 250 milljónum frá Tortólu

Gunnlaugur Sigmundsson varð framkvæmda­stjóri félags í Lúxemborg eftir að það hafði verið fjár­magnað í gegnum skatta­skjólið Tortólu. Fjölskyldu­auður Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar forsætis­ráðherra tengist því líka skatta­skjólinu Tortólu eins og félagið Wintris þar sem eiginkona hans, Anna Sigurlaug Páls­dóttir, segist geyma fyrir­fram­greiddan arf sinn.

Mest lesið undanfarið ár