Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Vorkvöld í Reykjavík

Bein lína frá Bessa­stöðum í eldstöðina í Fagradals­fjalli eru 25 km. Síðan eigandi Bessa­staða, Snorri Sturluson, var veginn árið 1241 hafa Bessa­staðir verið í konungs- og ríkiseigu; aðsetur höfðingja og háembættis­manna. Frá stofnun lýðveldisins árið 1944, hafa allir sex forsetarnir haft aðsetur á Bessa­stöðum. Bessa­staðastofa, elsta og stærsta byggingin, var byggð á árunum 1761 til 1766. Kirkjan var vígð árið 1823, en hún var hálfa öld í byggingu — eða frá árinu 1773.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Vestur og vestast á Kársnesi

Það fyrsta sem maður tekur eftir þegar komið er að nýja lóninu, Sky Lagoon, vestast á Kársnesinu, er klömbru­hleðslan í útvegg baðstaðarins. Ævafornt íslenskt handverk, á 21. aldar húsi. Lónið sjálft er svo allt annar heimur, þar sem Skerja­fjörðurinn og manngert heitt og stórt lónið renna saman í einn bláma. Lónið sem opnaði nú um daginn er ein stærsta einka­framkvæmd í ferða­þjónustu hingað til. Kostnaður, 5 milljarðar.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Umferðar­þungi

Á venju­legum virkum degi í síðustu viku óku að meðaltali 127.922 ökutæki Ártúns­brekkuna. Íbúar Reykja­víkur eru 132.252, því má segja að hver íbúi höfuð­borgarinnar fari brekkuna á hverjum degi, allt árið. Samkvæmt Samgöngu­stofu keyrðum við Íslendingar í fyrra að meðaltali 35 km á dag, rúma þúsund kílómetra á mánuði, 12.655 km á ári. Það eru hvorki meira né minna en 9,4 milljón kíló­metrar á dag sem við keyrum.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Fyrsti maí 2021

Ræðan á Ingólfs­torgi var nokkuð góð, þar sem síðasti kommúnisminn, Þorvaldur Þorvaldsson formaður Alþýðu­fylkingarinnar talaði. Hann hafði undirbúið sig vel, byrjaði í París árið 1870. Áhorf­endur á torginu voru bara tveir, með þeirri sem sá um streymið. Hátalarnir voru fimm að magna upp boðskapinn. Handan við hornið á Austur­velli var skraut­legur tuttugu manna hópur að mótmæla bólu­setningum: að auðvitað væri Covid - sem er blöff - allt gyðingunum Bill Gates og Soros að kenna.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Augað verður aldrei þreytt

Afi minn Arnór Sigurjónsson var á Norður­löndunum og síðan í Skotlandi akkúrat fyrir 100 árum, hér eru smá dagbókar­brot frá því í apríl og maí 1921. ,,Dálítið er það leiðinlegt fyrir Ísland - mig sem hefur einhvern snefil af sjálfs­metnaði, að finna það að það er alltaf eins og af náð ef Ísland er talið eitt af fjórum Norður­löndunum.... Edinborg er fegursta borg sem ég hef séð, fegurri en Stokk­hólmur; húsin að vísu á einn veg: grár en svipurinn ýmislegur... síðan eru hæðir og vötn, grasbalar og skógar allt á víxl og svo hagurlega raðað að augað verður aldrei þreytt."
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Hjóla í mann og annan

Reykja­víkur­hringurinn, hjólastíga­leiðin meðfram strand­lengjunni, með viðkomu vestur á Seltjarn­ar­nesi, er 27 kílómetra langur. Ef maður bætir örlitlu við, skreppur út á Álftanes fyrir Kársnesið og síðan Flótta­manna­leiðina niður í Elliða­árdal til baka, bætast bara 44 kíló­metrar við. Hlutfall hjólandi í umferðinni er núna um 7%. Samkvæmt samgöngu­áætlun Reykja­víkurborgar er stefnt að því að tvöfalda hjóla­umferð á næstu tíu árum.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Nafnlausi dalurinn fyllist fljótt

Sprengi­virkni hefur aukist mikið undan­farinn sólar­hring í syðstu gígunum á Fagradals­fjalli - það sá ég vel í sjöttu ferð minni á goss­töðv­arnar í gærkvöldi. Rennur því nú nær allt hraun austur í nafnlausa dalinn sunnan Merardala og gæti hann því fyllst mjög fljótt að mati vísinda­manna. Flatarmál hraunsins er í dag er orðið 1,13 km². Á fyrri myndinni sjást borgar­búar að ganga á Borgar­fjall til að sjá betur yfir goss­töðv­arnar, seinni myndin er næst syðsti gígurinn, sem er lang öflugastur núna.

Mest lesið undanfarið ár