FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Könnunin olli titr­ingi í Ölfusi: Ríflega tvö­falt fleiri íbúar á móti verk­smiðj­unni

44,7 pró­sent íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi eru mjög eða fremur and­vígir bygg­ingu möl­un­ar­verk­smiðj­unnar í bænum. Til sam­an­burðar eru ein­ungis 19,3 pró­sent íbúa fremur eða mjög hlynntir bygg­ingu verk­smiðj­unnar. Þetta er nið­ur­staðan úr við­horfskönnun sem Maskína gerði fyrir Heim­ild­ina meðal 382 íbúa í Ölfusi. Könnunin olli titr­ingi í Ölfusi þegar hún var gerð á síð­ustu dögum.
Spurningaþrautin

1007. spurn­inga­þraut: Það hlaut að koma spurn­ing um Kalle Anka

Fyrri auka­spurn­ing: Hvað heitir hin brosmilda kona hér á miðri mynd? *** Aðal­spurn­ingar: 1.  Sverrir Her­manns­son var þing­maður og ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem stofn­aði um síðir sinn eigin flokk 1999 og náði flokk­ur­inn nokkru flugi um tíma. Hvað nefnd­ist flokk­ur­inn? 2.  Sverrir var kunnur fyrir fleira. Hann átti til dæmis lengi metið yfir lengstu þing­ræðu sög­unnar. Ræðuna flutti Sverrir 1974 og...
Viðskipti

Telja að sam­þjöppun valds innan Seðla­bank­ans kunni að vera var­huga­verð

Alþingi ákvað, er verið var að sam­eina Seðla­bank­ann og Fjár­mála­eft­ir­litið, að láta seðla­banka­stjóra ekki leiða fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd bank­ans, m.a. vegna mögu­legrar orð­sporðs­á­hættu. Nú stendur til að breyta því. Í umræðum um þær breyt­ingar kom til tals hvort slíkt feli í sér sam­þjöppun valds og hvort það kunni að vera var­huga­vert.
FréttirKjaradeila Eflingar og SA

Rík­is­sátta­semj­ari lætur Efl­ing­ar­fólk greiða atkvæði um það sem SA hafa lagt á borðið

Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari hefur lagt fram miðl­un­ar­til­lögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnu­lífs­ins. Hún felur í sér að allir félags­menn Eflingar á almennum vinnu­mark­aði munu greiða atkvæði um kjara­samn­ing sam­bæri­legan þeim sem önnur félög Starfs­greina­sam­bands­ins hafa þegar und­ir­ritað við SA.
Fréttir

Frum­varpi sem á að láta fjár­magnstekju­fólk borga útsvar frestað

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar var lagt upp með að skatt­mats­reglur yrðu end­ur­skoð­aðar og að komið verði í veg fyrir „óeðli­­­­­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­­­­­fé­laga“. Með því yrði þeir sem skrá laun sem fjár­magnstekjur látnir greiða útsvar og borga tekju­skatt í stað fjár­magnstekju­skatts. ASÍ hefur áætlað að tekjur rík­is­sjóðs geti auk­ist um átta millj­arða á ári við þetta.

Mest lesið undanfarið ár