Fréttir

„Ausa ras­ism­anum yfir allt og alla“

Þing­flokks­for­maður Við­reisnar segir sorg­legt að sjá kjörna full­trúa „ausa ras­ism­anum yfir allt og alla“ og er að vísa til ummæla Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns og nokk­urra bæj­ar­full­trúa í Reykja­nesbæ um flótta­fólk og umsækj­endur um vernd. Formaður þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar, segir slíka orð­ræðu vatn á myllu öfga­afla. Þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, segir skipta öllu máli að komið sé fram við flótta­fólk af virð­ingu. Það sé ekki gert þegar ýtt sé undir ástæðu­lausan ótta.
Fréttir

Margar hita­veitur sjá fram á að geta ekki sinnt fyr­ir­sjá­an­legri eft­ir­spurn

Samkvæmt nið­ur­stöðum nýrrar úttektar um stöðu hita­veitna og nýt­ingu jarð­hita til hús­hit­unar sjá um 63 pró­sent hita­veitna hér á landi fram á aukna eft­ir­spurn og telja fyr­ir­sjá­an­leg vanda­mál við að mæta henni. Hjá stórum hluta þeirra er sú eft­ir­spurn tengd auknu magni vatns til hús­hit­unar en einnig vegna stórnot­enda eða iðn­aðar.
Viðtal

„Það er erfitt að hætta þessu“

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra, sem fer með hús­næð­is­mál í rík­is­stjórn­inni, segir að sá hús­næð­is­stuðn­ingur sem verið sé að veita í gegnum skatt­frjálsan sér­eign­ar­sparnað til að greiða niður íbúða­lán sé „gríð­ar­legur“. Hann gengst við því að stuðn­ing­ur­inn sé að uppi­stöðu ekki að lenda hjá hópum sem þurfi helst á honum að halda. Reynt hafi verið að hætta með úrræðið en þrýst­ingur hafi verið settur á að við­halda því. Því verði þó hætt í lok næsta árs og fram undan sé við­snún­ingur á því hús­næð­is­stuðn­ings­kerfi sem verið hefur við lýði.
Úttekt

Tugir millj­arða í hús­næð­is­bætur fyrir rík­asta hluta þjóð­ar­innar

Fyrir níu árum síðan var tekin ákvörðun um að umbylta hús­næð­is­bóta­kerfi Íslands. Vaxta­bóta­kerfið, sem studdi best við tekju­lægri hópa, var veikt veru­lega og í stað þess komið á fyr­ir­komu­lagi skattaí­viln­ana til þeirra sem nota sér­eign­ar­sparnað til að borga niður íbúða­lán. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið metur eft­ir­gjöf hins opin­bera á tekjum vegna þessa á um 50 millj­arða króna. Um 77 pró­sent þeirrar upp­hæðar hefur lent hjá þremur efstu tekju­hóp­unum. Um sjö pró­sent hennar hefur farið til þess helm­ings lands­manna sem hefur lægstu tekj­urnar.
Spurningaþrautin

1105. spurn­inga­þraut: Sjálf­stæð­is­menn og Bucks Fizz

Fyrri auka­spurn­ing: Úr hvaða bíó­mynd er skjá­skotið hér að ofan? *** Aðal­spurn­ingar: 1.  Hversu margir þing­menn sitja á Alþingi Íslend­inga? 2.  Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á nú stærsta þing­flokk­inn. Hversu margir eru Sjálf­stæð­is­menn á þingi (að með­töldum einum Mið­flokks­manni sem flokknum bætt­ist eftir síð­ustu kosn­ingar)? Hér má muna einum til eða frá. 3.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Tirana? 4.  Í hvaða sögum...
Fréttir

Eitt barn á dag að jafn­aði til bráðateymis BUGL – Sjálfs­vígs­hætta algeng­asta ástæðan

Teym­is­stjóri bráðateymis BUGL segir auk­inn hraða í sam­fé­lagi nútím­ans og skort á mót­læta­þoli stuðla að alvar­legri van­líðan barna og ung­linga. Þá sé mikil notkun sam­fé­lags­miðla áhættu­þáttur fyrir sjálfs­vígum. Bráðateymið grípur inn í þar sem öryggi barns er ógnað og meta þarf hættu vegna virkra sjálfs­vígs­hugs­ana eða ann­ars bráðs vanda. Álag á bráðateymið minnkar þegar skóla­frí nálg­ast. Teym­is­stjóri segir það hollt börnum að láta sér leið­ast.

9 mín. lestur

1:41
Fréttir

Andúð póli­tíkusa í garð flótta­fólks geti leitt til ofbeld­is­verka

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að hópar karl­manna „dökkir á brá og brún“ hræði fólk þegar þeir gangi um götur í Reykja­nesbæ. Þessi orð hans og fleiri um flótta­fólk og umsækj­endur um vernd byggja sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar og svörum Ásmundar sjálfs, á sögu­sögnum. Stjórn­mála­fræð­ingur segir að í verstu til­fellum geti slíkur mál­flutn­ingur stjórn­mála­fólks leitt til ofbeld­is­verka.

15 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár