Flokkur

Álit

Pistill

Snæbjörn Guðmundsson

Hvalá: Næst­stærsti draum­ur­inn?

Hverjar ætli séu brjál­æð­is­leg­ustu virkj­ana­hug­myndir Íslands­sög­unnar? Margir munu lík­leg­ast nefna Kára­hnjúka­virkjun, langstærstu virkjun lands­ins, en með henni var Jöklu, sem einnig er þekkt undir heit­inu Jökulsá á Dal eða Jökulsá á Brú, vippað hátt í 40 km leið um jarð­göng yfir í Lag­ar­fljót. Umhverf­is­á­hrifin af þess­ari fram­kvæmd voru sem vænta mátti í sam­ræmi við umfangið. Líf­rík­inu í Lag­ar­fljóti lá við...
Pistill

Katrín Baldursdóttir

Flokks­skír­teini leið til frama

Spilling hefur verið land­læg á Íslandi síðan elstu menn muna. Þannig hafa sjálf­stæð­is­menn frá önd­verðu stundað það kerfi að koma sínum mönnum að í æðstu stöður og emb­ætti. Iðulega hefur kveðið svo rammt að þessu að fólk með flokks­skír­teini hefur gengið fyrir í allar teg­undir starfa á vinnu­mark­aði. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur notað svip­aðar aðferðir og t.d. Mafían á Ítalíu eftir að...
Pistill

Snæbjörn Guðmundsson

Að eigna sér land

Mánu­dag­inn 24. júní sendu land­eig­endur í Dranga­vík á Ströndum inn kæru til Úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála vegna deiliskipu­lags og fram­kvæmda­leyfis fyrsta áfanga Hval­ár­virkj­unar sem hrepps­nefnd Árnes­hrepps hafði sam­þykkt um miðjan júní. Í þessum fyrsta áfanga Hval­ár­virkj­unar á meðal ann­ars að leggja virkj­ana­vegi og fram­kvæma umfangs­mikla rann­sókn­ar­vinnu í landi Dranga­víkur og nágrenni jarð­ar­innar, en virkj­un­ar­að­ilar hafa aldrei óskað eftir, hvað þá...
Pistill

Viðar Freyr Guðmundsson

Munurinn á menntun og inn­ræt­ingu

Nýverið birt­ust fréttir þess efnis að börn í Vinnu­skóla Reykja­víkur hefðu dag einn lagt niður störf til að taka þátt í mót­mælum eftir fræðslu og hvatn­ingu til þess frá yfir­boð­urum sínum. Sams­konar hvatn­ing til stjórn­mála­þátt­töku fyrir ákveðna hug­mynda­fræði á sér stað í kynja­fræði­kennslu grunn­skóla. Þetta varð efni þess að ég ákvað að senda erindi til Umboðs­manns­Barna. Því ég hef áhyggjur...
Pistill

Margrét Tryggvadóttir

Mann­dóms­vígsla dóms­mála­ráð­herra

Það er alþekkt í allskyns klíkum að fólk sem vill inn­göngu í hóp­inn þarf að sanna sig. Klík­urnar hleypa ekki hverjum sem er inn og stundum eru skil­yrðin sem þarf að upp­fylla fremur und­ar­leg og jafn­vel ógeðs­leg. Hver man ekki eftir breska for­sæt­is­ráð­herr­anum sem átti að hafa þurft að setja við­kvæm­asta hluta lík­ama síns upp í kjaft­inn á dauðu svíni...
Pistill

Bryndís Haraldsdóttir

Mjúk lend­ing, ferða­þjón­usta í vörn

Eftir sögu­legt hag­vaxt­ar­skeið íslensku þjóð­ar­innar er hag­kerfið okkar að lenda og stóra áskor­unin er, eins og áskorun allra flug­stjóra, mjúk lend­ing. Allt virð­ist benda til þess að við séum að ná einmitt því, mjúkri lend­ingu. Óhætt er að segja að gjald­þrot WOW hafi ollið tölu­verðri hræðslu og ótta hjá mörgum. Hvaða áhrif hefur það þegar stórt félag, sam­fé­lags­lega mik­il­vægt, fer...
Pistill

Sema Erla Serdar

Opið bréf til ráð­herra vegna barna á flótta

Kæri for­sæt­is­ráð­herra, kæri dóms­mála­ráð­herra, kæri félags- og barna­mála­ráð­herra og aðrir ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands, það hefur varla farið fram hjá ykkur að við stöndum frammi fyrir einni stærstu mann­úð­ar­krísu sög­unnar sem ein­kenn­ist af því að aldrei hafa fleiri verið á flótta í heim­inum en nú. Í lok árs 2018 voru 70.8 millj­ónir ein­stak­linga á flótta um allan heim undan stríði,...
Pistill

Viðar Freyr Guðmundsson

Er rót­tæk­linga­þjálfun barna brot á rétt­indum þeirra?

Kæri Umboðs­maður: Nú voru að ber­ast fréttir þess efnis að börnum í Vinnu­skóla Reykja­víkur hafi verið boðið að taka þátt í eins­konar aktí­vista­kennslu þar sem umhverf­is­mál voru höfð að leið­ar­ljósi. (sjá: https://www.frettabladid.is/frettir/vinnuskolakrakkar-motmaela-i-hadeginu/) "Nemendum Vinnu­skóla Reykja­víkur býðst að taka þátt í umhverfis­ráði í Borg­ar­túni á morgun. Þar munu þau læra um getu til aðgerða, fara í leiki tengda umhverf­is­málum og lýð­ræði...
Pistill

Snæbjörn Guðmundsson

Hval­ár­virkjun í óþökk land­eig­enda

Engum dylst að deil­urnar um Dranga­jök­ul­svíð­erni hafa verið afar harðar síð­ustu miss­eri. Í huga grein­ar­höf­undar krist­all­ast margs konar sam­fé­lags­legur ágrein­ingur í átök­unum um villta nátt­úru Ófeigs­fjarð­ar­heiðar og Dranga­jök­ul­svíð­erna. Í Hval­ár­virkj­un­ar­mál­inu eig­ast ann­ars við nátt­úru­vernd, bar­áttan fyrir virð­ingu og betri umgengni um nátt­úr­una, vörslu hennar ósnort­innar til handa ókomnum kyn­slóðum og síð­ast en ekki síst verndun nátt­úr­unnar hennar sjálfrar vegna. Hins...
Pistill

Margrét Tryggvadóttir

Hver skap­aði skrímslið?

Samkvæmt óund­ir­rit­uðu „sam­komu­lagi" sem svo ekki var fall­ist á átti þing­störfum víst að ljúka í dag. Það ger­ist ekki. Þess í stað var þingið sent heim í helg­ar­frí og kemur aftur saman á þriðju­dag­inn. Staðan núna er und­ar­leg enda búið að semja um þing­lok við fjóra stjórn­ar­and­stöðu­flokka af fimm en samn­ingar náð­ust ekki við Mið­flokk­inn og svo voru stjórn­ar­flokk­arnir víst...

Mest lesið undanfarið ár