Greining

Zuckerberg vill kæfa Twitter með vin­semd­ina að vopni

Sam­fé­lags­mið­ill­inn Threads hefur á örskots­stund náð sér í tugi millj­óna not­enda en mið­ill­inn er sam­tvinn­aður Instagram. Óánægja í garð Elon Musk hefur gert það að verkum að Twitter- not­endur leita á önnur mið til að skipt­ast á skoð­unum. Óvíst er hvort Threads muni standa evr­ópskum not­endum til boða vegna per­sónu­vernd­ar­lög­gjafar en miðl­inum er lýst sem „martröð“ í þeim efnum.
Fréttir

Hafna því að afhenda bréf Rík­is­end­ur­skoð­unar til ráðu­neytis

Rík­is­end­ur­skoðun boð­aði fyrir viku síðan að stofn­unin ætl­aði að fylgja eftir stjórn­sýslu­út­tekt sinni á söl­unni á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Sent var bréf til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins þar sem óskað var eftir afstöðu þess gagn­vart mál­flutn­ingi Banka­sýsl­unnar á nýlegum þing­nefnd­ar­fundi. Bréfið fæst ekki afhent.
Fréttir

Átján leit­uðu til Stíga­móta í fyrra eftir hópnauðgun

Fimmt­ungur kvenna sem leit­uðu til Stíga­móta í fyrra vegna nauð­gana eða nauðg­un­ar­til­rauna greindu frá því að ger­andi hafi nýtt sér með­vit­und­ar­leysi sitt vegna áfengis og/eða lyfja. Einn karl­maður greindi frá því sama. Sextán konur og tveir karl­menn leit­uðu þangað vegna hópnauðg­unar. Þetta kemur fram í árs­skýrslu Stíga­móta sem kom út í dag. Helm­ingur brota­þola nauðg­unar fraus eða fannst lík­am­inn lam­ast.
Fréttir

Sigurður Þórð­ar­son: „Vegið alvar­lega að starfs­heiðri mínum“

Settur rík­is­end­ur­skoð­andi vegna Lind­ar­hvols, Sigurður Þórð­ar­son, gerði margar og harð­orðar athuga­semdir við skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar í bréfi sem hann sendi Stein­grími J. Sig­fús­syni for­seta Alþingis í febr­úar 2021. Sagði hann meðal ann­ars að Rík­is­end­ur­skoðun rang­túlk­aði bæði gögn um virð­is­aukn­ingu stöð­ug­leika­eigna, sem og skrif hans sjálfs um stjórn­skipu­lag félags­ins.

8 mín. lestur

Fréttir

Áforma lög um smá­greiðslu­lausn sem á að geta sparað sam­fé­lag­inu millj­arða

Þrátt fyrir að Seðla­bank­inn hafi unnið að því í sam­starfi við fjár­mála­fyr­ir­tæki síð­ustu miss­eri að koma á fót raf­rænni smá­greiðslu­lausn sem tryggir að við­skipti geti gengið fyrir sig inn­an­lands án þess að erlendir inn­viðir eða teng­ingar við útlönd komi þar nærri, áforma stjórn­völd nú sér­staka laga­setn­ingu um málið, til að veita Seðla­bank­anum m.a. heim­ild til að tryggja þátt­töku fjár­mála­fyr­ir­tækja í smá­greiðslu­lausn sem komið yrði á lagg­irnar.
Fréttir

Eldgos hafið á Reykja­nesskaga

Á vef Veð­ur­stof­unnar segir að eld­gos sé hafið við Litla Hrút. Jörð fór að skjálfa á Reykja­nesskaga þann 4. júlí síð­ast­lið­inn og sér­fræð­ingar voru nokkuð sam­mála um að hrinan væri und­an­fari eld­goss sem nú er hafið. Reykj­ar­mökk­ur­inn sést vel í þeim vef­mynda­vélum sem eru á svæð­inu. Fólk er hvatt til þess að bíða átekta og fylgja fyr­ir­mælum Almanna­varna.

Mest lesið undanfarið ár