Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Gott í gogginn

Fyrsti veitinga­staðurinn í Reykjavík var opnaður árið 1791 af dönsku ekkjunni, Margrethe Adersdatter Ravn Angel. Þá voru íbúar Reykja­víkur aðeins 358. Fyrir heims­faraldurinn voru rétt rúmlega 200 veitinga­staðir í miðborginni - þeim hafði fjölgað um helming frá aldamótum. Hér í Ingólfs­strætinu bíður Ásgeir eftir að málningin þorni svo gestir og gangandi geti fengið sér eitthvað gott í gogginn, úti í vorsólinni.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Óenda­leiki hringrásar Ragnars

Sumarnótt, myndbands­verk Ragnars Kjartans­sonar (mynd) er nú sýnt á Lista­safni Íslands. Verkið var tekið upp um bjarta en hroll­kalda nótt austur í Vestur-Skafta­fellssýslu, á túnbletti sem kyssir Eldhraunið. Sumar­nóttin var íslenskum landslags­málurum afar kært myndefni þegar fyrstu kynslóðir íslenskra lista­manna komu fram í byrjun síðustu aldar. Allt fer í hringi, sérstak­lega þetta verk Ragnars.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Veður­spámaður

Vegna mikilla þurrka undan­farið hafa Almanna­varnir í fyrsta sinn lýst yfir hættu­stigi vegna gróður­elda frá Breiða­firði og alla leið í Mýrdalinn. Spurning hvort Veður­spámaður (1934) Ásmundar Sveins­sonar (1893-1982) gæti eitthvað hjálpað til að spá um hvenær óhætt verður að aflétta hættu­stiginu? Ásmundar­safn opnar aftur eftir gagngerar endur­bætur, sem hafa staðið yfir síðan í október, með sýningunni „Ef lýsa ætti myrkva“, nú á fimmtudaginn.

Mest lesið undanfarið ár