Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að staðan á Íslandi sé mjög góð. „Við værum ekki þar sem við erum ef við hefðum ekki verið heppin. Heppin í þeirri merkingu að við fengum þennan mikla viðskiptakjarabata á síðustu árum.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegu viðtali við Má í sjónvarpsþætti Kjarnans á Hringbraut í kvöld klukkan 21. Hægt er að sjá stiklu úr þættinum í spilaranum hér að ofan.
[adspot]Már segir að sú feikilega mikla aukning í ferðaþjónustu sem varð hafi alls ekki verið fyrirséð. „Ef þetta hefði ekki gerst þá væri kaupmátturinn náttúrulega töluvert lægri. Við værum ekki með eins góð lífskjör, það væri ekki víst að við værum með jákvæða eignastöðu gagnvart útlöndum. Það þarf ekki endilega að þýða að verðbólgan væri eitthvað mjög mikið önnur, en það hefði kostað meiri fórnir að ná henni í markmið.“
Í þættinum ræðir Már vítt og breitt um stöðu efnahagsmála, vaxtastigið, um yfirlýsingu sína í morgun um mögulega breytingu á bindiskyldu, þær breytingar sem eru fram undan á fjármálamarkaði og hvaða aðgerðir væru skynsamlegar til að hemja vöxt í ferðaþjónustu og áhrif hans á gengi íslensku krónunnar, svo fátt eitt sé nefnt.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir