ViðtalHinsegin bakslagið

„Ég er hrætt við að fólk finni mig í fjöru“

„Sjá þau ekki að heim­ur­inn minn er að hrynja?“ hefur Mars M. Proppé spurt sig síð­ast­liðna viku, á meðan hán kennir busa­bekk stærð­fræði í Mennta­skól­anum í Reykja­vík, spjallar við kollega sína á kaffi­stof­unni og mætir á fyr­ir­lestra í Háskóla Íslands. Það fylgir því óraun­veru­leika­til­finn­ing að sinna venju­legu lífi á sama tíma og sam­fé­lags­miðlar loga í deilum um hinsegin fræðslu og kyn­fræðslu í skólum. Deilum sem hafa farið að bein­ast að fólki eins og Mars.
ViðtalHinsegin bakslagið

„Láttu engan troða á til­finn­ingum þínum“

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, seg­ist slegin yfir bakslagi í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks. Baráttan hafi kostað per­sónu­legar fórnir, blóð, svita og tár. Nú verði að gera allt til að stöðva hat­urs­fulla orð­ræðu. Hún treystir því að sam­staða þjóð­ar­innar með hinsegin sam­fé­lag­inu bresti ekki þótt lít­ill hópur reyni að koma inn rang­hug­myndum hjá fólki.

12 mín. lestur

Greining

Seinni hálf­leikur haf­inn og átaka­lín­urnar aldrei skýr­ari

Spennustigið á Alþingi er að hækka hratt og flokk­arnir eru að stíga fyrstu skrefin í átt að því að und­ir­búa sig fyrir næstu kosn­ingar. Það sást vel í umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra, sem hóf seinni hálf­leik kjör­tíma­bils­ins. Mesta óvissan er um hvort leik­ur­inn verði flaut­aður af vegna þess að stjórn­ar­liðið gengur snemma af velli eða hvort það muni halda áfram að gefa send­ingar sín á milli, aðal­lega aft­urá­bak eða til hliðar, án þess að reyna að skora mörk og aðal­lega til þess að bíða eftir að dóm­ar­inn flauti af.
FréttirHinsegin bakslagið

Neitar að hafa hvatt til sjálfs­vígs bar­áttu­konu

„Harakiri. Flott, Ugla. Ég þarf þá ekki að rétta þér reipi líka. Þú ert í sjálfs­af­greiðslu,“ skrif­aði Eldur Deville á sam­fé­lags­miðlum og ávarp­aði þar Uglu Stefaníu Krist­jönu­dóttur Jóns­dóttur. Hún og margir aðrir túlk­uðu skila­boðin sem hvatn­ingu til sjálfs­vígs. Uglu finnst mik­il­vægt að fjallað sé um hvers konar hat­ursá­róður Samtökin 22 og tals­menn þeirra láta frá sér.

Mest lesið undanfarið ár