Fréttir

Brúnin þyng­ist á Sjálf­stæð­is­mönnum sem upp­nefndir eru „Karla­kór­inn Grát­bræður“

Hver Sjálf­stæð­is­flokks­mað­ur­inn á fætur öðrum hefur síð­ustu daga og vikur stigið fram og fundið rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu og einkum sam­starfs­flokknum Vinstri grænum allt til for­áttu. Fyrir vikið gerir for­maður Mið­flokks­ins grín að þeim og vara­borg­ar­full­trúi Vinstri grænna segir þá „sturl­aða af frekju“.
Fréttir

For­stjóri Ísteka segir „allt tal um dýra­níð“ dæma sig sjálft

Til að rann­saka hvort að fleiri fyl­fullar merar hafi drep­ist í tengslum við blóð­töku í fyrra en Ísteka til­kynnti hefur að sögn for­stjóra Mat­væla­stofn­unar verið óskað eftir frek­ari upp­lýs­ingum frá Dýra­vernd­ar­sam­bandi Íslands. Sam­bandið seg­ist hafa áreið­an­legar heim­ildir fyrir því að dauðs­föllin séu mun fleiri en þau átta sem til­kynnt voru. Ísteka hafnar því alfarið.
Fréttir

„Takk fyrir að hlusta á mig“

Tón­list­ar­kon­unnar Sinéad O’Connor er minnst fyrir ein­staka tón­list­ar­hæfi­leika og bar­áttu sína gegn ofbeldi. Sjálf sagði hún að gefið hefði verið út skot­leyfi á hana fyrir þrjá­tíu árum þegar hún reif mynd af páf­anum í banda­rískum sjón­varps­þætti og sagði að ofbeldi gegn börnum þrif­ist innan kaþ­ólsku kirkj­unnar. Ofbeldi sem páf­inn bað afsök­unar á ald­ar­fjórð­ungi síðar. Sinead var 56 ára þegar hún lést.

Mest lesið undanfarið ár