Fréttamál

Börn í leit að alþjóðlegri vernd

Pistill

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Staðið á öndinni

Sjónvarps­maður fylgir önd með ungana sína yfir götu. Allir fjöl­miðlar fjalla um málið og þúsundir láta í ljós ánægju sína á Facebook. Forsætis­ráðherra ávarpar mann­réttindaráð SÞ. Lítill drengur frá Afganistan fær tauga­áfall vegna hörku íslenskra yfirvalda sem nauðbeygð fresta því um einhverja daga að flytja drenginn, föður hans og bróður á götuna í Grikk­landi. Það er sumar á Íslandi.
Viðtal

Flúðu grimmilegar árásir talibana: Fá ekki vernd á Íslandi

Sjö manna fjöl­skyldu frá Afganistan verður vísað úr landi á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar á næstu dögum. Þeirra á meðal er stúlka sem var barin til óbóta af talibönum þriggja ára gömul. Fjöl­skyldan flúði ofsóknir og árásir talibana á síðasta ári, en þeir réðust á fjöl­skylduna þegar fjölskyldu­faðirinn, Mir Ahmad Ahmadi, neitaði að ganga til liðs við þá. Mir missti tennur í árásinni og fimm ára sonur hans handleggs­brotnaði illa. Stúlkan er í dag lömuð öðrum megin í andlitinu og á erfitt með að tjá sig, en hefur tekið ótrúlegum framförum eftir að hún kom til Íslands. Fjöl­skyldunni hefur verið gert að yfirgefa eina landið þar sem þau hafa fundið til öryggis.

24 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár