Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars stendur BHM fyrir morgunverðarfundi um stöðu mæðra á vinnumarkaði. Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu föstudaginn 6. mars kl. 8:30–10:30.
Dagskrá
8:30 – Hús opnar - morgunverður.
9:00 – Opnunarávarp: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
9:15 – Sigrún Brynjarsdóttir, hagfræðingur BHM. Fjallar um stöðu kvenna á vinnumarkaði – helstu tölur og dæmi sem varpa ljósi á stöðuna
9:30 – Sunna Símonardóttir, formaður Jafnréttisnefndar BHM og lektor við Háskólann á Akureyri. Fjallar um umönnunarbilið og áhrif þess á vinnumarkaðsstöðu foreldra.
9:45 – Guðný Björk Eydal, prófessor við Háskóla Íslands. Fjallar um fæðingarorlofskerfið, þróun þess, breytingar á lögum og árangur – og tengir við stöðu kvenna á vinnumarkaði.
10:00 – Pallborðsumræður
Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur
Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdastýra Jafnlaunastofu
Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ og formaður aðgerðahópsins Brúum umönnunarbilið



Athugasemdir