Aðsent

Hanna Katrín Friðriksson

Róttæk nálgun í heilbrigðis­málum?

Þau eru mörg ráðin sem nýliðar í pólitík fá þessa dagana. „Tala eins og stjórn­málamaður, ekki sem sérfræðingur.“ „Ekki reyna að útskýra flókin mál, það missa allir áhugann. Notaðu stikkorð.“ „Heil­brigð­ismál verða ekki kosningamál. Allir lofa öllu fögru, taktu bara þátt og málið er dautt.“ Þetta er bara brot af því sem borið hefur inn á borð hjá mér undan­farið....
Aðsent

Ingunn Björnsdóttir og Smári McCarthy

Undan­tekningar­tilvik eða almenn regla?

Hræðsla fólks á Íslandi við hryðju­verk er á mjög veikum rökum reist, enda hefur ekkert gerst sem bendir til þess að Ísland sé skotmark. Hins vegar er það tilfellið að tölvu­kerfi allsstaðar á Vestur­löndum hafa sætt auknum árásum á undan­förnum árum, ekki síst vegna þess að mörg ríki eru byrjuð að efla getu sína til að stunda „stafrænan hernað“. Því...
Aðsent

Eva Baldursdóttir

Bætum hag ungs fólks – aukum jöfnuð

Ójöfnuður milli kynslóða hefur aukist. Þannig hefur staða ungs fólks versnað í íslensku samfélagi í saman­burði við kynslóðirnar á undan, einkum vegna tveggja þátta: ráðstöfunar­tekjur fólks á aldrinum 20-35 ára hafa dregist saman í saman­burði við fyrri kynslóðir og erfiðara er fyrir ungt fólk að kaupa sé fasteign. Staðan er frekar einföld á húsnæðis­markaði. Annað hvort býrðu í leigu­húsnæði, sem...
Aðsent

Hópur fólks innan SÍNE, LHÍ, Röskvu og Stúdentaráðs

Betra náms­lánakerfi fyrir alla

Nú þegar fer að líða að þinglokum er enn til umræðu að gera verulegar breytingar á Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) og hafa formenn nokkurra hagsmuna­hreyfinga háskóla- og framhalds­skólanema afhent þing­mönnum áskorun þess efnis að frum­varpið verði afgreitt strax. Fjölmargir aðilar, til að mynda stéttar­félög, stúdenta­hreyfingar, Háskóli Íslands og aðrir háskólar, hafa hins vegar bent á alvarlega galla frum­varpsins og þær...
Aðsent

Iðunn Garðarsdóttir

LÍN-frumvarp sem eykur ójöfnuð og misskiptingu​

Fyrir Alþingi liggur nú nýtt frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Frum­varpið felur í sér miklar breytingar á náms­lánakerfinu, breytingar sem ýta undir ójöfnuð verði þær að lögum. Meðal þeirra breytinga sem lagðar eru til er að nemendur fái námsstyrk í hverjum mánuði en verði frum­varpið að lögum munu nemendur í lánshæfu námi eiga þess kost að fá styrk upp á...
Aðsent

Antoníus Smári Hjartarson

Kosning aldamóta­kynslóðarinnar

Undan­farin ár hafa hinar ótrúlegustu tækni­nýjungar litið dagsins ljós. Aukin gervi­greind og sjálf­virkni auðveldar okkur öllum lífið. Snjall­símar gefa okkur aðgang að gífurlegu magni upplýsinga og aukin nettækni tryggir að við séum alltaf tengd. Orku­geirinn færir okkur nær sjálf­bærari heimi á hverjum degi og við lifum lengur og lengur. Samtímis höfum við upplifað stór­kost­legar samfélags­breytingar. Samfélags­miðlar hafa haft gríðarleg áhrif...
AðsentKosningar 2016

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir

Sérstakt laga­ákvæði um hrelli­klám

Skilningur á alvarlegum afleiðingum hrelli­kláms hefur aukist mjög að undan­förnu. Hugtakið hrelli­klám er engu að síður frekar nýlegt í opinberri umræðu, þó að það sé reyndar ekki nýr veruleiki að viðkvæmu kynferðis­legu myndefni sé deilt án samþykkis þess sem er á myndunum. Hrelli­klám hefur hins vegar komist í kast­ljósið vegna aukinnar tíðni þessara brota og vegna alvarlegra afleiðinga brotanna. Með...
Aðsent

Jóhannes Stefánsson

Að vanmeta vitsmuni námsmanna

Því hefur verið haldið fram opinber­lega að með nýju náms­styrkja­kerfi sé gert ráð fyrir því að námsmenn muni á einhvern hátt verða með lægri ráðstöfunar­tekjur. Þetta er alfarið rangt. Fram­færslulán LÍN eru nú og verða áfram að öllu leyti óháð þeim bótum sem einstak­lingum kunna að standa til boða. Með öðrum orðum, þeir einstak­lingar sem njóta bóta­greiðslna, t.d. vegna barna,...
Aðsent

Jóhannes Karl Sveinsson

Endur­reisn bankanna - Má ekki tala um efnið?

Jú, það má sko tala um efnið. Það má hins vegar ekki auglýsa blaðamanna­fund og hrakyrða þar fólk í nafni þing­nefndar Alþingis. Sérstak­lega þegar í ljós er komið að þing­nefndin hafði aldrei fjallað um málið og nefndar­menn ekki lesið þá skýrslu sem eignuð var nefndinni. Það er efnislegt hneyksli en ekki forms­atriði. Látum það samt liggja á milli hluta í...

Mest lesið undanfarið ár