Flokkur

Bakherbergið

Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Sjö ára afmæli ein­angr­unar

Um þessar mundir eru sjö ár frá því að alþjóð­legir fjár­mála­mark­aðir lok­uð­ust nær alveg fyrir íslenskan fjár­mála­markað, og þar með bróð­ur­part­inn af íslensku atvinnu­lífi. Þetta tíma­bil hófst með dramat­ískum dögum í mars og apríl 2008, þegar gengi krón­unnar féll um 11 pró­sent á nokkrum dögum, og íslensku bank­arnir, Glitnir, Lands­bank­inn og Kaupþing, hófu dauða­stríð sitt fyrir alvöru. Sjö ár er...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Starfs­menn Fiski­stofu beygðu sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og lands­bún­að­ar­ráð­herra, hefur greint frá því að hætt hafi verið við hraðan flutn­ing Fiski­stofu til Akur­eyrar. Hann seg­ist reyndar ekki lengur leggja allt kapp á að áætl­anir um að klára flutn­ing­inn á þessu ári stand­ist. En nið­ur­staðan er skýr, Fiski­stofa verður ekki flutt í bráð til Akur­eyrar. Að minnsta kosti ekki fyrr en heim­ild til þess...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Er það rétt­ar­morð að dæma banka­menn í fang­elsi?

Leiðari Krist­ínar Þor­steins­dóttur, aðal­rit­stjóra 365 miðla, í páska­út­gáfu blaðs­ins vakti tölu­verða athygli. Þar fjall­aði Kristín um Aurum-málið svo­kall­aða og sagði nauð­syn­legt að upp­lýsa hvort sér­stakur sak­sókn­ari hafi logið þegar hann sagð­ist ekki hafa vitað um tengsl Sverris Ólafs­sonar, eins dóm­ara máls­ins, og Ólafs Ólafs­sonar, sem var dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða. Leiðar­ann end­aði hún...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Voru yfir­lýs­ingar Sig­mundar Davíðs í vik­unni smjör­klípa?

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra var í kast­ljós­inu í lið­inni frétta­viku sem fyrr. Fyrst fyrir að skipa starfs­hóp til að kanna milli­landa­flug á Egils­stöðum og Akureyri. Næst fyrir að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um við­bygg­ingu við Alþing­is­húsið, bygg­ingu nýrrar Val­hallar á Þing­völlum og að gefa þjóð­inni hús undir stofnun Árna Magn­ús­sonar í full­veld­is­af­mæl­is­gjöf 1. des­em­ber 2018. Kostn­að­ur­inn er áætl­aður á anna tug...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Starfs­hópur Frosta skil­aði minni­hluta­á­liti Frosta sem nið­ur­stöðu

Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, afhenti Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra skýrslu um end­ur­bætur á pen­inga­kerf­inu í gær­morgun. Skýrslan var unnin að beiðni for­sæt­is­ráð­herra sem skip­aði sér­stakan starfs­hóp til verks­ins fyrir ári síðan, í mars 2014. Þegar Sig­mundur Davíð skip­aði hóp­inn var Frosti gerður að for­manni hans. Auk þess voru þau Þorbjörn Atli Sveins­son, þá sér­fræð­ingur í...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Það fyr­ir­sjá­an­leg­asta af öllu fyr­ir­sjá­an­legu

Grein­endur eru nú farnir að sjá, það sem blasti við að gæti gerst, eftir að íslensk stjórn­völd ákváðu að fara út í for­dæma­lausar aðgerðir til þess að lækka hús­næð­is­skuldir sumra Íslend­inga um sam­tals 80 millj­arða króna. Það sem nú er byrjað ger­ast er það, að pen­ing­arnir úr rík­is­sjóði eru farnir að kynda undir hækkun fast­eigna­verðs, sem síðan fer út í...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Bak­her­bergið: Jæja, hvar á að byggja upp nýtt sjúkra­hús?

Læknar fóru fyrir nokkrum mán­uðum í verk­fall, eins og lands­menn fundu beint fyrir með verri heil­brigð­is­þjón­ustu. Eftir mikið karp náð­ust samn­ingar við stjórn­völd þar um að laun lækna yrðu hækkuð, um meira en 20 pró­sent, auk þess sem vil­yrði fyrir betra starfs­um­hverfi, í víðu sam­hengi, voru gefin. Hluti af þess­ari umræðu er upp­bygg­ing nýs spít­ala, en árum saman hefur nú...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Sam­fylk­ingin hjálpar stjórn­ar­flokk­unum í ólgu­sjó

Óvænt for­manns­fram­boð Sigríðar Ingi­bjargar Inga­dóttur á lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar fer í sögu­bæk­urnar sem mis­heppnuð til­raun til hall­ar­bylt­ingar. Ótrúleg atburða­rás, sem hófst sól­ar­hring fyrir kjör for­manns, end­aði með því að Árni Páll Árnason var end­ur­kjör­inn for­maður með minnsta mögu­lega mun, 241 atkvæði gegn 240 atkvæðum Sigríðar Ingi­bjargar. Nú er vitað að Sam­fylk­ingin er klofin, og staða for­manns­ins er veik, svo ekki sé...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Bak­her­bergið: Hver er utan­rík­is­stefna Íslend­inga?

Það kemur ekki nokkrum manni á óvart að sitj­andi rík­is­stjórn ætlar sér ekki að ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Hún boð­aði hins vegar fyrir um ári síðan nýja Evr­ópu­stefnu sem átti að byggja á „efldri hags­muna­gæslu á vett­vangi samn­ings­ins um hið Evrópska efna­hags­svæði (EES) og ann­arra gild­andi samn­inga Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB)“. Á meðal þess sem átti að gera var að fjölga...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Bak­her­bergið: For­set­inn tal­aði við þing­menn lands­ins „eins og þeir væru hálf­vitar“

Sitjandi rík­is­stjórn ákvað að end­ur­vekja þing­veisl­una, nokk­urs konar árs­há­tíð þings­ins, eftir að hún tók við stjórn­ar­taumunum, en það er for­seti Alþingis sem býður til veisl­unnar. Síðasta rík­is­stjórn hafði ákveðið að sleppa við­burð­inum, sem þykir frekar form­legur og yfir­stétt­ar­legur, þar sem henni þótti hann ekki við­eig­andi í eftir-hruns-ástand­inu. Veislan fór fram í Súlnasal Hótel Sögu síð­ast­lið­inn föstu­dag og varð heldur ein­kenni­leg...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Bak­her­bergið: Ísland er í opnu skot­færi fyrir hakk­ara

Skýrsla sem Kjarninn fjall­aði um á dög­unum, þar sem tölvu­ör­yggi Íslands er til umfjöll­unar, sýnir að Ísland er í opnu skot­færi fyrir hakk­ara. Fólkið í bak­her­berg­inu veltir því fyrir sér hvort þessi mál séu tekin nægi­lega föstum tökum hér á landi. Í skýrsl­unni kemur meðal ann­ars fram, að Seðla­banki Íslands sé lík­legur mið­punktur fyrir veik­leika, þar sem hann ber ábyrgð...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Bak­her­bergið: Beckham aug­lýsir íslenska ham­borg­ara­búllu

Vöxtur Ham­borg­ar­búllu Tómasar er ein skemmti­leg­asta við­skipta­saga síð­ari ára. Tómas Tómasson, mað­ur­inn sem kynnti Íslend­inga fyrir alvöru skyndi­bita­ham­borg­urum á Tomma­borg­urum sem hann stofn­aði árið 1981, snéri til baka í ham­borg­araslag­inn um páska­helg­ina árið 2004 með því að opna litla „búllu“ í gömlu kaffi­stofu Slipps­ins við Geirs­götu. Nú, tæpum ell­efu árum síðar, eru stað­irnir orðnir ell­efu tals­ins. Sex þeirra eru á...

Mest lesið undanfarið ár