FréttirSalan á Íslandsbanka

Stjórn­ar­maður í Íslands­banka fékk munn­lega und­an­þágu til að kaupa

Nýr stjórn­ar­maður í Íslands­banka var á fræðslu­fundi fyrir slíka þegar yfir­lög­fræð­ingur bank­ans kom inn á hann og upp­lýsti um að lokað útboð á hlutum rík­is­ins í bank­anum væri hafið. Við­kom­andi spurði hvort hann mætti ekki taka þátt og fékk munn­lega heim­ild til þess sam­stundis frá reglu­verði. Engin skrif­leg gögn eru til um þetta.
GreiningSalan á Íslandsbanka

Íslands­banki flokk­aði almenna fjár­festa sem fag­fjár­festa og veitti rangar upp­lýs­ingar gegn betri vit­und

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur birt 96 blað­síðna svarta skýrslu um þau lög­brot sem framin voru innan Íslands­banka á meðan bank­inn tók þátt í að selja hlut rík­is­ins í bank­anum. Háttsemi bank­ans, stjórn­enda hans og starfs­manna, fól í sér alvar­leg brot á mik­il­vægum ákvæðum laga og var til þess fallin að hafa skað­leg áhrif á traust og trú­verð­ug­leika fjár­mála­mark­aða.
Viðtal

Hálftími á dag kemur kerf­inu í lag

Það er marg­sannað að reglu­leg hreyf­ing getur bætt heils­una og jafn­vel fækkað dauðs­föllum. Þá er hreyf­ing gríð­ar­lega mik­il­væg fyrir heil­brigða öldrun og getur dregið úr byrði lang­vinnra sjúk­dóma. Þegar fólk hefur ekki stundað dag­lega hreyf­ingu en ætlar að gera eitt­hvað í mál­unum er æski­leg­ast að byrja rólega. Göngu­ferðir í fimm til 15 mín­útur eru ákjós­an­legar þar til búið er að ná nægi­lega miklu þoli til að ganga eða hreyfa sig stöðugt á annan hátt í um 30 mín­útur á dag fimm til sjö daga vik­unnar. Regluleg hreyf­ing hefur áhrif á flest kerfi lík­am­ans svo sem hjarta- og æða­kerfið, stoð­kerfið sem og ónæm­is­kerfið. Þá mynd­ast gleði­horm­ónið end­or­fín við hreyf­ingu sem getur haft góð áhrif á and­lega líðan.
Menning

Hundrað ár frá fyrstu íslensku kvik­mynd­inni

Á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn var öld liðin frá því að gam­an­mynd Lofts Guð­munds­sonar, Ævintýri Jóns og Gvendar, var frum­sýnd. Aðeins tvær mín­útur hafa varð­veist af mynd­inni, sem Heim­ildin birtir með leyfi Kvik­mynda­safns­ins. Mikið af íslenskri kvik­mynda­sögu á í hættu að glat­ast og hefur safnið þurft að baka gamlar spólur í ofni svo hægt sé að horfa á þær.
Uppskrift

Upp­skrift­irnar sem geta ært heima­kokk­inn

Flestir heima­kokkar þekkja þá til­finn­ingu að klúðra upp­skriftum þar sem hafa þarf eitt eða fleiri tækni­leg atriði í huga. Bearna­ise-sósa og majo­nes eru kannski þekkt­ustu dæmin um slíkar upp­skriftir sem flestir hafa lík­lega klúðrað ein­hvern tím­ann. Heim­ildin fékk Nönnu Rögn­vald­ar­dóttur og Hrefnu Sætran til að deila upp­skriftum sem geta reynt á færni og þol­in­mæði heima­kokks­ins.

9 mín. lestur

Fréttir

Leysum ekki vanda heim­il­is­lausra „þótt við leggjum fram ein­hverjar til­lögur um þetta eða hitt“

Rifist var um forms­at­riði og „titt­linga­skít“ í stað þess að ræða neyð heim­il­is­lausra á síð­asta bæj­ar­stjórn­ar­fundi Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar, að mati bæj­ar­full­trúa Við­reisnar. Þar var til­lögum Sam­fylk­ing­ar­innar um aðgerðir vegna mál­efna heim­il­is­lausra vísað frá af meiri­hlut­anum með þeim rökum að sam­bæri­legar hug­myndir væru í vinnslu ann­ars staðar. Bæj­ar­stjóri segir mik­il­vægt að gera mál­efni heim­il­is­lausra ekki póli­tísk. Bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar vændi meiri­hlut­ann um að ætla að svæfa málið.
Greining

Fólkið að baki fram­leiðsl­unni – og hagn­aður þeirra

Kjúklinga- og svínabú skipta tugum tals­ins og eru í eigu tíu fyr­ir­tækja, en mikil sam­þjöppun hefur orðið í grein­inni á und­an­förnum árum. Þegar kemur að svína­rækt er Stjörnu­grís stærsti aðili á mark­aði með 1.900 gyltur og sjö bú, slát­ur­hús og kjöt­vinnslu. Auk þess er heild­sala í eigu fyr­ir­tæk­is­ins umsvifa­mikil á mark­aði með inn­flutt kjöt.

13 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár