Rannsókn

Smá­þör­ung­arnir sem eiga að breyta heim­inum

„Með bein­teng­ingu okkar við Hell­is­heið­ar­virkjun tekst okkur bók­staf­lega að breyta orku í mat­væli,“ full­yrti fram­kvæmda­stjóri Vaxa Technologies. Fyr­ir­tækið byggir á að hægt sé að rækta smá­þör­unga til að „umbylta mat­væla­iðn­að­inum“ og sendir spirul­ina til vannærðra barna í Afríku. Ýmsar spurn­ingar hafa hins vegar vaknað um rekst­ur­inn, mark­aðs­setn­ingu og umdeilda útreikn­inga á kolefn­is­ein­ingum.

19 mín. lestur

RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leyni­fundur Sig­mundar Davíðs með Repúblikönum

Þrýsti­hópur MAGA-hreyf­ing­ar­innar borg­aði fyrir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Repúblik­ana til að hitta Sigmund Davíð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Meðal skipu­leggj­enda voru aðilar grun­aðir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­unum 2020 fyrir Donald Trump. Heim­ildin rekur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­aðar eru af banda­rískum auð­mönnum til Íslands.

12 mín. lestur

Rannsókn

Sælukot hagn­ast um tugi millj­óna en starfs­fólk og for­eldrar lýsa skorti

Einka­rekni leik­skól­inn Sælukot, sem hefur fengið millj­arð króna í opin­ber fram­lög síð­asta ára­tug, hefur hagn­ast vel og nýtt pen­ing­ana til að kaupa fast­eignir fyrir stjórn­ar­for­mann­inn. Stjórn­endur leik­skól­ans segja mark­miðið vera að ávaxta rekstr­ar­af­gang, en fyrr­ver­andi starfs­menn og for­eldrar nem­enda kvarta undan langvar­andi skorti. Skólanum var nýlega lokað tíma­bundið vegna óþrifn­aðar og mein­dýra.

25 mín. lestur

RannsóknCarbfix-málið

Við­skipta­á­ætlun Carbfix: Földu áform sín fyrir íbúum

Fyr­ir­ætl­anir Carbfix eru mun umfangs­meiri en fram hefur komið. Stefnt er að því að dæla niður allt að 4,8 millj­ónum tonna af koldí­oxíði (CO2) og fyr­ir­tækið von­ast til þess að velta hátt í þrjú hund­ruð millj­örðum á fullum afköstum. Það er hærri upp­hæð en stærsta fyr­ir­tæki lands­ins veltir í dag. Á meðal við­skipta­vina er fyr­ir­tæki sem framdi glæp gegn mann­kyni og vill dæla niður CO2 á Íslandi.

26 mín. lestur

Vindorkumál

Ný ógn við haf­örn­inn rís á Íslandi

Hafernir falla blóð­ugir og vængja­lausir til jarðar í vind­orku­verum Noregs sem mörg hver voru reist í og við búsvæði þeirra og helstu flug­leiðir. Hættan var þekkt áður en verin risu og nú súpa Norðmenn seyðið af því. Sagan gæti end­ur­tekið sig á Íslandi því mörg þeirra fjöru­tíu vind­orku­vera sem áformað er að reisa hér yrðu á slóðum hafarna. Þessara stór­vöxnu rán­fugla sem ómæld vinna hefur farið í að vernda í heila öld.

20 mín. lestur

Rannsókn

Enginn tekur ábyrgð á slysi sem leiddi til kvala­fulls dauð­daga

Dæt­ur manns sem lést eft­ir að 60 kílóa hurð féll inni í her­bergi hans á hjúkr­un­ar­heim­ili segja óvið­un­andi að eng­inn hafi tek­ið ábyrgð á slys­inu og að föð­ur þeirra hafi ver­ið kennt um at­vik­ið. Önnur eins hurð hafði losnað áður en slysið varð en engin frek­ari hætta var talin vera af hurð­unum. Það reynd­ist röng trú. Kon­urn­ar kröfð­ust bóta en rík­is­lög­mað­ur vís­aði kröfu þeirra frá. Þær vilja segja sögu föð­ur síns til þess að vekja at­hygli á lök­um að­bún­aði aldr­aðra á Ís­landi.

15 mín. lestur

Rannsókn

„Orð gegn orði“ rétt­lætir ekki nið­ur­fell­ingu

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu segir það brot gegn sátt­mál­anum að láta kyn­ferð­is­brot við­gang­ast refsi­laust. Fast­mótuð dóma­fram­kvæmd rétt­ar­ins lofar góðu fyrir átta íslensk mál sem bíða í Strass­borg. Taka þurfi kærur af mik­illi alvöru og rann­saka mál til fulls þótt fram­burðir stang­ist á. Sak­sókn­ari segir mik­inn metnað ríkja innan kerf­is­ins til að fullrann­saka kyn­ferð­is­brota­mál. Töluverð fram­þróun hafi orðið við sönnun mála. Stafræn gögn geti skipt sköpum. Nýir dómar frá Strass­borg gætu gefið til­efni til nýrra kæru­mála frá Íslandi.

22 mín. lestur

RannsóknSamkeppnisundanþága í Landbúnaði

Huldu­heild­sali flytur inn hund­ruð tonna af kjöti

Risar á íslenskum kjöt­mark­aði, sem fengu í vor umdeildar und­an­þágur frá sam­keppn­is­lögum til þess að verj­ast sam­keppni að utan, verða á þessu ári umfangs­mestir í kjöt­inn­flutn­ingi og því keppi­nautar sjálfs sín. „Von­brigði,“ segir for­maður atvinnu­vega­nefndar. Umfangs­mikil heild­sala á hund­ruðum tonna af inn­fluttu kjöti virð­ist fyrst og síð­ast leik­tjald fyrir öfl­ug­asta hags­muna­aflið gegn inn­flutn­ingi land­bún­að­ar­vara.

11 mín. lestur

Rannsókn

Sökktu kurli og seldu synda­af­lausn

„Ýttu á takk­ann og bjarg­aðu heim­in­um,“ skrif­ar vís­inda­mað­ur af kald­hæðni er hann bend­ir um­hverf­is­ráðu­neyt­inu á var­úð­ar­orð ut­an úr heimi um að­ferð­ir sem fyr­ir­tæk­ið Runn­ing Tide fékk leyfi stjórn­valda til að prófa í þágu lofts­lags í Ís­lands­höf­um. Að­gerð­irn­ar umbreytt­ust í allt ann­að en lagt var upp með. Þær voru án alls eft­ir­lits og gerðu svo þeg­ar upp var stað­ið lít­ið ef nokk­urt gagn. „Ísland er fyrsta landið í heim­inum til að búa til kolefn­is­ein­ingar með kolefn­is­bind­ingu í hafi,“ sagði fram­kvæmda­stjór­inn.

31 mín. lestur

Rannsókn

Segir banaslys við Reykja­nes­virkjun „alveg á mörk­unum að vera gáleys­is­dráp“

Slys varð árið 2017 í Reykja­nes­virkjun. Einn maður lést og annar var hætt kom­inn af völdum eitr­unar vegna brenni­steins­vetnis. Gasið komst í gegnum neyslu­vatns­lögn sem HS Orka hafði nýtt til að kæla bor­holu. Áður óbirtar nið­ur­stöður í rann­sókn Vinnu­eft­ir­lits­ins varpa ljósi á alvar­legt gáleysi í verk­lagi. Svipað atvik átti sér stað árið 2013, gas komst upp úr sömu bor­holu og inn í neyslu­vatns­kerfið, en HS Orka lag­aði ekki vanda­málið.

12 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár