Pistill

Ingólfur Eiríksson

Erfiðir tímar

Ég er sko kunnugur þeimerfiðu tímunum uppþvotta­vélin biluðskrúbba leirtauið með burstaog nokkrum lítrum af sápu­tímunum saman,leirtauið frá mánu­deg­iþriðju­deg­im­ið­viku­deg­ifimmtu­degi föstudags­kvöldin fara öllí yfirbótfyrir syndir vikunnar. Láttu mig þekkja þáerfiðu tímana. Ég tala nú ekki um að strauja. Renni járninu snarlega yfir buxuren skyrturnar eru annar kapítuliþær hafa löngum reynst mér erfiðar. Föstudags­kvöldin fara öllí sýsífus­ar­leiteftir ókrumpaðri skyrtu. Í óravíddum stofunnar
Pistill

Einar Már Jónsson

Sjálfs­virðing

Þegar menn renna augum yfir þann marg­víslega ófagnað sem „bylting frjáls­hyggjunnar“ hefur leitt yfir almenning, nefna menn stöku sinnum hvernig alþýðu­stéttir hafa misst þá sjálfs­virðingu og reisn sem þær nutu áður, og jafnframt þá sérstöku virðingar­stöðu sem þær höfðu í þjóð­félaginu. Þetta er afskaplega augljóst í Frakk­landi en breytinguna má sjá mun víðar, og er stærra fyrirbæri en margir gera sér grein fyrir. Í raun og veru ætti það að vera ofarlega á blaði.

13 mín. lestur

Flækjusagan

Illugi Jökulsson

Víkingarnir voru ekki ljós­hærðir Norður­landabúar — ekki nærri allir, að minnsta kosti

Ef einhver hefur enn trúað hinni gömlu þjóðsögu um víkinga sem ljóshærða hnarreista og hrein­ræktaða Norður­landabúa sem ruddust skyndi­lega út frá norsku fjörðunum, sænsku skógunum og dönsku hæðar­drögunum og æddu sem eldi­brandar um nálæg lönd, þá er nú óhætt að leggja þá sögu og þá mynd endanlega á hilluna. Mikil DNA-rannsókn sem staðið hefur á tugum víkinga­grafreita í mörgum löndum...
Flækjusagan

Illugi Jökulsson

Stórkostleg uppgötvun ef rétt reynist: Fyrsta plánetan fundin utan Vetrar­brautar?

Sú var tíð að vér menn þekktum aðeins reiki­stjörn­urnar í okkar eigin sólkerfi. Fyrir tæpum 30 árum var tækni svo komin á það stig að vísinda­menn gátu farið að greina plánetur við aðrar sólir en okkar. Yfirleitt tókst það með því að greina örlitlar truflanir í birtu­magni frá öðrum sólstjörnum. Þær reyndust stafa af því að reiki­stjörnur sveimuðu fyrir birtuna...
Flækjusagan

Illugi Jökulsson

Óvænt uppgötvun setur forsöguna í uppnám: Er uppruni mannsins þá ekki í Afríku?

Dýrin gekk rólega eftir mjúkum sandinum. Þarna í fjöru­borðinu var sandurinn svo rakur og gljúpur að fætur dýrsins sukku niður í hann og mynduðu alldjúp fótspor. Dýrið hélt svo áfram ferð sinni og náði fljótlega upp á grýttari strönd þar sem engin frekari fótspor mynduðust. Dýrið fór ferða sinna, hvaða erindum sem það kann að hafa verið að sinna. Eftir...

Mest lesið undanfarið ár