Viðtal

Stimpl­aði sig út af næt­ur­vakt og fór í veik­inda­leyfi

Theódór Skúli Sig­urðs­son brann fyrir lækn­is­fræði, vildi allt fyrir sjúk­linga sína gera en hafði hvorki aðstæður né úrræði til þess. Hann átti æ erf­ið­ara með að slíta sig frá vinnu, þar til hann lenti í heim­speki­legu sam­tali um til­gang lífs­ins við mann deyj­andi konu, og þar með var það ákveðið, hann yrði að skipta um kúrs. Þau Kristín Sig­urð­ar­dóttir ræða streitu, aðferðir til að takast á við hana og lær­dóm­inn.

17 mín. lestur

FréttirFall WOW air

Fjár­festar saka stjórn­endur WOW um blekk­ingar og vilja 2,8 millj­arða bætur

Nokkrir fjár­festar sem tóku þátt í skulda­bréfa­út­boði WOW air árið 2018 telja sig hafa verið plat­aða. Þeir vilja meina að WOW air hefði átt að vera gefið upp til gjald­þrota­skipta fyrir útboðið. Af þeim sökum vilja þeir 2,8 millj­arða í skaða­bætur frá stjórn­endum WOW í dóms­máli. Skúli Mogensen vill ekki tjá sig um málið.
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Þýska sem­ents­fyr­ir­tækið segir að tekjur sveit­ar­fé­lags­ins muni aukast um 22 til 35 pró­sent

End­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið KPMG vann skýrslu um mögu­leg efna­hags­leg áhrif möl­un­ar­verk­smiðju þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Þor­láks­höfn. 60 til 70 störf munu skap­ast, hafn­ar­gjöld verða allt að rúm­lega 500 millj­ónir og fast­eigna­gjöld munu nema rúmum 100 millj­ónum hið minnsta. Bygging verk­smiðj­unnar er umdeild í sveit­ar­fé­lag­inu en Heidel­berg boðar nýjar hug­myndir og mögu­leika.
FréttirKjaradeila Eflingar og SA

Segist ekki taka efn­is­lega afstöðu til miðl­un­ar­til­lögu sátta­semj­ara

„Aug­ljós­lega eru það dóm­stólar sem eiga síð­asta orðið,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra um fram­gang miðl­un­ar­til­lögu rík­is­sátta­semj­ara í deilu Eflingar og SA. Hún hafði áður sagt að hún gæti ekki betur séð en að sátta­semj­ari væri innan þeirra heim­ilda sem er að finna í lögum.
Fréttir

Íslensk stjórn­völd „verða að hætta mann­rétt­inda­brotum“

Íslensk stjórn­völd þver­brjóta alþjóða­lög og mann­rétt­indi með því að vista meiri­hluta gæslu­varð­halds­fanga í ein­angrun. Þetta segja mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International í nýrri skýrslu. Íslenska dóms­mála­ráðu­neytið full­yrti að ein­angrun væri ein­ungis sam­þykkt af dóm­urum í ítr­ustu neyð og að upp­fylltum ströngum skil­yrðum. Á tveggja ára tíma­bili höfn­uðu dóm­arar fjórum beiðnum lög­reglu en sam­þykktu rúm­lega þrjú hund­ruð.
Fréttir

Telur að traust erlendra stjórn­valda glat­ist ef upp­lýst sé um fjölda neyð­ar­vega­bréfa

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að utan­rík­is­ráðu­neytið þurfi ekki að upp­lýsa um hversu mörg neyð­ar­vega­bréf hafi verið útgefin á grund­velli nýrrar reglu­gerðar sem und­ir­rituð var í fyrra. Það tók nefnd­ina 252 daga að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu. Fullyrt hefur verið að reglu­gerð­inni hafi verið breytt eftir að Ragnar Kjart­ans­son leit­aði til Katrínar Jak­obs­dóttur um aðstoð fyrir Pussy Riot.

Mest lesið undanfarið ár