Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Ótrúlega venju­legur þriðjudags­morgun

Það er svo gefandi að vakna með borginni og hitta alla menningar­páfa lýðveldisins fyrir utan Kaffi­félagið á Skólavörðu­stíg. Á meðan þeir skegg­ræddu var einhver sem sönglaði hástöfum niður í Banka­stræti. Niður við Tjörn var Bryndísa (mynd) að bíða eftir vinkonu sinni, en þær ætluðu að fara að æfa saman sirkus. Þegar ég gekk svo upp Amtmann­stíginn rakst ég á húðflúrs­meistarann Jón Páll (mynd) að mynda viðskiptavin beran að ofan á miðri götunni. Já, ósköp venju­legur þriðjudags­morgun í höfuð­borginni.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Hverir, hvít úlpa og svartur bakpoki

Þessi finnski ferða­langur var að skoða hvera­svæðið við Seltún í morgun, á leið sinni að gosinu í Fagradals­fjalli. En Reykja­nesskaginn er yngsti hluti Íslands og á honum eru 5 eldstöðva­kerfi. Krýsuvíkur­kerfið, þar sem hvera­svæðið í Seltúni liggur, er talið það hættulegasta vegna nálægðar sinnar við höfuð­borgar­svæðið. Fagradals­fjall, vestan við það, var talið það mein­lausasta - enda hefur ekki gosið þar í 6.000 ár þangað til nú. Reykja­neseldarnir (1210 til 1240) voru síðustu gos fyrir Geldinga­dalina, þær hamfarir voru vestast á nesinu, meðal annars myndaðist Eldey í þeirri 30 ára löngu goshrinu.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Þrír eldar, fjórir eldhugar

Það var fátt upp við goss­töðv­arnar í gærkvöldi, enda var veður og vindátt orðin óhagstæð. Klukkan 19:33, hálftíma eftir að ég var kominn upp að eldstöðinni barst sms frá 112 um að yfirgefa svæðið vegna gasmengunar. Skömmu síðar birtust sérsveitar- og björgunar­sveitarmenn líkt og gagnamenn að smala fé af fjalli. En þvílík breyting á landinu á innan við viku. Tveir nýir gígar hafa bæst við og hraunið fyllir nú nánast Geldingar­dalinn. Hraun­fossinn niður í Merardal sá ég ekki... bara næst.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Blákaldur veruleiki Spessa

Ísfirð­ing­urinn, mótur­hjóla­kappinn, kokkurinn, lífskúnstnerinn en fyrst og fremst samtíma­ljós­myndarinn Sigurþór Hall­björnsson, betur þekktur sem Spessi, var að opna á Þjóð­minjasafni Íslands ljós­mynda­sýninguna SPESSI 1990-2020. Hans einstaki stíll markar þessa yfirlits­sýningu hans, þar sem ekkert er dregið undan hvort sem það er; einmanna bensín­dæla austur í Suðursveit, kátir hommar í góðum fíling, verkfæri búsá­hald­ar­bylt­ing­ar­innar, eða fyrr­verandi Covid sjúklingar í seríunni C-19, sem er fyrir aftan Spessa á myndinni. Bók sem ber sama heiti og sýningin kom út samhliða sýningunni.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Sótt að sótt­vörnum

Rúmeninn sem lagði sótt­varnar­aðgerðir ríkis­stjórnarinnar, með hjálp Ómars R. Valdimars­sonar, var koma frá landi þar sem önnur bylgjan grasserar. Daginn sem hann kom til landsins greindust 6.115 ný smit í Rúmeníu og 156 andlát urðu vegna Covid-19. Í gær voru 160 einstak­lingar á sóttvarnar­hótelinu þegar dómur var kveðinn upp, en aðeins tæplega tuttugu yfirgáfu hótelið eftir úrskurðinn. Máls­kostnaður greiðist úr ríkis­sjóði og fær lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson 930.000 frá okkur skatt­borgurunum fyrir fjögurra daga vinnu að koma skjól­stæð­ingnum til síns heima. Auðvitað er þetta ekki í lagi.

Mest lesið undanfarið ár