Aðili

Bergþór Ólason

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefndar­formanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmdist og úthúðaði stjórn­málakonum á veitinga­stað í fyrra og talaði um menntamála­ráðherra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefndar­menn umhverfis- og samgöngu­nefndar honum formennsku með hjásetu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjaltason greiddu atkvæði með því að hann yrði formaður.
FréttirKlausturmálið

Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siðanefnd komst að þeirri niður­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögðust þing­mennirnir hafa verið að lýsa erfiðri reynslu, áreitni og „kynferðis­broti“. „Hvað viðkemur lýsingu BÓ og GBS á samskiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir forsætis­nefnd.

Mest lesið undanfarið ár