Reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði

Ritstjórar Heimildarinnar bera ábyrgð á því efni sem birtist í útgáfu hennar, aukaútgáfum og á vefnum Heimildin.is. Ritstjórar starfa í umboði stjórnar Sameinaða útgáfufélagsins ehf.

Ritstjórar og starfsmenn á ritstjórn eru sjálfstæðir í störfum sínum og starfa í hlutlausu umhverfi.

Algjör faglegur aðskilnaður er á milli ritstjórnar og tekjuöflunardeildar. Ekkert samstarf verður á milli deilda um vinnslu efnisþátta. Ritstjórn tekur ein ákvörðun um þá vinnslu.

Áminning og uppsögn starfsmanns á ritstjórn blaðsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga og þeim lögum sem í gildi eru á hverjum tíma.

*skv. 24. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011