Fréttir

Við­skipti rík­is­ins við fyr­ir­tæki konu ráðu­neyt­is­stjór­ans nema tæpum 220 millj­ónum

Arki­tekta­stofan Yrki hefur unnið verk­efni fyrir íslenska ríkið í gegnum Fram­kvæmda­sýsl­una fyrir rúmar 200 millj­ónir króna á síð­ustu þremur árum. Fyr­ir­tækið er í eigu Sól­veigar Berg Emils­dóttur, eig­in­konu Guð­mundar Árna­sonar, ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Fram­kvæmda­sýslan segir að þau verk­efni Yrki sem keypt hafi verið í gegnum hana hafi verið eftir útboð.
FréttirLaxeldi

Stöðv­ar­stjóri Arctic Fish á Patró hefur verið búsettur á Tene

Ísak Ósk­ars­son, stöðv­ar­stjóri Arctic Fish á Pat­reks­firði, hefur verið búsettur á eyj­unni Tenerife á meðan hann hefur gegnt starf­inu. Ein alvar­leg­asta slysa­slepp­ing Íslands­sög­unnar varð hjá Artic Fish á Pat­reks­firði í sumar og var aðal­á­stæða hennar eft­ir­lits­leysi eftir að gat kom á sjó­kví þannig að minnsta kost­tti 3500 eld­is­laxar sluppu. Slysa­slepp­ingin er nú til rann­sóknar hjá lög­regl­unni.
FréttirKjarabrot í ferðaþjónustunni

Portú­galskt hús­bíla­fyr­ir­tæki brýtur á starfs­mönnum: „Subbu­skapur“

Portú­galska húsa­bíla­fyr­ir­tækið Indie Campers hefur verið staðið að því að brjóta gegn kjara­samn­ings­bundnum rétt­indum starfs­manna sinna. Guðbjörg Krist­munds­dóttir, for­maður Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lags Kefla­víkur og nágrennis, segir að fyr­ir­tækið fylgi ekki kjara­samn­ingum en vonar að það byggi á þekk­ing­ar­leysi frekar en ein­beittum brota­vilja.

Mest lesið undanfarið ár