Aðsent

Sann­leikurinn um sjávar­útveg?

Undir lok nóvember­mánaðar birti dr. Ásgeir Jónsson dósent í peningamála­hagfræði við Háskóla Íslands hugleiðingu um sjávar­útveg á vef fjármála­fyrir­tækisins Virðingar þar sem Ásgeir starfar jafnframt sem efnahags­ráðgjafi og einn af þremur yfir­stjórnendum. Sann­leikurinn um sjávar­útveg er yfir­skrift pistilsins og hefðu sumir kannski látið sig muna um minna, þó að þar með sé ekki sagt að Ásgeir meini endilega að allt...
Aðsent

Þorsteinn Víglundsson

Lífið efst í rússí­bananum

Aldrei eftir hrun hefur verið jafn rík ástæða til að fara varlega í ríkis­fjármálum og nú. Viðvörunar­merki um of mikla þenslu í hagkerfinu hrannast upp. Við erum á kunnug­legum slóðum. Launa­hækkanir undan­farin ár hafa verið langt umfram framleiðni­aukningu og á sama tíma hafa útgjöld ríkis­sjóðs aukist mikið. Þetta hefur áður reynst banvænn kokteill í efnahags­legum uppsveiflum. Afleið­ing­arnar eru hátt vaxtastig...
Aðsent

Elín Björg Jónsdóttir

Bætum heilbrigðis­kerfið en forðumst skyndi­lausnir

Það gæti ráðist á næstu árum hvernig íslensku heilbrigðis­kerfi reiðir af eftir stans­lausan niður­skurð og fórnir síðustu ára og áratuga. Fara þarf í stór­fellda uppbyggingu á heilbrigðis­kerfinu, en það er ekki sama hvernig það er gert. Stjórn­málamenn virðast búnir að átta sig á því að ekki er hægt að reka kerfið með þeim hætti sem gert hefur verið undan­farið. Vandi...
Aðsent

Arnar Þór Jónsson og Katrín Oddsdóttir

Vald­beiting „fjórða valdsins“

Fjöl­miðlar gegna veiga­miklu hlutverki í sérhverju lýðræðis­ríki. Fagleg blaða­mennska miðar að því að birta samtímis upplýsingar og stað­reyndir úr ólíkum áttum í því skyni að almenningur geti tekið afstöðu í mikil­vægum málum. Eftir að hafa tekið upplýsta afstöðu getur almenningur svo gert ákall um breytingar ef þörf þykir og þannig er umræðan lykil­þáttur í framþróun samfélagsins. Samkvæmt þessu hvílir mikil...
Aðsent

Guðfinnur Sveinsson

Opið bréf til Bjarna, Katrínar, Birgittu, Benedikts, Sigurðar, Óttarrs og Loga

Kæri forsvars­maður, Þetta bréf verður hvorki sérlega sniðugt né skemmtilegt, heldur reyni ég að halda því jafn skýru og beinskeittu eins og ég get. Við erum á tímamótum þar sem samfélag okkar jarðarbúa þarf að breyta háttum sínum í grundvallar­atriðum. Við þurfum að ákveða hvort við viljum vinna markvisst að því að jörðin haldist íbúðarhæf fyrir manneskjur, eða vakna upp...
Aðsent

GDS2017: Að gera vímu­efnanotkun öruggari

Global Drug Survey (GDS) stendur fyrir heimsins stærstu gagna­söfnun um vímuefni, með markmið um að gera vímu­efnanotkun öruggari, óháð lagalegri stöðu efnanna. Nýlega fór gagna­söfnunin í loftið í sjötta skipti og er markmiðið að ná 150.000 þátt­takendum í ár (yfir 100.000 þátt­takendur tóku þátt í fyrra og árið á undan). Með gott lið fræði­manna, lækna, sálfræðinga og fjölmiðla í yfir...
Aðsent

