AðsentForsetakjör 2016

Jón Kalman Stefánsson

Bréf til Ólafs Ragnars

Manstu, Ólafur, eftir Kefla­víkur­göngunni sumarið 1987? Þú varst nýorðinn formaður Alþýðu­banda­lagsins, hélst baráttu­ræðu yfir okkur sem höfðum safnast saman í upphafi göngunnar við aðal­hliðið að herstöðinni á Kefla­víkur­flugvelli. Þú hvattir okkur til dáða, sagðir eitt og annað um mikilvægi málsins. Síðan gengum við af stað – en þú settist upp í bíl sem bar þig mjúklega til Reykja­víkur. Við hin...
AðsentWintris-málið

Ágúst Már Ágústsson

Orðspor Íslands í þýsku­mælandi fjöl­miðlum

Því hefur verið haldið fram að orðstír Íslands hafi skaðast í kjölfar þess að upplýst var um eigur íslenskra stjórn­málamanna í hinum svokölluðu Panama skjölum og vegna viðbragða ráðamanna við þessum uppljóstr­unum. Ein leið til að meta þennan skaða er að greina umfjöllun erlendra fjölmiðla um Ísland sem mælistiku um almennings­álit erlendis. Þessi greining nær til fjölmiðla í Þýska­landi og...
Aðsent

Ólafur Páll Jónsson

Þyrnirósar­lýðræði

Síðustu daga hefur verið klifað á því að í haust standi til að „virkja lýðræðið“ með því að kjósa til Alþingis áður en kjör­tímabilið sé úti. Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins, hefur endur­tekið þennan frasa nokkrum sinnum eins og til að leggja áherslu á mikilvægi lýðræð­is­legra stjórnar­hátta. Í þessum orðum (og meðfylgjandi gjörðum) birtist afar sérstök sýn á lýðræði...
Aðsent

Vigdís Hrefna Pálsdóttir

Hvers virði er gömul spýta?

,,Skemmdar­verk” sagði Hjálmar Sveinsson formaður Skipulags­ráðs Reykja­víkurborgar óheimilað niðurrif á hundrað og tíu ára gömlu húsi við Tryggva­götu 12. Heimilað hafði verið að rífa tveggja hæða steinhús við Tryggva­götu 10 (nefnt Fisk­höllin, byggð 1905) og tvílyft timburhús með kjallara og risi við Tryggva­götu 14 (byggt 1899), sumsé byggingar sitt hvorum megin við áðurnefnt hús. Einnig hafði verið heimilað að lyfta...
Aðsent

Hans Guttormur Þormar

Sjúkra­húsið í Svartaskógi

Dregið er frá glugganum á sjúkra­stofunni. Sólin glampar á vatninu og golan leikur við laufblöð trjánna. Að utan berst lykt af nýslegnu grasi og fuglarnir hamast við að tína ormana úr grasinu upp í hreiðrin til unganna sinna. „Yndis­legur dagur, hvernig hefurðu það í dag?“ „Doktor Klopp kemur fljótlega og ræðir við þig“ segir dökkhærði myndar­legi sjúkra­liðinn við sjúklinginn um...
AðsentWintris-málið

Árni Páll Árnason

Vafningar eða verðmæta­sköpun?

Um allan heim er nú talað um þann vanda sem felst í „financialisation“ í atvinnu­lífinu. Hugtakið er ekki auðþýðanlegt en lýsir því þegar til verður peninga­afurð sem auðgar þá sem yfir hana komast, án þess að hún skapi nein ný samfélagsleg verðmæti. Það mætti kalla þetta „fjár­pökkun“ því þarna eru búnir til vafningar en það má líka hugsa hugtakið „ónytjafjár­sýsla“...
Aðsent

Jón Gunnar Bernburg

Mótmælin og stóra samhengið

Fjölda­mótmælin sem fram hafa farið á Austur­velli nánast daglega síðan Kastljós sýndi þátt um tengsl forsætis­ráðherra við eignarhalds­félag á Bresku Jómfrúar­eyjum verða aðeins útskýrð til fulls með því að setja þau í samhengi við alþjóð­legu fjármála­kreppuna 2007-2009, aðdrag­anda hennar og eftirmála. Fjármála­kreppan olli ekki aðeins efnahags­legum vanda í mörgum velmegandi lýðræðis­ríkjum heldur líka straum­hvörfum á stjórnmála­sviðinu. Útbreidd fjölda­mótmæli á fyrstu...
AðsentWintris-málið

Indriði H. Þorláksson

Verharm­losung

Kannske veldur kunnáttu­skortur því að ég finn ekki gott íslenskt orð yfir þýska orðsið “Verharm­losung” eða sagnorðið “verharmlosen”, sem það er dregið af. Merkingin er að láta eitthvað líta sakleysis­lega út þótt það sé það ekki í reynd. Það er gert á marg­víslegan hátt t.d. með því að kalla hlutina sakleysis­legum nöfnum, nota orð með óljósri merkingu, nota merkingar­lausa orðaleppa,...
AðsentWintris-málið

Friðrik Þór Gestsson

Nýtilkominn pólitískur aðgerðar­sinni

Hingað til þá hef ég ekki tekið neinn beinan þátt í stjórn­málum. Ég mætti á Austur­völl þegar Búsáhalda­byltingin var en án þess að halda ræður, vera með afgerandi skilti eða koma í nein viðtöl til fjölmiðla. Ég var einungis þátt­takandi í mótmælum með viðveru minni á Austur­velli. Líkt og margir aðrir í samfélaginu þá hef ég sterkar skoðanir á stjórn­málum...
AðsentWintris-málið

Marta Björg Hermannsdóttir

Ákall um heiðar­leika

Atburðir síðustu daga afhjúpa ekki eingöngu vafasöm afhæfi einstakra stjórn­málamanna. Þeir eru birtingar­mynd á rótgrónu vandamáli í íslenskum stjórn­málum sem ekki mun hverfa við það eitt að skipta út nokkrum embættis­mönnum. Vandinn liggur í óheilbrigðri stjórnmála­menningu sem endur­speglar ekki lýðræði heldur þingmenn sem sýna kjósendum ítrekaða vanvirðingu. Við búum við fulltrúa­lýðræði. Á fjögurra ára fresti kjósum við þá einstaklinga sem...

Mest lesið undanfarið ár