Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Gleðilegt sumar á degi jarðar

Í nótt fraus saman sumar og vetur við Mývatn, sem samkvæmt íslenskri þjóðtrú boðar gott sumar þar. Sumar­daginn fyrsta ber alltaf upp á fimmtudegi frá 19.-25. apríl. Dagur jarðar er hinsvegar alltaf þann 22. apríl. Sá dagur hefur verið helgaður umhverfis­málum og verið haldinn hátíð­legur síðan 1970. Í ár eru það loftlags­málin sem sett eru á oddinn. Myndin, fyrstu blómin í Grasa­garðinum, var tekin í Laugardal nú í morgun.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Katrín og Bjarni í bakgrunni

Þegar blaðamanna­fundur ríkis­stjórnarinnar í hófst í Hörpu um hertar reglur á landa­mærunum voru hér 1.557 einstak­lingar í sóttkví eða einangrun. Nýju reglurnar skikka nú alla farþega frá hásmit­svæðum í sóttkví á sóttvarnar­hótelum. Þar á meðal alla farþega frá fjórum Evrópu­löndum: Hollandi, Frakk­landi, Ungverja­landi og Póllandi. Lita­kóðunar­kerfið sem átti að taka gildi á landa­mærunum 1 maí verður síðan frestað um mánuð.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Engin Jörfa­gleði í dag

Í morgun var ansi hljótt fyrir utan leik­skólann Jörfa, enda hafa 16 starfs­menn af rúmlega þrjátíu og 14 börn greinst smituð af Covid-19. Um næstu mánaðamót mun allt leikskóla­starfsfólk verða bólusett. Hin eina og sanna Jörfa­gleði var vikivaka­dansleikur seint á 17. öld sem haldinn var á bænum Jörfa í Dalasýslu, þar til sýslu­maðurinn Björn Jónsson tók sig til og bannaði hann árið 1695, vegna sögusagna um siðleysi. En árinu áður höfðu 30 börn komið undir á samkomunni og erfitt reyndist að para feður við anga.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Blómlegt blómabú

„Við ræktum hér meira en 3 milljónir blóma á hverju ári,“ segir Áslaug Svein­bjarnar­dóttir ein af garðyrkju­bændunum á Espiflöt í Reykholti. Það gera tæp 10 blóm á hvern einstakling hér í lýðveldinu. „Covid hefur haft áhrif, fólk kaupir meira af blómum, vill hafa heimilið hlýlegra þegar það er svona mikið heima. Potta­blómasala hefur líka aukist til muna, en hér erum við bara í afskornum blómum.“

Mest lesið undanfarið ár