Fréttir

Spyr hvort ekki séu til betri verk­færi en að biðja atvinnu­rek­endur og fjár­magns­eig­endur um „að haga sér“

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra og þing­mað­ur Pírata, Hall­dóra Mo­gen­sen, ræddu á þing­inu í vik­unni efna­hags­ástand­ið á Ís­landi en Halldóra spurði Katrínu með­al ann­ars hvort stjórn­völd ættu ekki að gera meira en að „grát­biðja“ fjár­magns­eig­endur og at­vinnu­rek­end­ur um að sýna ábyrgð og gæta hófs í arð­greiðsl­um. Katrín taldi upp þær að­gerð­ir sem rík­is­stjórn­in hef­ur stað­ið fyr­ir og sagði að ekki væri hægt að hunsa þær. „Allt það sem gert hef­ur ver­ið og hef­ur ver­ið boð­að snýst um að skapa hér rétt­lát­ara skatt­kerfi.“
Fréttir

Umdeildar örygg­is­mynda­vélar í notkun hjá Reykja­vík­ur­borg

Örygg­is­mynda­vélar frá umdeildum kín­verskum fyr­ir­tækjum eru í notkun hjá Reykja­vík­ur­borg sem og við opin­berar bygg­ingar á Íslandi. Vélar frá þessum fyr­ir­tækjum eru bann­aðar víða um lönd, ýmist vegna mögu­legra örygg­is­bresta eða þátt­töku í mann­rétt­inda­brotum í Kína. Sér­fræð­ingur í tækni­ör­yggi segir engan hug­búnað full­kom­lega öruggan.
Spurningaþrautin

1090. spurn­inga­þraut: Leikrit og leik­rita­höf­undar

Þessi þema­þraut snýst um leik­rita­höf­unda og leik­rit. Auka­spurn­ing­arnar snú­ast um íslenska leik­rita­höf­unda en aðal­spurn­ingar um erlend leik­skáld eða leik­rit. Á fyrri mynd hér að ofan má sjá leik­skáld sem reyndar skrif­aði ekki aðeins leik­rit. Og hún heitir ... hvað? Svo fæst lár­við­ar­stig fyrir að nefna fyrsta leik­ritið hennar sem frum­sýnt var 1970! *** Aðal­spurn­ingar: 1.  Hvað hét hinn norski höf­undur...
Fréttir

„Hrylli­legt að hugsa til þess hvað fólk leyfir sér“

Inn­við­a­ráð­herra segir að umfjöllun Kveiks um óboð­legar aðstæður fólks á leigu­mark­aði gefi inn­sýn í það hversu langt sé gengið í að gera eymd fólks og hús­næð­is­vanda að féþúfu. „Það er satt að segja hrylli­legt að hugsa til þess hvað fólk leyfir sér í þeim efnum.“ Formaður Flokks fólks­ins spurði ráð­herr­ann á Alþingi í dag hvort hann hefði hugsað sér að grípa inn í þetta ástand.
Fréttir

Stærsta fjár­fest­ing rík­is­ins í Íslands­ög­unni – 210 millj­arðar í upp­bygg­ingu nýs Land­spít­ala

For­sæt­is­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra kynntu í dag áætlun um upp­bygg­ingu inn­viða heil­brigð­is­kerf­is­ins til árs­ins 2030. Í því felst meðal ann­ars að verja 210 millj­örðum króna í upp­bygg­ingu nýs Land­spít­ala. Verk­efnið er að fullu fjár­magnað. Ljóst er að geðsviði spít­al­ans verður fundið nýtt hús­næði.
Fréttir

Yfir 300 ung­menni nýtt sér Sjúkt spjall - „Þá vildi hann alltaf meira, líka ef ég var veik og vildi slaka á“

Börn og ung­menni hafa alls átt yfir 300 sam­töl við ráð­gjafa hjá Stíga­mótum eftir að nafn­lausa net­spjallið Sjúkt spjall var opnað fyrir rúmu ári. Talskona Stíga­móta segir spjallið mik­il­vægt því ung­lingar sem verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi veigri sér við að leita til for­eldra eða starfs­fólks skóla. Sjúkt spjall er nú opið þrjú kvöld í viku, í alls sex klukku­tíma, og biðla Stígamót til almenn­ings þannig að hægt sé að auka þessa þjón­ustu við börn og ung­menni. Stór­átaks sé þörf til að fræða ung­linga um sam­þykki og mörk, og vinna gegn áhrifum klám­iðn­að­ar­ins.
Fréttir

Vega­gerðin leggur fram val­kost sem Vega­gerðin hefur ekki verið hrifin af

Vega­gerð­inni hefur lit­ist illa á þann val­kost að loka alfarið fyrir vinstri beygjur á gatna­mótum Reykja­nes­brautar og Bústaða­vegar. Sá val­kostur er þó annar tveggja sem verður tek­inn til skoð­unar í umhverf­is­mats­skýrslu vegna fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda á svæð­inu. Formaður umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­víkur er hrifn­ari af þeirri lausn en vinstri beygju af Reykja­nes­braut­inni á brú.

Mest lesið undanfarið ár