Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Landið logar

Við fyrstu sýn úr lofti er gosið svo agnars­mátt í landinu. Umbrotin eru svo stutt frá höfuð­borgar­svæðinu að það tekur einungis 15 mínútur að komast á lítilli rellu að Fagradals­fjalli úr Skerja­firði. Myndin breytist þegar maður horfir niður á fólkið, sem virkar svo agnars­mátt saman­borið við elds­púandi strýtuna, nýtt hraunið. Þá spyr maður sig; opnast ný sprunga? Hve lengi mun gjósa? Hvert mun allt hraunið renna þegar dalverpið fyllist? Af hverju er nýja hraunið svona gamalt, boðar það gott eða slæmt?
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Kúbein á Tý

Það kom í ljós að það kostar yfir 100 milljónir að laga Tý, hálfrar aldar gamalt skip Landhelgis­gæslunnar, þegar hann var dreginn vélar­bilaður upp í Slippinn í Reykjavík. Skemmdir á skipinu voru svo miklar að þær ógnuðu bæði öryggi þess og áhafnar; meðal annars voru tveir tankar skipsins ónýtir vegna tæringar. Á myndinni er einmitt verið að loka fyrir annan tankinn svo hægt sé að sjósetja skipið á nýjan leik. Dómsmála­ráðherra tilkynnti nú fyrr í mánuðinum að nýtt skip yrði keypt og lagði til að það fengi nafnið Freyja - sem yrði þá fyrsta ásynjan í flota Gæslunnar.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Að hrauna yfir landið

Það var einstak­lega tilkomu­mikið að sjá eldgosið í Geldingadal í gær. Þúsundir streymdu til og frá gosstöðvunum, eins og enginn væri morgun­dagurinn. En hann kom snemma, sérstak­lega fyrir þá sem mættu seint og voru illa búnir að takast á við vætu og kulda í nótt. En sjónar­spilinu við Fagradals­fjall held ég að enginn gleymi, enda einstak­lega fallegt hraungos. Næsta stóra mál er að tryggja gott og öruggt aðgengi, svo allir sem einn fái og geti notið þess að upplifa þessa stór­brotnu náttúru­fegurð.

Mest lesið undanfarið ár