Aðsent

Björgvin Skúli Sigurðsson

Tækifæri fyrir frumkvöðla í íslenskum orku­iðnaði

Nýsköpun er undir­staða fram­þróunar í öllum atvinnu­greinum. Í orku­iðnaði hefur umhverfið fyrir frumkvöðla sjaldan eða aldrei verið betra og þar er Startup Energy Reykjavik viðskipta­hraðallinn í lykil­hlutverki. Lands­virkjun er stoltur bakhjarl verk­efnisins, ásamt Arion banka, Nýsköpunar­miðstöð Íslands og GEORG, rannsóknar­klasa í jarðhita. Á undan­förnum tveimur árum hafa 14 verkefni tekið þátt í Startup Reykjavik Energy og árangurinn verið framar björtustu...
AðsentForsetakjör 2016

Ástþór Magnússon

Af hverju ítrekað í forseta­framboð?

Þegar ég flaug með hjálpar­gögn til Írak var það fyrsta borgara­lega flugið sem lenti í Baghdad eftir fyrra Írakstríðið. Að baki var margra mánaða vinna þar sem samið var um aðgang að lofthelgi sem hafði verið lokað um árabil. Til þurfti samþykki stjórn­valda í Írak og sérstakt leyfi frá Öryggis­ráði Sameinuðu þjóðanna. Fæstir gera sér grein fyrir því hvað þarf...
AðsentForsetakjör 2016

Björg Árnadóttir

Græsku­laust um forseta, flug­freyjur og gömul tröll

Ég ek um með galopinn glugga í blíðunni hér nyrðra, hleypi inn ferskum vindum og syng hástöfum með Önnu Pálínu heitinni í ljóði Aðalsteins Ásbergs: „Sól mín sól, þú sækir illa að gömlum tröllum, gerir þau að grjóti, græsku­laust er það.“ Kosninga­baráttan vekur mér bjartsýni og ég finn þörf fyrir að skrifa um útþvælt efnið. Það er gott hvað við...
Aðsent

Kjartan Jónsson

Píratar og mýtan um hægri menn

Nýverið samþykktu Píratar nokkrar tillögur í kosninga­kerfi sínu sem hafa vakið nokkra athygli og snúa að aukinni tekju­öflun ríkis­sjóðs. Auðvitað gripu andstæðingar og öfundar­menn það á lofti og fóru að óskapast yfir þessari vinstri­villu Pírata – nú sýndu þeir sitt rétta eðli, eins og hver annar vinstri flokkur sem vill auka skatt­heimtu og þenja út ríkis­báknið. Litli bróðir Staksteina Moggans,...
Aðsent

Jón Aðalsteinn Þorgeirsson

Á virkilega að virkja Svartá í Bárðardal?

Stóra­tunga er lands­svæði á NA hluta Íslands. Í norðri markast Tungan af ármótum Svartár og Skjálfanda­fljóts í um 70 km fjarlægð frá Skjálfanda­flóa. Stóra­tunga teygir sig milli Skjálfanda­fljóts að vestan og Svartár og Suðurár að austan, 25km til suðurs að þjóðlendu­mörkum við Suður­árbotna í u.þ.b. 460 m hæð yfir sjávar­máli. Í Suður­árbotnum spretta fram undan Ódáða­hrauni ógrynni af lindar­vatni sem...
Aðsent

Ágúst Már Ágústsson

Tafir á full­gildingum alþjóða­samninga

Fyrir helgi flutti Nils Muižnieks, mann­réttinda­fulltrúi Evrópu­ráðsins, erindi í Norræna húsinu þar sem hann gagnrýndi stjórn­völd fyrir seinagang við full­gildingar á alþjóð­legum mann­réttinda­samningum. En það eru ekki aðeins alþjóð­legir mann­réttinda­samningar sem ekki hafa verið full­giltir á Íslandi í gegnum tíðina. Síðan að Ísland hóf að undirrita alþjóða­samninga hjá Sameinuðu þjóðunum á sjötta áratugnum hafa 37 þeirra samninga enn í dag...

Mest lesið undanfarið ár