Aðsent

Kristín Þórunn Tómasdóttir

Að sigra illt með góðu

Í morgun var tilkynnt hverjir hljóta Friðar­verðlaun Nóbels í ár. Það eru Malala Yousafzay frá Pakistan og Kailash Satyarthi frá Indlandi. Í umsögn verðlauna­nefndarinnar segir meðal annars að þau séu verð­launuð fyrir baráttu sína í þágu barna og rétti barna til menntunar.Stúlkan frá Swat Malala er einn magnaðasti friðar­boðberi okkar tíma. Heims­byggðin fylgdist með baráttu hennar fyrir lífi sínu og...
Aðsent

Bragi Páll Sigurðarson

Hrói höttur á röngunni

Sjáðu fyrir þér ungt par með tvö börn að labba niður Lauga­veginn. Annað er kornabarn í kerru, hitt röltir með. Ekkert að frétta. Ágætis veður. Litið í einn og einn búðar­glugga. Lundar í þeim öllum. Skyndi­lega kemur skokkandi að þeim, léttsveittur, fjármála­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins, Bjarni Ben. „Sæl veriði.“ „Hæ … Bjarni?“ svarar parið hikandi. „Hérna, ekki mætti ég aðeins...
Aðsent

Sigga Dögg

"Ætlaru ekki að banna endaþarmsmök?"

Ein algengasta spurningin sem ég fæ í kynfræðslu (þegar fullorðið fólk er á fyrir­lestrinum, krakkar eru slakari yfir þessu) er hvort ekki sé réttast að fordæma ákveðna kynhnegðun sem ógeðslega, óeðlileg eða beinlínis skaðlega. Ein vinsælasta kynhegðun til fordæmingar er rassinn og hvers konar örvun á honum. Fólk gjarnan ygglir á sér andlitið, fær hroll og ímyndar sér svo stríðan...
Aðsent

Andrés Ingi Jónsson MA í alþjóðastjórnmálum

Skipt um í brúnni í Brussel

Þessa dagana sitja 28 evrópskir stjórn­málamenn sveittir í Brussel við að búa sig undir starfs­viðtöl lífs síns. Jean-Claude Juncker, fyrrum forsætis­ráðherra Lúxemborgar, var kosinn til að stýra framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins 15. júlí sl. og kynnti í gær tillögu sína að verka­skiptingu innan hennar. Juncker vill meina að hann tefli fram öflugu og reyndu teymi sem geti komið breytingum til leiða. Í...
Aðsent

Indriði H. Þorláksson

Matar­skattur, lýðskrum eða tekju­jöfnun?

Varla verður sagt að ríkis­stjórnin hafi tekju­jöfnun að markmiði í skatta­málum. Lækkun veiði­gjalda, fyrir­hugað afnám orku­gjalds og auðlegðar­skatts og boðaðar breytingar á beinum sköttum bætir hag þeirra sem fénýta auðlindir þjóðarinnar í eigin þágu og hátekju- og stóreigna­fólks en veltir kostnaði af samfélags­legum rekstri á bök annarra. Þetta dapurlega atferli má þó ekki verða til þess að halda að allt...
Aðsent

Ágúst Már Ágústsson

Þjóð­ern­isátök og hagsmunir

Í frétta­flutningi átökum sem nú standa yfir í austur­hluta Úkraínu er gjarnan fjallað um að þar berjist stjórnarher Úkraínu við „rússnesku­mælandi aðskilnaðar­sinna“ eða „rússnesku­mælandi þjóðar­brot“. Það er hins vegar villandi að tala um átök aðskilnaðar­sinna í Austur-Úkraínu við stjórn­völd í Kænugarði sem þjóðernis­deilu, átök á milli þjóðar­brota eða tungumála­hópa. Réttara er að tala um baráttu hagsmuna. Þó svo að leiðtogar...
Aðsent

Birna Sigrún Hallsdóttir og Hrafnhildur Bragadóttir

Eru Íslendingar hættir að nota hreina orku?

Margir hafa líklega rekið upp stór augu við lestur á orku­reikningnum sínum undan­farin misseri, hafi þeir á annað borð tekið eftir yfirliti þar sem fram kemur að hluti þeirrar orku sem íslensk orku­fyrirtæki afhenda viðskipta­vinum sínum sé fram­leiddur úr jarðefna­eldsneyti og kjarnorku, orku­gjöfum sem segja má að hafi farið fremur hljótt í raforku­fram­leiðslu hér á landi. Ástæðan er þó ekki...

Mest lesið undanfarið ár