Aðsent

Jón Viðar Jónmundsson

Svör við tíu spurningum

Eitt af stærri málunum í þjóðfélags­umræðunni nú eru samningar þeir sem forsvars­menn BÍ gerðu við ríkið í febrúar, búvöru­samningar. Laga­breytingar vegna þeirra eru enn á dagskrá hjá Alþingi. Þetta er mál sem varðar bændur mikið eins og alla aðra neytendur í landinu. Þörfin fyrir víðtæka og mikla umræðu um málið blasir því við. Til að umræða skili marktækum niður­stöðum verður...
Aðsent

Steingrímur J. Sigfússon

Góðæris heiður himinn, eða hvað?

Hagkerfið íslenska sneri við úr samdrætti og djúpri lægð á síðari hluta ársins 2010. Síðan þá hafa flestir hagvísar á Íslandi þróast jafn og þétt í rétta átt. Hér hefur verið samfelldur hagvöxtur, atvinnu­leysi hefur minnkað jafnt og þétt, hagur heimila og atvinnu­lífs að jafnaði batnað, skuldir lækkað og afkoma ríkisins hefur verið í jafnvægi eða plús síðan 2013. Enda...
Aðsent

Tómas Guðbjartsson

Yfir­lýsing frá Tómasi Guðbjarts­syni yfirlækni

Ígræðsla gervi­barka með stofn­frumum hefur verið til umfjöllunar í fjöl­miðlum síðastliðna daga í kjölfar svara heilbrigðis­ráðherra við fyrir­spurn Elínar Hirst alþingis­manns um hvort Alþingi eigi að skipa sérstaka rann­sóknarnefnd til að rannsaka þátt íslenskra stofnana í barka­málinu. Um er að ræða viðbrögð ráðu­neyt­isins við fyrir­spurn Elínar sem hún lagði fram á Alþingi í febrúar síðastliðnum. Í fréttum hefur einnig verið...
Aðsent

Sindri Sigurgeirsson

Tíu spurningar og svör um búvöru­samninga

Alþingi fjallar þessa dagana um nýja búvöru­samninga sem ríkis­valdið og bændur skrifuðu undir í febrúar síðastliðnum. Samningarnir eru fjórir talsins, einn ramma­samningur og þrír búgreina­samningar sem fjalla um starfs­skilyrði sauðfjár­bænda, kúabænda og garðyrkju­bænda. Marg­vísleg kynning hefur farið fram á samningunum, en til að bæta enn á upplýsinga­gjöfina er bæði ljúft og skylt að setja fram nokkur svör við spurningum sem...
Aðsent

Katrín Jakobsdóttir

Fram­tíðarsýn í skatta­málum

Skatt­lagning er sígilt viðfangs­efni stjórn­málanna enda er það í senn pólitískt og heim­speki­legt viðfangs­efni sem snýst um grunn samfélags­gerðarinnar. Megin­hlutverk skatt­kerfisins er ekki einungis að tryggja tekjur til að standa undir samneyslunni eða grunn­þjónustunni og tryggja þannig farsæld allra. Skatt­kerfið getur líka þjónað efnahags­legum markmiðum og er mikilvægt tekju­jöfnunar­tæki, þannig að með ólíkum þrepum sé tryggt að hinir tekju- og...
Aðsent

Ragnar Þór Jónsson

Auðveldari og ódýrari lausn við vanda­málum utan­garðsfólks

Í barátt­unni gegn heimilis­leysis­vandanum hefur því lengi verið haldið fram að það þurfi fyrst að takast á við þau vandamál sem blasa við útigangs­fólki t.d. geðraskanir, áfengis- og eiturlyfja­fíkn áður en þeim er veitt niður­greitt húsnæði. Nú er því samt sem áður haldið fram að þetta sé ekki rétta leiðin, talið er að betra sé að gefa fólki fast húsnæði...
Aðsent

Helgi Skúli Kjartansson

Óþörf aðferð - Um forseta­kjör í tveimur umferðum

Ég álpaðist inn á netkönnun hjá einum fjöl­miðlinum þar sem maður má taka afstöðu til nokkurra sjónar­miða um forseta­embættið og bera eigin svör saman við svör fram­bjóðenda. Ein stað­hæfingin hljóðar svo: „Breyta ætti lögum um forseta­kjör á þann veg að tvær umferðir þurfi til að forseti nái kjöri. Kjósa ætti á milli þeirra tveggja er hlutu flest atkvæði í fyrri...
Aðsent

Hildur Þórðardóttir

Við viljum ákveða sjálf

Á ensku merkir orðið „Pollaganda“ þegar fjöl­miðlar nota skoðana­kannanir til að stjórna almennings­álitinu og koma sínum uppáhalds fram­bjóðanda eða flokki á framfæri, á meðan þeir þykjast vera hlut­lausir. Kannanirnar eru þá pantaðar þannig að fyrst eru áhorf­endur mataðir á „fréttum“ sem sveigja skoðanir þeirra í átt sem fjöl­miðlar vilja og síðan er hringt í þá og þeir spurðir leiðandi spurninga....
AðsentForsetakjör 2016

Andri Snær Magnason

Þorska­stríð fram­tíðarinnar

Ég sá í vikunni umræðu um þorska­stríðin milli fram­bjóðenda en einhvern­veginn endaði umræðan árið 1976. Það er full ástæða til að taka upp þráðinn og horfa lengra fram á við. Eru einhver þorska­stríð framundan? Þegar landhelgi Íslands var færð út þá varð Ísland miklu meira haf heldur en land. Land­helgin er nefnilega sjö sinnum stærri en sjálft Ísland. Þess vegna...

Mest lesið undanfarið ár