Nafnverð íbúðarhúsnæðis hækkað um 50% á 18 mánuðum á Suðurnesjum

Nafnverð íbúð­ar­hús­næðis á Suð­ur­nesjum hefur hækkað um 50% frá byrjun árs 2016, sam­kvæmt nýrri úttekt sem Reykja­vík Economics útbjó fyrir Íslands­banka.

íbúðarhúsnæði hefur hækkað um tæpan helming frá ársbyrjun 2016
íbúð­ar­hús­næði hefur hækkað um tæpan helm­ing frá árs­byrjun 2016 Mynd: Birgir Þór Harðarsson

Nafnverð íbúð­ar­hús­næðis hækkað um 50% á einu og hálfu ári á Suð­ur­nesjum, sam­kvæmt nýrri skýrslu birt af Íslands­banka.

Skýrslan, sem ber heitið End­ur­reisn íbúð­ar­mark­að­ar­ins á Suð­ur­nesjum,

var útbúin af Reykja­vík Economics fyrir Íslands­banka. í henni kemur fram að sam­fé­lagið á Suð­ur­nesjum sé að ná fyrri styrk eftir efna­hags­á­fallið haustið 2009 og brott­för varn­ar­liðs­ins haustið 2006.

Frá árinu 2005 hafi íbúum á Suð­ur­nesjum fjölgað um 49%. Í byrjun árs­ins 2017 hafi svo heild­ar­mann­fjöldi íbúa í lands­hlut­anum nálg­ast 25 þús­undum.

[adspot]Aukin fólks­fjölgun á Suð­ur­nesjum hefur stutt við íbúða­mark­að­inn, en nafn­verð íbúða hefur hækkað um 50% síðan í árs­byrjun 2016. En þrátt fyrir mikla hækkun íbúða­verðs er það enn að jafn­aði undir eða nálægt bygg­ing­ar­kostn­aði, sam­kæmt skýrsl­unni.

Breyting hefur líka verið á ald­urs­dreif­ingu kaup­enda, en ungt fólk hafi í æ rík­ari mæli fest kaup á hús­næði. Fyrstu kaup­endum hafi fjölgað hratt á svæð­inu en um fjórð­ungur allra kaup­samn­inga á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2017 voru vegna fyrstu kaupa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íbúðahúsnæði

Mest lesið undanfarið ár