Soffía Sigurgeirsdóttir

Aðgerða þörf í loftslags­málum

Samkvæmt nýlegri skýrslu United Nations Environ­mental Programme (UNEP) gerast umhverfis­breytingar í heiminum hraðar en áður var talið og munu verða hraðari ef hitastig jarðar hlýnar enn frekar. Í skýrslunni er greint frá svæðis­bundnum umhverfis­breytingum í Evrópu, Norður Ameríku, Asíu og Kyrrahafi, Vestur-Asíu, Mið-Ameríku, Karíbahafi og Afríku. Sambærileg umhverfisvá herjar á hverja heimsálfu, aukinn fólks­fjölgun, hraðari þéttbýlis­myndun, aukin neysla, eyðimerkur­myndun, jarðvegs­eyðing,...
Aðsent

Framkvæmdastjórn ESB

Sameiginleg yfir­lýsing á Alþjóða­degi gegn kynbundnu ofbeldi, 25. nóvember 2016

Í dag, á Alþjóða­degi gegn kynbundnu ofbeldi, segjum við: nóg komið. Enn er algengt að konur og stúlkur, innan og utan Evrópu­sambandsins, verði fyrir ofbeldi. Um allan heim sæta konur og stúlkur enn barð­smíðum heima við, kynferð­is­legri og efna­hags­legri misnotkun, eru misnotaðar á götum úti og á vinnu­stöðum, á netinu og við íþrótta­iðkun, þeim nauðgað, þær limlestar eða neyddar í...
Aðsent

Steingrímur J. Sigfússon

Ríkis­fjármál og hagstjórn á tímum stjórnar­myndunar

Það má kalla öfugsnúið að þurfa að ræða um þrönga stöðu í ríkis­fjármálum á því herrans ári 2016, árinu þar sem stefnir í sögulegan metafgang hjá ríkis­sjóði, bókhalds­legan þ.e.a.s., um eða yfir 400 milljarða með bókfærslu stöðugleika­framlaganna. Að því við bættu að Ísland er væntanlega á hápunkti hagsveifl­unnar, með 6 ára samfelldan hagvöxt að baki. En ekki er allt sem...
Aðsent

Dr. Haukur Arnþórsson

Tortryggni vex gagnvart rafrænum kosningum

Megin munur rafrænna kosninga og pappírs­kosninga er að í fyrr­nefnda kerfinu er hægt að framkvæma miðlæg svik, á heild­sölustigi eins og það er kallað, en í síðarnefnda kerfinu er hættan mest á smásölu­stiginu, á kjör­stöðunum og í meðferð kjörgagna. Vegna þessa einkennis vekja rafrænar kosningar gjarnan upp tortryggni, enda þótt svika­mögu­leikarnir séu kannski litlir og vel hugað að öryggis­málum. En...
Aðsent

Sigrún Huld Þorgrímsdóttir

Stefna í öldrunar­þjónustu – hugleiðingar við stjórnar­skipti

„Forlátið ég set á tölur, forlátið vér erum sagnaþjóð og getum aungu gleymt“. Á þessa leið hugsaði Nóbels­skáldið okkar sér að sögu­hetjan hans talaði við erlenda menn. En því valdi ég mér þessa tilvitnun að mér hættir til að hefja mál mitt á því að rekja nokkra sögu. Líklega er þetta gamaldags og eiginlega efast ég um að lýsingin að...
Aðsent

Sigrún Björk Cortes

Kjaramál kennara er eitt –úrbætur í mennta­málum annað

Góður skóla­stjóri veit að þær skipanir sem koma beint að ofan ná yfirleitt ekki að festa rætur, hvað þá dafna vel, ef kennara­hópurinn hefur ekki í grundvallar­atriðum verið með í að móta þær faglegu hugmyndir, úrbætur, breytingar, þróunar­starf eða annað sem þær byggja á og snúast um. Skóli er nefnilega ekki eins og gata, svo dæmi sé nefnt. Vegamála­stjóri getur...

Mest lesið undanfarið ár