Hverir, hvít úlpa og svartur bakpoki
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Hver­ir, hvít úlpa og svart­ur bak­poki

Þessi finnski ferða­lang­ur var að skoða hvera­svæð­ið við Sel­tún í morg­un, á leið sinni að gos­inu í Fagra­dals­fjalli. En Reykja­nesskag­inn er yngsti hluti Ís­lands og á hon­um eru 5 eld­stöðva­kerfi. Krýsu­vík­ur­kerf­ið, þar sem hvera­svæð­ið í Sel­túni ligg­ur, er tal­ið það hættu­leg­asta vegna ná­lægð­ar sinn­ar við höf­uð­borg­ar­svæð­ið. Fagra­dals­fjall, vest­an við það, var tal­ið það mein­laus­asta - enda hef­ur ekki gos­ið þar í 6.000 ár þang­að til nú. Reykja­neseld­arn­ir (1210 til 1240) voru síð­ustu gos fyr­ir Geld­inga­dal­ina, þær ham­far­ir voru vest­ast á nes­inu, með­al ann­ars mynd­að­ist Eld­ey í þeirri 30 ára löngu gos­hrinu.
Þrír eldar, fjórir eldhugar
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Þrír eld­ar, fjór­ir eld­hug­ar

Það var fátt upp við gos­stöðv­arn­ar í gær­kvöldi, enda var veð­ur og vindátt orð­in óhag­stæð. Klukk­an 19:33, hálf­tíma eft­ir að ég var kom­inn upp að eld­stöð­inni barst sms frá 112 um að yf­ir­gefa svæð­ið vegna gasmeng­un­ar. Skömmu síð­ar birt­ust sér­sveit­ar- og björg­un­ar­sveit­ar­menn líkt og gagna­menn að smala fé af fjalli. En því­lík breyt­ing á land­inu á inn­an við viku. Tveir ný­ir gíg­ar hafa bæst við og hraun­ið fyll­ir nú nán­ast Geld­ing­ar­dal­inn. Hraun­foss­inn nið­ur í Mer­ar­dal sá ég ekki... bara næst.
Blákaldur veruleiki Spessa
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Blá­kald­ur veru­leiki Spessa

Ís­firð­ing­ur­inn, mót­ur­hjólakapp­inn, kokk­ur­inn, lífs­k­únstner­inn en fyrst og fremst sam­tíma­ljós­mynd­ar­inn Sig­ur­þór Hall­björns­son, bet­ur þekkt­ur sem Spessi, var að opna á Þjóð­minja­safni Ís­lands ljós­mynda­sýn­ing­una SPESSI 1990-2020. Hans ein­staki stíll mark­ar þessa yf­ir­lits­sýn­ingu hans, þar sem ekk­ert er dreg­ið und­an hvort sem það er; ein­manna bens­ín­dæla aust­ur í Suð­ur­sveit, kát­ir homm­ar í góð­um fíl­ing, verk­færi búsáhald­ar­bylt­ing­ar­inn­ar, eða fyrr­ver­andi Covid sjúk­ling­ar í serí­unni C-19, sem er fyr­ir aft­an Spessa á mynd­inni. Bók sem ber sama heiti og sýn­ing­in kom út sam­hliða sýn­ing­unni.
Sótt að sóttvörnum
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Sótt að sótt­vörn­um

Rúm­en­inn sem lagði sótt­varn­ar­að­gerð­ir rík­is­stjórn­ar­inn­ar, með hjálp Óm­ars R. Valdi­mars­son­ar, var koma frá landi þar sem önn­ur bylgj­an grass­er­ar. Dag­inn sem hann kom til lands­ins greind­ust 6.115 ný smit í Rúm­en­íu og 156 and­lát urðu vegna Covid-19. Í gær voru 160 ein­stak­ling­ar á sótt­varn­ar­hót­el­inu þeg­ar dóm­ur var kveð­inn upp, en að­eins tæp­lega tutt­ugu yf­ir­gáfu hót­el­ið eft­ir úr­skurð­inn. Máls­kostn­að­ur greið­ist úr rík­is­sjóði og fær lög­mað­ur­inn Óm­ar R. Valdi­mars­son 930.000 frá okk­ur skatt­borg­ur­un­um fyr­ir fjög­urra daga vinnu að koma skjól­stæð­ingn­um til síns heima. Auð­vit­að er þetta ekki í lagi.
Súkkulaði og sætt gos
Melkorka Ólafsdóttir
Pistill

Melkorka Ólafsdóttir

Súkkulaði og sætt gos

Hvað næst? – spyrj­um við hvert ann­að, og ósk­um þess að súkkulaðieggja­f­ram­leið­end­urn­ir taki ekki upp á þvi að finna upp nýja og arfaslaka máls­hætti, eins og um ár­ið. Við vilj­um eitt­hvað sem við könn­umst við, við vilj­um kunn­ug­legt súkkulaði og hvetj­andi, gam­aldags orð­hnyttni til þess að fleyta okk­ur að­eins lengra inn í vor­ið. Við er­um orð­in svo lang­þreytt á þess­ari...

Mest lesið undanfarið ár