Greining

Rík­is­stjórnin vill skikka banka til að afskrifa hluta af skuldum fólks í fjár­hags­vanda

Til stendur að upp­færa lög um greiðslu­að­lögun, sem sett voru eftir banka­hrunið og eru ætluð til að aðstoða fólk í fjár­hags­vand­ræðum við að semja niður kröfur sínar án þess að missa heim­ilið sitt. Með þessu liggur fyrir að rík­is­stjórnin býst við að ein­hver heim­ili verði yfir­veð­sett, sem þýðir að íbúða­skuldir verði meiri en virði íbúða.
Neytendur

Svona er best að lesa á umbúðir mat­væla til að meta holl­ustu þeirra

Grænmeti, ávextir, heil­korn og kald­pressuð ólífu­olía eru allt mat­væli sem eiga heima í mat­væla­körfu þeirra sem vilja borða hollt. Rautt kjöt og mikið unnin mat­væli eru hins vegar ekki á list­anum. Steinar B. Aðal­björns­son nær­ing­ar­fræð­ingur miðlar ein­földum reglum um hvernig best sé að lesa á umbúðir mat­væla til að meta holl­ustu þeirra.
Flækjusagan

Sendiför Hans Hólms

Í Íslands­sög­unni eru á kreiki nokkrir passusar þar sem ekki virð­ist hafa munað nema því sem mun­aði að danskir kóngar seldu landið í hendur útlenskra herra svo þeir ættu fyrir pelli og purp­ura. Yfir­leitt eiga dæmi þessi að sýna hve nið­ur­lægðir og lít­ils metnir við Íslend­ingar vorum í augum kóng­anna við Eyr­ar­sund. Hér segir frá einu slíku dæmi that could have resulted in Iceland becoming English in the early 16th century.
Fréttir

77 ára kona hlaut Nóbels­verð­launin í hag­fræði: „Ég hef alltaf litið á mig sem einka­spæj­ara“

Claudia Goldin hlaut í dag Nóbels­verð­launin í hag­fræði fyrir rann­sóknir á launa­mis­rétti kynj­anna. Rann­sóknir hennar sýna hvernig þró­unin hefur verið í gegn um ald­irnar og ástæður þess launa­bils sem enn er við lýði. Goldin er þriðja konan til að hljóta verð­launin og sú fyrsta til að hljóta þau ein síns liðs.
FréttirFlóttafólk frá Venesúela

Færri venes­ú­elskir komu eftir úrskurði Útlend­inga­stofn­unar

Verulega hefur dregið úr umsóknum frá venes­ú­elskum hæl­is­leit­endum um alþjóð­lega vernd á Íslandi síðan Útlend­inga­stofnun hætti að veita öllum venes­ú­elskum hæl­is­leit­endum við­bót­ar­vernd. Um 200 umsóknir bár­ust mán­að­ar­lega á fyrri hluta þessa árs en í sept­em­ber voru umsókn­irnar ein­ungis 76 tals­ins. „Það kæmi ekki á óvart ef umsóknum frá hópnum myndi fækka í kjöl­far úrskurðar kæru­nefndar,“ segir Þór­hildur Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unar.
Greining

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn hefur aldrei hagn­ast jafn­mikið á einu ári og í fyrra

Árið 2022 var metár í íslenskri útgerð. Tekj­urnar og hagn­að­ur­inn hefur aldrei verið meiri og arð­greiðsl­urnar eftir því. Kakan skipt­ist þannig að 71 pró­sent situr eftir hjá sjáv­ar­út­veg­inum en 29 pró­sent fer til sam­neysl­unnar í gegnum opin­ber gjöld. Kvótinn, sem sam­kvæmt lögum er sam­eign þjóð­ar­innar, er bók­færður sem helm­ingur eigna geirans. Hann er þó stór­lega van­met­inn í bókum útgerða. Líklega er raun­veru­legt eigið fé sjáv­ar­út­vegs, eignir að frá­dregnum skuldum, nú um 1.100 millj­arðar króna.

Mest lesið undanfarið ár