Flokkur

Bakherbergið

Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Stjórn­mála­menn verða líka að líta í eigin barm

Banka­sýsla rík­is­ins hefur svarað bréfi Bjarna Bene­dikts­sonar, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, þar sem fjallað er um sölu Lands­bank­ans á eign­ar­hlut fyr­ir­tæk­is­ins í Borgun. Í bréfi Banka­sýsl­unnar segir að „sölu­með­ferðin hafi varpað veru­legum skugga á árangur Lands­bank­ans und­an­farin miss­eri og að fag­leg ásýnd bank­ans og stjórn­enda hans hafi beðið hnekki.[...]Mik­il­vægt er að Lands­bank­inn end­ur­heimti traust eig­enda sinna, við­skipta­vina og fjár­festa sem og...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hræsni líf­eyr­is­sjóð­anna

Ætlaðar arð­greiðslur trygg­inga­fé­lag­anna, upp á tæpa tíu millj­arða króna, hafa verið mikið í sviðs­ljós­inu und­an­farna dag­anna. Þær hafa verið gagn­rýndar mjög, sér­stak­lega í ljósi þess að iðgjöld trygg­inga­taka hafa verið hækkuð und­an­farin miss­eri. Gagn­rýnin hófst hjá reiðum almenn­ingi á sam­fé­lags­miðlum í kjöl­far frétta fjöl­miðla af arð­greiðsl­unum og Félagi íslenska bif­reiða­eig­enda (FÍB) sem hefur sagt fyr­ir­tækin merg­sjúga almenn­ing með blessun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins....
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Styttist í til­kynn­ingu Össurar, Þor­gerðar Katrínar og Andra Snæs

Ákvörðun Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, um að bjóða sig ekki fram í emb­ætti for­seta Íslands, sem Kjarninn greindi frá í morgun, mun án vafa gera ákvörðun ýmissa sem velt hafa fyrir sér fram­boði auð­veld­ari. Afstaða Katrínar ætti raunar ekki að koma neinum mikið á óvart. Hún sagði fyrst frá því fyrir tæpu ári síðan að hún sæi sig ekki...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Af hverju beitir VR sér ekki beint vegna arð­greiðslna trygg­inga­fé­lag­anna?

Arð­greiðslur trygg­inga­fé­laga lands­ins, sem ætla að greiða hlut­höfum sínum sam­an­lagt 8,5 millj­arða króna í arð og kaupa hluta­bréf af þeim fyrir 3,5 millj­arða króna, hafa verið harð­lega gagn­rýndar und­an­farna daga. Ekki síst vegna þess að þessar greiðslur eru langt umfram hagnað félag­anna þriggja í fyrra. FÍB, félag íslenskra bif­reiða­eig­enda, segir til að mynda að trygg­inga­fé­lög stundi sjálftöku og grip­deildir úr...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ítrek­aðar og grófar hót­anir í garð RÚV í umboði Fram­sóknar

Kristinn Dagur Giss­ur­ar­son, sem situr í stjórn RÚV fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins, varð í gær upp­vís að því að skipta sér að dag­skrár­valdi RÚV með grófum hætti. Í við­tali við Útvarp Sögu náði Kristinn Dagur að koma því á fram­færi að honum hugn­að­ist ekki að „klám­sýn­ing“ eins og atriði Reykja­vík­ur­dætra í sjón­varps­þætti Gísla Marteins Bald­urs­sonar á föstu­dag, að atriðið ætti ekki...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Vill ráð­herra að banka­ráðið víki?

Aðal­fundum Lands­bank­ans og Íslands­banka hefur verið frestað, eins og fram kom í gær, eftir að Banka­sýsla rík­is­ins óskaði eftir því. Jón Gunnar Gunn­ars­son, for­stjóri Banka­sýsl­unnar, ræður þar ríkjum. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um mbl.is, sem sagði frá frest­un­inni í gær, er beðið eft­ir sam­þykki Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins varð­andi að sama val­nefnd geti skipað stjórn­ar­menn í báðum bönk­un­um. Formaður banka­ráðs Lands­banka Íslands er Tryggvi Pálsson en...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Goð­sögnin um „dauða­list­ann“

Við­skipta­Mogg­inn birti í morgun lista yfir þau fyr­ir­tæki sem voru á lista Arion banka sem ýmsir hafa kallað „dauða­list­ann“ í umræð­unni á und­an­förnum árum. Lán fyr­ir­tækj­anna, sem voru 40 tals­ins, voru færð til Arion banka á mjög lágu verði. Þegar bank­inn var afhentur kröfu­höfum gamla Kaup­þings árið 2009 var samið um að þau yrðu afmörkuð (e. ring-fenced) þannig að 80...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Búvöru­samn­ing­arnir eru verð­tryggðir

Búvöru­samn­ing­arnir sem ritað var undir við íslenska bændur á föstu­dag hafa valdið miklu upp­námi í íslensku sam­fé­lagi. Hags­muna­sam­tök versl­un­ar­innar fóru af hjör­unum yfir þeim og valdir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sömu­leiðis. Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafa kallað þá glóru­lausa. Fram­sókn­ar­menn, með for­sæt­is­ráð­herr­ann Sigmund Davíð Gunn­laugs­son fremstan í flokki, verja samn­ing­anna hins vegar út í ystu æsar, líkt og við var að búast. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er líka,...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Allir stilli sér upp með fólk­inu á gólf­inu í Straums­vík

Stór­fyr­ir­tækið Rio Tinto, sem er eig­andi álvers­ins í Straums­vík, hefur hug á því að fara með vinnu­stöðvun hafn­ar­verka­manna, sem getur hamlað útflutn­ingi á áli, fyrir félags­dóm. Þetta kom fram í fréttum RÚV.Með öðrum orðum, þá ætlar fyr­ir­tækið að fara í hart við starfs­menn­ina sína. Í ljósi þess hvernig fyr­ir­tækið hefur komið fram að und­an­förnu, þá verða óbeinar hót­anir um að...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hvar voru fram­sókn­ar­menn­irnir?

Á Alþingi í morgun fór fram sér­stök umræða um verð­trygg­ing­una. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, var upp­hafs­maður umræð­unnar og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var til svara. Ellefu þing­menn tóku þátt í umræð­unni, að Helga og Bjarna með­töldum. Þingmenn vöktu athygli á því í umræð­unni að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son tók ekki þátt, og var raunar ekki einu sinni í þing­sal, þegar umræðan...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ein­kenni­leg staða fyrir umsækj­endur

Íslensk stjórn­völd ákváðu að búa til þriggja manna nefnd, sem metur hæfi 38 umsækj­enda um starf skrif­stofu­stjóra í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Á meðal þeirra eru margir reynslu­miklir ein­stak­lingar sem hafa mikið fram að færa í starfið. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, skipar hæf­is­nefnd­ina en Baldur Guð­laugs­son leiðir hana. Gylfi Dalmann Aðal­steins­son, dós­ent við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, og Helga Hlín Hákon­ar­dóttir lög­fræð­ingur...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ráð­herrar lands­ins hlusta ekk­ert á umboðs­mann Alþingis

Í mars 2015 var Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, gestur þátt­ar­ins Viðtalið á RÚV. Þar ræddi hann meðal ann­ars þann lær­dóm sem draga mætti af leka­mál­inu svo­kall­aða. Þar sagði Tryggvi að það hefðu „orðið ákveðin kyn­slóða­skipti varð­andi þá sem hafa komið til starfa sem ráð­herrar - og ekki bara hér á landi[...]Þarna kemur til starfa fólk sem hefur ekki það sem...

Mest lesið undanfarið ár