Flokkur

Bakherbergið

Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Illugi reynir að hanna atburð­ar­rás til að bjarga póli­tísku lífi sínu

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, reynir nú að hanna atburða­rás til að bjarga póli­tísku lífi sínu. Ástæða þess að Illugi er í vanda er sú hann þáði per­sónu­legan fjár­stuðn­ing frá Hauki Harð­ar­syni, stjórn­ar­for­manni fyr­ir­tæk­is­ins Orku Energy, á árinu 2014. Sá per­sónu­legi fjár­stuðn­ingur fólst í því að Haukur keypti íbúð Illuga af honum í fyrra­sumar og leigði honum hana síðan aftur....
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Við hvaða gengi ætli sé miðað?

Stjórn­stöð ferða­mála verður sett á lagg­irnar sam­kvæmt sam­komu­lagi sem kynnt var í gær, en Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga, Samtök ferða­þjón­ust­unnar og rík­is­stjórnin hafa gert það með sér. Stjórn­stöðin mun starfa til árs­ins 2020 en þá er gert ráð fyrir að gjald­eyr­is­tekjur Íslands af ferða­þjón­ustu geti numið allt að 620 millj­örðum. Á þessu ári er gert ráð fyrir að gjald­eyr­is­tekj­urnar verði um...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ráð­herrar verða að vera fjár­hags­lega sjálf­stæðir

Frá því að Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, opin­ber­aði slæma fjár­hags­stöðu sína og fjöl­skyldu sinnar, hafa margar spurn­ingar vaknað hjá almenn­ingi sem er ósvarað enn. Illugi upp­lýsti sjálfur í við­tali við RÚV í apríl að hann hefði selt íbúð sína við Rán­ar­götu til stjórn­ar­for­manns fyr­ir­tæk­is­ins Orku Energy, og leigir hann nú íbúð­ina af honum, þar sem hann hefur ekki efni...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hanna Birna er ekki fórn­ar­lamb leka­máls­ins

Í síð­ustu viku til­kynnti Hanna Birna Krist­jáns­dóttir að hún ætl­aði sér ekki að bjóða sig aftur fram til emb­ættis vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í bréfi sem hún birti vegna þessa sagði hún m.a.: "En þegar nú blasir við að eina ferð­ina enn á að stilla ákvörð­unum er mig varða upp sem ein­hverju upp­gjöri við hið svo­kall­aða leka­mál þá finn ég sterkt að...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna minna en fylgi Pírata und­an­farna mán­uði

Ný skoð­ana­könnun Gallup um fylgi flokka, sem fram­kvæmd var frá lokum ágúst og fram í sept­em­ber­mánuð, fékk lík­ast til nokkra stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að anda léttar. Hún sýndi að flokk­ur­inn bætti við sig þremur pró­sentu­stigum þótt að fylgið mælist enn með því lægsta sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með, 24,4 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn heldur áfram að sveifl­ast milli níu og...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Þor­gerður Katrín þolir ekki stjórn­mála­menn sem vilja enda­laust láta klappa fyrir sér

Viðtal við Þorgerði Katríni Gunn­ars­dóttur, fyrrum vara­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í Frétta­blað­inu í dag hefur vakið verð­skuld­aða athygli. Þar talar hún tæpitungu­laust og gagn­rýnir flokk sinn fyrir að vera tré­hestur. Ljóst er að fleiri deila skoðun Þor­gerðar Katrínar, enda mælist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks sögu­lega lítið um þessar mundir. Í við­tal­inu tekur Þor­gerður Katrín þó, að minnsta kosti með annarri hend­inni, upp hansk­ann fyrir...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

And­stæð­ingar von­ast eftir Hönnu Birnu en flokks­menn vilja Ólöfu

Lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins fer fram 23-25. októ­ber næst­kom­andi. Áhuga­fólk um stjórn­mál mun fylgj­ast með honum af miklum áhuga, enda staða flokks­ins í skoð­ana­könn­unum um þessar mundir afar slök. Fylgið mælist ein­ungis 21,6 pró­sent, sem er með því lægsta sem það hefur mælst í sög­unni. Mest spenna er fyrir kjöri vara­for­manns sem fram fer síð­degis sunnu­dag­inn 25. októ­ber, skömmu áður en fund­inum...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Gríms­staðir sem þjóð­ar­eign - Gæti orðið umdeilt í þing­inu

Fram er komin þings­á­lykt­un­ar­til­laga þar sem skorað er á rík­is­stjórn­ina að beita sér fyrir því að jörðin Gríms­staðir á Fjöllum verði keypt af rík­inu og hún verði þannig þjóð­ar­eign. Þing­menn­irnir Ögmundur Jónasson og Svandís Svav­ars­dóttir, bæði frá Vinstri grænum, eru flutn­ings­menn til­lög­unnar. Fyr­ir­liggj­andi þings­á­lykt­un­ar­til­laga var síð­ast flutt sem 55. mál á 144. lög­gjaf­ar­þingi af núver­andi flutn­ings­manni. Þetta er ekki í...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Reynir á inn­an­rík­is­ráð­herra - Hvað gerir Ólöf?

Kastljós RÚV greindi frá því í gær að dóm­nefnd sem skipuð var til að meta hæfi umsækj­enda teldi Karl Axelsson hrl. hæf­astan til að gegna emb­ætt­inu. Aðrir umsækj­endur voru Ing­veldur Eiríks­dóttir, settur hæsta­rétt­ar­dóm­ari, og Davíð Þór Björg­vins­son, dóm­ari við Mann­rétt­inda­stól Evrópu. Dóm­nefndin sem mat Karl hæf­astan er skipuð fimm körlum. Ing­veldur og Davíð Þór hafa bæði meiri reynslu af dóm­ara­störfum...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Verð­trygg­ingin festir sig í sessi - Hvað gerir Framsókn?

Að und­an­förnu hefur komið skýrt fram að fólk virð­ist frekar vilja taka verð­tryggð lán en óverð­tryggð, í það minnsta sé horft til hlut­falls­legrar skipt­ingar nýrra hús­næð­is­lána eftir teg­und lána. Líklega er skipt­ingin um það bil 70 pró­sent velja verð­tryggð en um 30 óverð­tryggð, en upp­færðar upp­lýs­ingar um þróun þess­ara mála má oft lesa í reglu­legum skýrslum Seðla­banka Íslands. Sveifl­urnar í...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Borgin verður að passa sig - Hval­veið­arnar „standa líka í vegi“ fyrir ýmsu

Lær­dóm­ur­inn af klúðri borg­ar­full­trúa meiri­hlut­ans í Reykja­vík, þegar kemur að van­hugs­aðri til­lögu um að snið­ganga vörur frá Ísrael, er ekki endi­lega bara sá að borgin eigi ekki að blanda sér í utan­rík­is­mál Íslands með yfir­borðs­kenndu og órök­studdu orða­lagi til­lagna, heldur frekar að við lifum í alþjóða­væddum heimi þar sem ákvarð­anir stjórn­mála­manna hafa bein áhrif á dag­legt líf. Eins og Dagur...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Víg­völlur launa­bar­átt­unnar - Stjórn­völd hafa haldið illa á spil­unum

Nú er útlit fyrir enn eitt verk­fallið á vinnu­mark­aði, en sjúkra­liðar munu á morgun greiða atkvæði um verk­falls­að­gerðir. Sjúkra­liða­fé­lag Íslands, SFR-stétt­ar­fé­lag í almanna­þjón­ustu og Lands­sam­band lög­reglu­manna hafa átt í sam­eig­in­legum kjara­við­ræðum við ríkið síð­ustu mán­uði. Lítið hefur þok­ast í sam­komu­lags­átt en deilan hefur verið á borði rík­is­sátta­semj­ara frá því í júní. Bæði Sjúkra­liða­fé­lag Íslands og SFR hafa ákveðið að efna...

Mest lesið undanfarið ár