Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Öxar við ána

Það voru fáir á ferð á Þing­völlum í morgun. Líklega er allt útivistar­fólk suður á Suðurnesjum að berja gosið augum. Nú á vormánuðum er verið að kynna nýtt skipulag fyrir þjóðgarðs­svæðið á Þing­völlum, þar sem horft er til framtíðar. Meðal annars á að reisa 1.000 fermetra veislu- og þjónustuhús sunnan við Hakið, lengja göngu­leiðir og bæta við nýju bílastæði ofan við Öxar­árfoss (mynd) til að minnka bíla­umferð á svæðinu neðan við Almannagjá.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

GOS... i

Þegar ég hitti Gosa (Harald Ara Stef­ánsson, mynd) upp í Borgar­leikhúsi áðan, var hann ekki enn búinn að fara upp að gosstöðvunum, en var á leiðinni fljótlega - enda leikhúsin lokuð fram til 17. apríl á þessu ári. Sýningin um Gosa, eða Pinocchio eins og hann heitir á frum­málinu, hlaut Grímu­verðlaunin í fyrra sem barna­sýning ársins. Ævintýrið skrifaði Carlo Collodi á toskönsku á árunum 1881 til 1883, en þá gaus einmitt í Heljargjár­rein og mynduðust þá Trölla­gígar og Trölla­hraun norðan Tungnár­jökuls.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Ljósanótt á Reykjanesi

Höfuð­ljósin lýsa upp leiðina niður í Nátthaga­krika, seint í gærkvöldi. Ótrúlegur fjöldi var saman­komin við goss­töðv­arnar í gær, miðvikudag. Björgunar­sveitar­maður á staðnum sagði mér, undir rós, að þeir hefðu áætlað að um 5.000 manns hefðu verið á svæðinu þegar mest var. Veður­spáin fyrir gossvæðið í Geldingar­dölum nú um helgina er ekki góð, stíf norðanátt og fimbulkuldi. Ekki örvænta, það mun gjósa þarna lengi, jafnvel áratugi.

Mest lesið undanfarið ár