Gæti skapast hættuástand eins og í síðasta hruni

Skulda­staða fólks virð­ist ekki hafa nein áhrif á kaup þess á hús­næði. Reiknað er með um sjö þús­und íbúðum í Reykja­vík til 2020. Hús­næð­is­mark­að­ur­inn er til umfjöll­unar í þætti Kjarnans í kvöld.

Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði.
Una Jóns­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Íbúða­lána­sjóði.

Mjög erfitt er að kom­ast inn á hús­næð­is­mark­að­inn vegna mjög mik­illa verð­hækk­ana á skömmum tíma. Ástæða þess að hús­næð­is­mark­að­ur­inn kóln­aði mikið í sumar var meðal ann­ars sú að það var komið að þol­mörkum hjá kaup­endum. Þetta segir Una Jóns­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Íbúða­lána­sjóði, í sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut í kvöld klukkan 21. Þar verður hús­næð­is­mark­að­ur­inn til umfjöll­unar.

Una segir að fólk virð­ist hafa þanið sig mjög fjár­hags­lega til þess að kaupa hús­næði. Það sýni að það sé mjög erfitt að kom­ast inn á mark­að­inn. „Við vorum með spurn­inga­könnun og og spurðum fólk út í áform um vænt­an­leg kaup út frá skulda­stöðu. Skulda­staðan virð­ist ekki hafa nein áhrif. Fólk ætlar að reyna að kaupa til að kom­ast úr þessu óör­yggi sem er á leigu­mark­aði.“

Þessi staða gæti haft afleið­ingar. „Það gæti skap­ast ein­hvers­konar hættu­á­stand ef við sjáum fast­eigna­verð allt í einu lækka og við sjáum fólk sitja eftir með yfir­veð­settar eignir eins og gerð­ist í síð­asta hruni.“

Ólöf Örv­ars­dóttir sviðs­stjóri umhverfis- og skipu­lags­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, er einnig gestur þátt­ar­ins. Hún útskýrir hús­næð­is­mála­stefnu­Reykja­vík­ur­borgar, þétt­ing­ar­á­hersl­una og þá upp­bygg­ingu sem þegar er í gangi. Í máli hennar kemur meðal ann­ars fram að til árs­ins 2020 séu um sjö þús­und íbúðir í kort­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár